Þjóðlíf - 01.09.1990, Side 29
Ný bylgja á diskótekum í Bandaríkjunum og í Evrópu er svokölluð „Mitsing-partí“ eða „sing along kvöld“, — upprunalega „karaoke-kvöld“ sem
vísar til japansks uppruna. Þetta fyrirbærí er afskaplega einfalt og árangursríkt eftir því. Það gengur útáþaðað gestir á diskótekinu velja eitth vert
vinsælt lag og texta, síðan er einhverjum þeirra afhentur textinn oghljóðnemi. Lagið er leikið, þannigað öll hljóðfæriheyrast leika, en upprunalegi
söngurinn hefur veríð þurrkaður út. Það er gestsins að syngja lagið. Skemmtikraftar leiða gjarnan þessar uppákomur og halda til að byrja með í
höndina áþeim sem eraðreyna fyrirsér. „Það erenginn sem ekki villreyna aðfáþúsund manns tilaðfagna sér“, segir höfuðpaurþessarar nýju tísku
íÞýskalandi, Hermanns að nafni. Þessi kvöld eru sögð þjóna sjálfsdýrkunarþörf margs ungs fólks sem og stjörnudraumórum þeirra. Það er sagt að
svona skemmtun eigi við auglýsingafrík með rauða gleraugnaumgjörð sem og umhverfisjippa. Myndin er frá Karaoke-kvöldi í Hamborg og
Hermanns ásamt fylgimey. (Spiegel/óg)
ANDLAUS
SÖNGUR
Einn nánasti samstarfs-
maður Bush og forystu-
maður í Repúblikana-
flokknum Lee Atwater 39
ára hefur fengið harka-
lega gagnrýni. Stjórn-
málamaðurinn hefur unun
af því að syngja og spila á
gítar. Hann sendi stoltur
frá sér fyrstu plötu sína,
„Red, Hot & Blue“ með
soul tónlist þar sem m.a.
var stuðst við B.B. King.
Playboy birti plötugagn-
rýni: „andlaust — eins og
við var að búast“. Tveir
tónlistarmenn, Marshall
Chapman og Gary Nichol-
son, hafa blásið til gagn-
sóknar og samið lag undir
heitinu „Maðurinn sem
vildi gjarnan vera B.B.
King“. Nicholson segir að
þessi erkiíhaldssami
stjórnmálamaður hafi
engan rétt til að syngja
blús, „hann sé að smjaðra
fyrir svörtum tónlistar-
mönnum og um leið sé
hann af öllum hug og
hjarta að skera niður út-
gjöld til félagslegra verk-
efna og þannig setja fá-
tæka svertingja út á gadd-
inn" (Spiegel/óg)
Francoise Sagan og eftirmyndin.
REYNT AÐ VERJAST
Francoise Sagan, 55 ára
gömul skáldkona í Frakk-
landi, telur sig hafa opinber-
lega orðið fyrir alvarlegum
móðgunum. Rithöfundurinn
snjalli hefur ákært sjónvarps-
stöðina „Canal Plus“ fyrir rétti
í París, en í útsendingum
stöðvarinnar á kaldhæðnis-
legum brúðuleikmyndum
kemur Sagan fram í heldur
skuggalegu Ijósi. Þar treður
hún (brúðan) upp með fólki
eins og Bush, Gorbatsjof, Jó-
hannesi Páli páfa og fleiri slík-
um. Skáldkonan telur sig
koma þar fram sem skemmd-
ur og fráhrindandi persónu-
leiki. Lögfræðingur Sagan
krefst rúmlega 16 milljóna
króna í skaðabætur. Sagan
hafði reynt fyrir tveimur árum
að fá sjónvarpsstöðina til að
taka þessa brúðu úr leik. Þá
uppskar hún ekki annað en
það að Canal Plus hætti að
láta brúðuna neyta lyfja í þátt-
unum...
í RITFRELSINU
Luis Mercader 73 ára
bróðir morðingja Trot-
skys, Ramóns Merca-
ders, kynntist nýfengnu
mál- og ritfrelsi í Sovétríkj-
unum á dögunum. Spán-
verjinn kvartaði undan því
í viðtali við verkalýðsblað-
ið Trud, aö bróðir hans
hefði verið jarðaður undir
fölsku nafni í Moskvu árið
1978: „Hann á rétt á að fá
nafn sitt aftur og allur
sannleikurinn verður að
koma í ljós“. Blaðamaður-
inn svaraði kuldalega: „í
andrúmslofti þíðunnar á
að nefna hlutina réttum
nöfnum. Það er hægt að
halda því fram að Ramón
Mercades hafi framið
glæp, pólitískt morð, og
þar af leiðandi hafi hann
ekki átt skilið heiðurstitil-
inn „hetja Sovétríkjanna".
Svar bróðursins kom líka
óritskoðað í blaðinu: „Ra-
món Mercader bróðir
minn fékk ákveðið verk-
efni, og það verkefni innti
hann af hendi." En eins og
kunnugt er fékk Stalín
hann til að ráða Trotsky af
dögum...
(Spiegel/óg)
ÞJÓÐLÍF 29