Þjóðlíf - 01.09.1990, Síða 28
ERLENT
UMRÆÐAN
EKKI í TÍSKU
Þekktur knattspyrnumaður í
Þýskalandi, Peter Geyer 37
ára var atvinnumaður til árs-
ins 1984 aðallega hjá Boruss-
ia Dortmund. Hann hefur nú
staðið fyrir mikilli afhjúpun —
á röngum tíma. Hann taldi sig
hleypa mikilli umræðu af stað
með grein í Penthouse tíma-
ritinu um lyfjanotkun þýskra
knattspyrnumanna í úrvals-
deildinni þýsku. Þar segir
Geyer.
Patti Davis 37 ára gömul söngkona og dóttir Ronalds Reagans gagn-
rýndi föður sinn fáklædd ísjónvarpi á dögunum. Áðurhafði hún lýstþví
í bókhversu erfitt vxri að vera dóttir forseta. Nú birtist hún í bikini til
að gagnrýna slátrun á 500 þúsund höfrungum sem túnfiskveiðimenn
hafa á samviskunni. Hún kvað föður sinn einnig vera meðábyrgan í
þessu fjöldadrápi, því ríkisstjórn hans hafí leyft þessi dráp á sínum
tíma.
hann m.a. að hressingarlyfið
Captagon hafi heyrt til leikja
með svipuðum hætti og
knötturinn sjálfur. Geyer tók
eftir því að menn urðu þessu
lyfi sálrænt háðir en áttu við
svefnörðugleika að etja eftir
notkun þess. Eftir að hafa
fengið sprautu hafi knatt-
spyrnuliðin sannarlega leikið
vel, en kvartað sárlega undan
liðamótaverkjum. Frásögn
Geyers féll í grýttan jarðveg;
nánast engin viðbrögð komu
úr knattspyrnuheiminum,
sem fagnaði glæstum sigri á
heimsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu í sumar. Geyer sem er
að opna knattspyrnuskóla í
Munchen fyrir konur og börn
segir að af viðbrögðunum
megi einfaldlega draga þann
lærdóm að umræða um lyfja-
notkun knattspyrnumanna
þyki ekki áhugaverð nú um
stundir...
(Spiegel/óg)
BÓKABRENNA
í NICARAGUA
Borgarastyrjöldinni í Nicara-
gua er opinberlega lokið, en
haturog hefndaraðgerðirmilli
Sandinista og þeirra sem
standa að núverandi ríkis-
stjórn láta öðru hverju á sér
kræla. í háskólaborginni
León lét nýskipaður yfirmað-
ur bókasafnsins hendur
standa fram úr ermum gegn
Sandinistum og minntu að-
farir hans illyrmislega á fas-
ista fyrr á öldinni. Hann efndi
til bókabrennu á bókum eftir
rithöfunda, sem voru Sandin-
istar eða stóðu þeim nærri.
Ástæðuna kvað hann vera
„aðför þessara höfunda að
opinberu siðferði". Á eldinum
lentu m.a. verðlaunaðar
bækur eftir Ernesto Cardenal
(fyrrum menningarmálaráð-
herra), Sergío Ftamíres (fyrrv.
varaforseta), Tomas Borge
(fyrrv. innanríkisráðherra) og
Gioconda Belli. Frank Galich
prófessor í bókmenntum
kveður þetta tilvik ógnvæn-
legt: „í gær voru bækur settar
á bálið, á morgun gætu það
orðið höfundarnir...“
(Spiegel/óg)
28 ÞJÓÐLÍF