Þjóðlíf - 01.09.1990, Qupperneq 66
VIÐSKIPTI
BANKAHNEYKSLI
ALDARINNAR
Mesta bankarán sögunnar í BancLaríkjunum. Verður það Bush og repúblikönum að falli?
Gífurlega útbreitt bankagjaldþrot í Bandaríkjunum kostar þarlenda skattgreiðendur að
minnsta kosti eitt hundrað milljónir dollara —nœstu tólf mánuði. Þarmeð er reikningurinn
síður en svo uppgerður, talið er að gjaldþrotið geti numið einni billjón. Það er að segja milljón
milljónum dollara þegar upp er staðið
JÓN ÁSGEIR SIGURÐSSON BANDARÍKJUNUM
Fjölmiðlar nefna það bankahneykslið
mikla, hagspekingar segja að þetta sé
versta áfall í sögu bandarískra efnahags-
mála og skattgreiðendur eru öskureiðir
yfir þessari botnlausu hít sem gleypir sí-
fellt meiri peninga. Mesta bankarán sög-
unnar, sagði bandaríska CNN sjónvarp-
ið.
yrir ári var talað um nokkra tugi
milljarða dollara en dagblaðið New
York Times segir að reikningurinn sem
ríkið fái hljóði upp á fimm hundruð til eitt
þúsund milljarða. Það er að segja hálfa til
eina milljón milljóna dollara. Sú upphæð
jafngildir allri núverandi landsframleiðslu
Islands í eina til tvær aldir.
Ekki höfðu Bush forseti og Dukakis
mótframbjóðandi hans miklar áhyggjur af
bankamálum í hittifyrra, enda þótt þá
væri þegar farið að sjóða uppúr. Þeir töl-
uðu lítið sem ekkert um bankagjaldþrot-
in. Samt sem áður virtust hjálparkokkar
Bush þáverandi varaforseta óttast póli-
tískar afleiðingar þess, að fjölskylda hans
flæktist í eitt af þessum gjaldþrotum.
Dagblaðið Washington Post segir að
nokkrum vikum fyrir forsetakosningar
hafi átt að taka Silverado bankann í Col-
orado til gjaldþrotaskipta, en Neil sonur
Bush sat þá í stjórn Silverado. A síðustu
stundu hafi borist boð frá einhverjum í
Hvíta húsinu um það að fresta skyldi upp-
gjörinu. Silverado var tekinn til gjald-
þrotaskipta daginn eftir að Bush var kjör-
inn forseti. Talið er að vegna ríkisábyrgð-
ar á innistæðum, þurfi ríkissjóður
Bandaríkjanna að punga út einum millj-
arði dollara vegna Silverado gjaldþrotsins.
Akæruvaldið hefur ekki borið Neil
Bush sökum vegna gjaldþrotsins, en
vænta má þess að ríkisábyrgð bankalána
höfði mál á hendur bankastjórn Silverado
fyrir vanrækslu í starfi. Fréttaskýrendur
telja að þáttur forsetasonarins í banka-
hneykslinu beini reiði almennings gegn
repúblikönum og skaði þá í kosningum.
Bandaríkjaþing hafði lengi vel engar
áhyggjur, enda taka þingmenn öðru
hverju dýrar Kröfluákvarðanir, og sæta
sjaldnast ábyrgð. En svo kom í ljós að
fimm þingmenn (þar af fjórir demókratar)
voru flæktir í eitt stærsta gjaldþrotið. Þeir
þágu fé í kosningasjóði gegn því að koma í
veg fyrir endurskoðun á starfsemi Charles
nokkurs Keating húsnæðisbankastjóra í
Texas. Aðrir þingmenn lögðu sig í líma
við að endurbæta ímynd sína. Frank Ann-
unzio demókrati frá Illionis barðist árin
1985—87 hatrammlega fyrir því að losa
þessa banka undan hverskyns reglum og
eftirliti. Núna ber hann barmmerki með
kjörorðinu: Fangelsum bankaræningjana.
n hvernig gat það gerst að banda-
rískir bankar töpuðu allt að einni
milljón milljóna dollara? Þeir bankar sem
um ræðir, heita á ensku Savings and Loan
og voru í raun undirstaða þeirrar viðleitni
að láta ameríska drauminn um eigið hús-
næði rætast. Menn lögðu inn sparifé á hag-
stæðum kjörum og fengu húsnæðislán
-einnig á hagstæðum kjörum. Þetta kerfi
fjármagnaði helming allra húsbygginga í
Bandaríkjunum. Einn helsti kosturinn
fyrir sparifjáreigendur var sá að innistæð-
an var tryggð með ríkisábyrgð, en hún er
líka ástæða þess að ríkið leysir nú til sín
hvern bankann á fætur öðrum.
A áttunda áratugnum fór að halla undan
fæti hjá húsnæðisbönkum. Verðbólga á
stjórnarárum Jimmy Carters og miklar
vaxtahækkanir ollu því að bankarnir
þurftu að borga sífellt hærri vexti af inn-
lánum. Tekjur af húsnæðislánum stóðu
hinsvegar í stað. Afleiðingin var sú, að
eigið fé húsnæðisbanka var að mestu upp-
urið árið 1982.
Það ár afnam Ronald Reagan allar lög-
bundnar reglugerðir um húsnæðisbanka í
því skyni að gefa þeim tækifæri til þess að
standa á eigin fótum á fjármagnsmarkaði.
Stjórnendur þessara banka voru þó alls-
endis óundirbúnir að standa í slíkum við-
skiptum. Jafnframt var bankaeftirliti leyft
að koðna niður.
Ólíkt öðrum sviðum kapitalismans var
viðskiptaáhætta bankanna sára lítil, inni-
stæður voru í ríkisábyrgð og sparifjáreig-
endur áhyggjulausir. Húsnæðisbanka-
kerfið breyttist fljótlega í eitt allsherjar
spilavíti. Það var fjárfest í ótrúlegustu
hlutum og bruðlað takmarkalaust. Eftir
standa meðal annars hundruð ferkíló-
metra af íbúðar- og skrifstofuhúsnæði sem
Óttaslegið fólk safnast saman fyrír framan „Saving & Loan
stofnun í Baltimore í Bandaríkjunum.
66 ÞJÓÐLÍF