Þjóðlíf - 01.09.1990, Blaðsíða 18

Þjóðlíf - 01.09.1990, Blaðsíða 18
YNGSTIÍSLANDSMEISTARINN Óvæntur sigur hins 15 ára gamla Héðins Steingrímssonar á Skákþingi Islands Skákgyðjan Caissa getur verið glettin og gamansöm. Stundum meinleg. Og brosir ekki við hverjum sem er. A nýaf- stöðnu Skákþingi íslands á Höfn í Horna- firði greip hún rækilega í taumana og setti allt á annan endann í íslensku skáklífi. Þar hefur verið stillt upp nýrri stöðu. Öllum á óvart tók Héðinn Steingrímsson forystuna á mótinu í upphafi. Öllum á óvart hélt hann henni framyfir mitt mót og án þess að nokkrum hefði dottið það í hug fyrir- fram vann hann glæsilegan og öruggan sigur og varð þar með yngsti skákmeistari íslands frá upphafi. Sigurinn var ekki ein- ungis óvæntur, hann var stórkostlegt af- rek í keppni við tvo öfluga stórmeistara og aðra sterkustu skákmenn landsins. Þessi 15 ára gamli nýliði í landsliðs- flokki vann mótið með yfirburðum, fékk tvo vinninga umfram það sem þarf til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Eftir góða byrjun kom eina tapskákin um ÁSKELLÖRN KÁRASON mitt mót og áttu víst flestir von á að nú færi að draga af sveininum unga, sem raunar kom beint til Hafnar frá norrænni grunnskólakeppni í Danmörku, og ætla mátti að hann færi að lýjast hvað úr hverju. Það sem gerðist var þveröfugt: Héðinn hélt áfram að tefla ákveðið og yfir- vegað, vann síðustu fjórar skákir sínar, þ.á.m. skákina við Margeir í síðustu um- ferð. egar þeir sem nú bera stórmeistara- tign voru að slá í gegn með Islands- meistaratitli 16-17 ára gamlir voru Islands- mótin langt frá því að vera jafn vel skipuð og í dag. Vegur þeirra hefur vaxið mikið hin síðari ár, enda þróunin í skáklífinu hér heima fádæma hröð allan síðasta áratug. Úrslitin nú bera vott um að sú þróun held- ur áfram en vaxtarbroddurinn er annar. Raunar mætti fremur segja að vaxtar- broddarnir séu orðnir fleiri; sú gleðilega breyting er að eiga sér stað að breiddin fer vaxandi; það er liðin tíð að stórmeistararn- ir fjórir séu öruggir með sigur á innlend- um mótum. Merki um þessa breidd mátti greinilega sjá á Búnaðarbankaskákmótinu fyrr á árinu eins og áður hefur verið bent á í þessum pistlum. Það voru enda fleiri en Héðinn sem sýndu merki um framfarir á skákþinginu á Höfn. Björgvin Jónsson sem um nokkurt skeið hefur staðið á þröskuldi alþjóðlegrar meistaratignar var alltaf líklegur til að ná tilskyldum árangri nú og verður að líkind- um útnefndur alþjóðlegur meistari innan tíðar. Meiri athygli vakti árangur Þrastar Arnasonar sem náði sínum fyrsta titil- áfanga. Þröstur, sem varð Skákmeistari Reykjavíkur 1986 aðeins 13 ára gamall, hefur um árabil staðið í skugga jafnaldra sinna, Hannesar Hlífars og Sigurðar Daða, en hefur greinilega vaxið ásmegin síðustu misseri. ótið á Höfn var með best skipuðu skákþingum. Að stórmeisturunum Jóhanni og Helga frátöldum var það mjög vel skipað. Fyrirfram var vitaskuld reikn- að með því að baráttan um sigurinn stæði fyrst og fremst milli stórmeistaranna tveggja, Jóns L. Arnasonar og Margeirs Péturssonar. Þeim voru þó mjög mislagð- ar hendur. Jón tapaði fádæma klaufalega fyrir Björgvini í 2. umferð og komst aldrei almennilega í gang meðan Margeiri tókst ekki að fylgja eftir góðri byrjun sinni í mótinu sem að öllu jöfnu hefði átt að tryggja honum meistaratitilinn. Þess í stað datt botninn úr öllu saman og hann tapaði hverri skákinni af annarri. Ætla mátti að Hannes Hlífar sem kom til mótsins frá Gausdal með spánýjan stórmeistaraárang- ur í farteskinu myndi einnig geta gert at- lögu að titlinum, en hann var heldur ekki með sjálfum sér í þetta sinn. Það er þekkt staðreynd að sterkir meist- arar eiga oft í mestu brösum á mótum þar sem þeir þurfa að etja kappi við fram- gjarna skákmenn, sem eru tvö til þrjú hundruð stigum lægri en þeir sjálfir. Stór- Er staðan svona slæm? Snorri Bcrgsson og Héðinn fela andlit í höndum sér. 18 ÞJÓÐLÍF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.