Þjóðlíf - 01.09.1990, Qupperneq 13

Þjóðlíf - 01.09.1990, Qupperneq 13
grein fyrir þeim breytingum sem verða í sjávarútvegi og það sem af þeim leiðir. Guðmundur Ólafsson segir um land- búnað á Islandi: „Talið er að spara megi neytendum 15 milljarða á ári með því að leyfa innflutning á landbúnaðarvörum, þar af eru niðurgreiðslur og útflutnings- bætur um 6—7 milljarðar. Þetta eru um 3 milljónir króna á hvert lögbýli á ári. Kostnaður vegna erlendra aðfanga er stundum álíka og varan mundi kosta full- unnin erlendis frá. Þess vegna eru áhöld um hvort íslenskur landbúnaður sé yfir- leitt gjaldeyrissparandi. f flestum grein- um er landbúnaðurinn orðin mjög háður þessum innflutningi og því er það öryggi sem sumir telja innlendan landbúnað veita varla meira en gildir almennt í milliríkja- verslun. Hann gæti hins vegar alið með mönnum falska öryggiskennd.“ Hvort sem smjörið er strokkað lengur eða skemur, komast menn yfirleitt að þeirri niðurstöðu að íslenskur landbúnað- ur sé í ógöngum, eða öllu heldur að þjóðar- búið sé í ógöngum vegna skipulags á land- búnaðarmálum. Bændur sjálfir hafa á hreinskilinn hátt að undanförnu lýst yfir nauðsyn á gjörbreytingu á skipulagi land- búnaðarmála og munu áreiðanlega taka fúsir þáttt í skipulagsbreytingunum. 500 daga áætlunina ætti að framkvæma í sátt við bændur. Ilandbúnaðarmálum er hugmyndin sú að aflétta til að byrja með hömlum á verslun með fullvirðisrétt. Það er auðvitað gert í þeim tilgangi að ná fram meiri hag- kvæmni við búrekstur, og að sauðfjárrækt verði þar sem hún er heppilegust fyrir landið, sem og mjólkurbúskapur. Á þessu byrjunarferli verða hinar niðurlægjandi útflutningsbætur afnumdar. Um sama leyti verður að stórefla Líf- eyrissjóð bænda og fjármagna með niður- greiðslum. Um leið er gert ráð fyrir að undirbúa íslenskan landbúnað undir sam- keppni með ýmsum ráðstöfunum. Það þarf samtímis að treysta stöðu bænda með því að fella niður tolla og aðflutningsgjöld af aðföngum landbúnaðar. Markaðstengingin verður með margvís- legum ráðstöfunum eins og t.d. að verð- jöfnun á mjólk og kindakjöti innanlands verður afnumn á næsta stigi. Og þegar hér er komið sögu verður innflutningur á iðn- framleiddum matvælum, t.d. kjúkling- um, svínakjöti, eggjum, smjörlíki og loks kartöflum, heimilaður gegn háum vernd- artollum. Næst er stofnaður jarðakaupasjóður til að auðvelda þeim sem vilja hætta búskap við að hætta og verður hann fjármagnaður Islenskir stjórnmálaforingjar. Munu þeirræða leiðíslands til markaðsbúskapar? Þora þeirí500 daga áætlun? er ekki á dagskrá um hríð. Kísilmálmur- inn hefur ekki haldist í verði og þörfin ekki aukist. Hins vegar gæti slík verk- smiðja orðið aftur tímabær eftir nokkur ár sem fýsilegur kostur fyrir okkur“, segir Geir A. Gunnlaugsson. Hann telur einnig einboðið að leita fremur eftir minni verksmiðjum og starfsemi, sem auðveldar væri að koma fyrir annars staðar en á suð- vesturhorninu, starfsemi sem krefðist um 150 manns. Hann kveður almennar fyrirspurnir hafa borist að utan um mögu- leika á slíkum verkefnum. I ljósi þessa er óvarlegt að áætla annað en að í mesta lagi tvær stórverksmiðjur verði settar á laggirnar fyrir aldamót og alls óvíst hvort meira sé fýsilegt af þeim toga. Miklu skiptir að fá smærri erlend fyrirtæki til að koma sér fyrir á íslandi. ð mati margra gætu möguleikar falist í smærri fyrirtækjum í tengslum við fríverslunarsvæði sem íslendingar setja á laggirnar. Það gæti orðið eyland, sem skapaði mörg atvinnutækifæri. Karl Steinar Guðnason alþingismaður flutti þingsályktunartillögu um fríverslunar- svæði í sex þing áður en hún fékkst sam- þykkt. Nú hefur forsætisráðherra skipað nefnd til að fara í saumana á málinu. Karl Steinar kvað í samtali við Þjóðlíf hug- myndina ganga út á hvorutveggja; að koma upp blómlegum viðskiptum og hafa rúm til að koma upp samsetningar- verksmiðjum. Á fimm hundruð daga áætl- uninni er gert ráð fyrir að opna fríverslun- arsvæði, sem síðar meir gæti skapað þús- undir tækifæra. Karl Steinar benti á að á fríverslunarsvæðinu í Cannon á írlandi væru þúsundir manna við vinnu. Þar hefði það gerst þvert á allar spár að laun hefðu hækkað verulega og athafnalífið blómstr- aði. Segja má að 500 daga áætlunin miði við þrjá aðalþætti: a) breytingar á sjávarút- vegi, b) breytingar í landbúnaði, c) breyt- ingar á fjármálakerfi landsmanna. Annað er nánast útfærsla eða kemur í framhaldi af breytingum á þessum sviðum. 500 dag- arnir eru framkvæmdadagar fyrir breyt- ingarnar sem síðan eiga eftir að skila okk- ur betri lífskjörum. Við höfum þegar gert ÞJÓÐLÍF 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.