Þjóðlíf - 01.09.1990, Side 32
MENNING
Bergþór Pálsson og Sólrún
Bragadóttir í hlutverkum sínum
í Brúðkaupi Figaros við
óperuna í Kaiserslautern.
Marcello í La Boheme, Don Fernando í
Fidelio, Germont í La Traviata og Don
Carlo í Valdi örlaganna.
í fyrra og í sumar söng ég á Drottning-
holm í Svíþjóð en það er eins konar „forn-
bílaklúbbur“. Við syngjum þar svokall-
aðar antikóperur, óperur frá 17. öld, og er
leikið undir á upprunaleg hljóðfæri. I
bæði skiptin höfum við sungið óperur eftir
ítalska tónskáldið Gluck, Ífigeníu á Ális
og Ífigeníu á Tauris. í fyrra söng ég einnig
hlutverk Commendatore í Don Giovanni í
upptöku sem Drottningholmhópurinn
vann fyrir Decca plötufyrirtækið. Mér
stendur til boða að taka aftur upp með
þeim að ári og þá sem Sarastró í Töfra-
flautunni en ég er ekki viss um að ég taki
því þar sem ég hef ekki talið það hlutverk
passa rödd minni, það er fyrir bassasöngv-
ara fremur en baritona.“
Kristinn lætur sér ekki nægja að syngja
við óperuna í Wiesbaden heldur viðrar sig
einnig í öðrum óperuhúsum og tónleika-
sölum. Hann söng í júní í Concertgebouw
í Amsterdam sem er einn besti tónleikasal-
ur í heimi hvað hljómburð varðar. Hann
verður þar aftur að ári. Um páskana fer
hann á ný til Hollands og tekur þátt í
flutningi á Jóhannesarpassíunni undir
stjórn Peters Schreiers. Hann
syngur við óperuna í Genf
haustið 1991, óperuna í Dusseldorf í vetur
og aftur eftir þrjú ár, svo eitthvað sé nefnt.
„Ég hef líka farið mikið um og sungið
fyrir,“ segir Kristinn. „I vor hélt ég til
Hamborgar í þeim erindagjörðum og vilja
þeir fá að heyra í mér aftur seinna í vetur
til að prófa mig í Rheingold eftir Wagner
en sú ópera er hluti af Niflungahring-
num.“
Kristinn virðist hafa næg verkefni fyrir
utan starfið í Wiesbaden og því hlýtur sú
spurning að vakna hvort hann stefni í
lausamennsku?
„Samningur minn við óperuna rennur
út í vor. Mér hefur verið boðin framleng-
ing og geri ráð fyrir að taka því með viss-
um skilyrðum varðandi sýningaríjölda og
annað til þess að geta verið laus þegar mér
hentar. Mér sýnist þeir vera tilbúnir til að
ganga að því. Það eru að koma upp ýmis
lausamennskuverkefni en það fer eftir
peningagræðginni hversu mikið ég tek af
þeim. Slík verkefni eru mun betur borguð
en starfið í Wiesbaden. En ég er ekkert
viss um að ég vilji vera algjörlega laus. Það
getur verið gott að hafa aðsetur í Wiesba-
den, syngja þar nokkrar sýningar og gera
út þaðan. Annars er ekki auðvelt að gera
áætlanir um þessa hluti. Maður fær tilboð
upp í hend-
urnar og ef vel er boðið er erfitt að segja
nei.“
Kristni hefur nú bæst liðsauki. Viðar
Gunnarsson bassi skrifaði í vor undir
tveggja ára samning við óperuna í Wiesba-
den og hóf þar störf í haust. Viðar fór til
Vínarborgar í desember í fyrra og söng þar
hlutverk Sarastrós í Töfraflautunni í
Kammeróperunni. Hann kom síðan heim
í vor og söng í nýrri óperu eftir John
Speight á Listahátíð, Abraham og ísak.
Að því loknu hélt hann aftur til Vínar að
syngja hlutverk Sarastrós en nú í Schönbr-
unerschloss Theater sem er starfrækt á
sumrin.
„Mér skilst að söngvarar séu ráðnir með
nokkuð löngum fyrirvara úti, a.m.k.
lengri en í mínu tilviki. Ég söng fyrir við
óperuna í Wiesbaden í apríl og hélt síðan
heim á leið. Tveimur dögum síðar bar svo
við að sá sem söng Commendatore í Don
Giovanni í sýningu óperunnar forfallaðist.
Forráðamenn óperunnar komu þá að máli
við Kristin Sigmundsson sem var á æfingu
og spurðu hvort ég væri ekki enn hjá hon-
um. Hann kvað nei við, sagði að ég væri
farinn til Oslóar og væri líklega staddur á
flugvellinum þar á heimleið. Kristinn
reyndi að hafa upp á mér í Osló en tókst
ekki og hringdi þá til Reykjavíkur í kon-
una mína sem brá skjótt við. Hún hafði
samband við Flugleiðir og gat fengið þá til
að kalla mig upp svo ég færi ekki til Is-
lands. Ég kom því af fjöllum þegar ég
heyrði nafn mitt glymja í hátölurum flug-
stöðvarinnar. Og í stað þess að fara heim
til íslands hélt ég til Wiesbaden og söng í
sýningu með Kristni tveimur dögum síð-
ar. Upp úr því bauðst mér samningur við
óperuna.“
Meðal verkefna hjá Viðari í vetur má
nefna hlutverk fangavarðarins Rocco
í Fidelio eftir Beethoven, Rheing-
old eftir Wagner, og tónleika í
desember. I janúar kemur hann
síðan heim og syngur í C-moll
messu Mozarts með Sinfón-
íunni.
Guðbjörn Guðbjörnsson
tenór gerði námssamning við
óperuna í Zurich fyrir rúmu ári
og söng þar bæði smá og meða-
lstór hlutverk. Hann hélt mikið
af einsöngstónleikum í Sviss
og tók einnig þátt í flutningi á
32 ÞJÓÐLÍF