Þjóðlíf - 01.09.1990, Síða 72
NÁTTÚRA/VÍSINDI
Þó að piljur, einkum móspilja, séu í
hópi þekktustu lækningaplantna Afríku
hafði enginn lagt sig eftir því að efnagreina
plönturnar í því skyni að komast að því
hvaða virku efni þær innihalda. Wrang-
ham sneri sér því til Eloy Rodriguez,
efnagreiningartæknis við háskólann í
Kaliforníu sem jafnframt var sérfræðing-
ur í plöntum af körfublómaættinni.
Niðurstöðurnar voru vægast sagt afar
merkilegar. í laufblöðunum reyndist vera
öflugt sýklalyf í miklum mæli. Sýklalyflð
er nefnt þíarúbrín-A, og hafði áður fund-
ist í rótum annars körfublóms, roðarótar
(Chaenactis douglasii). Frumbyggjar
Kanada búa til meðal úr roðarót og nota á
sár. Efnafræðingar höfðu hins vegar ekki
hugmynd um að þíarúbrín væri einnig að
finna í ungum laufblöðum piljutegunda.
„Ég varð furðu lostinn yfir þessari vitn-
eskju simpansanna og innfæddra afríku-
búa, sem þeir höfðu aflað sér án þess að
búa yfir nútímaefnagreiningartækni og
auk þess vissu þeir að virka efnið var ein-
ungis að finna í ungum laufblöðum pilju-
Efnið er einnig máttugt
gegn gerlum og veirum
og það hefur reynst
betur í tilraunum en
krabbameinslyfið
vínblastín.
plantna“, sagði Rodriguez. Ennfremur
tína simpansarnir lauf af tveimur þessara
tegunda eingöngu við dagmál sem bendir
til þess að þá sé heppilegast að neyta lauf-
blaðanna. Þekking í plöntulífeðlisfræði
rennir stoðum undir þetta því styrkur ým-
issa efnaskiptaafurða í plöntum fylgir oft
dægursveiflu.
Rodriguez uppgötvaði einnig að þíar-
úbrín-A er öflugt lyf gegn sveppum og
ormum. Litlir skammtar (fimm milljónar-
hlutar (ppm)) þess reyndust mjög áhrifa-
ríkir gegn margvíslegum sníkjuormum.
Efnið er einnig máttugt gegn gerlum og
veirum og það hefur reynst betur í tilraun-
um en krabbameinslyfið vínblastín.
rangham og Goodall líta svo á að sú
staðreynd að simpansar neyta til-
tekinna plantna í lækningaskyni sé enn ein
staðfesting þess að simpansar búa yfir
mun meiri greind en aðrir prímatar (vænt-
anlega að manninum slepptum). Simp-
ansar, sem læra hvers á að neyta með því
að fylgjast með sér eldri öpum og herma
það eftir þeim, eiga auðvelt með að til-
einka sér nýja háttu og siði og varðveita þá
þekkingu, segir Wrangham. Með þessu
greina þeir sig frá öðrum prímötum í
Gombárgarði, t.d. bavíönum, sem öðru
hverju neyta lækningaplantna, en þá ein-
göngu sem fæðu.
Þrátt fyrir að piljur hafi hörð og burst-
hærð blöð tyggja bavíanarnir þau jafnhratt
og öll önnur laufblöð og hafa augljóslega
ekki hugmynd um eiginleika þeirra. Virk
efni sem slæðast þannig með í fæðu þeirra
eru ef til vill gerð óvirk í meltingarvegin-
um. Wrangham hefur fylgst með bavíön-
um í um tuttugu ár og allan þann u'ma sá
hann aðeins tvo bavíana éta piljublöð og
þeir gerðu það ekki á meðvitaðan og vits-
munalegan hátt líkt og simpansarnir.
Önnur dýr nota stundum plöntur sem
vinna gegn sníkjudýrum en ekki með því
að neyta þeirra. Sem dæmi má nefna stara
sem halda sníklum í hreiðrum sínum í
skefjum með því að klæða þau innan með
sérstökum laufblöðum. Simpansar eru
hins vegar einu dýrin sem hafa vitsmuni til
að setja neyslu tiltekinna plantna í sam-
hengi við linun þrauta og krankleika.
Simpansarnir hafa það auk heldur fram
yfir starann að þeir velja sérstaklega þrjár
plöntutegundir og neyta þeirra þegar
þeim kemur það best.
En það er meira blóð í kúnni. Það hefur
vitnast að simpansar í Tansaníu þekkja til
annarra lækningaplantna en piljanna og
neyta þeirra á sama hátt. Af þeim má
nefna vætuhrís (Lippea picata), runna
sem vex í votlendi. Líffræðingar fylgdust
með simpansakerlu gleypa lauf af vætu-
hrísi og ganga þvínæst rakleiðis til hvílu.
Fólk af Tongweættflokknum gerir sér
meðal af vætuhrísi til að ráða bót á maga-
verkjum. Annars staðar í Afríku eru aðrar
tegundir af sömu ættkvísl notaðar gegn
iðrakreppu (t.d. blóðkreppusótt) og
mýraköldu. Efnagreining leiðir í ljós að
vætuhrís inniheldur virk efni sem nefnast
einterpenar (monoterpen) og þau hafa
reynst vera með víðtæka verkun gegn
ýmsum sníkjudýrum.
Sjúka simpansakerlan sem áður var
nefnd til sögunnar neytti einnig annarrar
plöntu, sníkilbana (Vernonia amygdal-
ina), sem er trjákenndur runni og er þekkt
lækningaplanta meðal afríkubúa. Þeir
nota hana gegn ýmsum sníkjudýrum.
Efnagreining hennar leiddi í ljós að hún
innihélt efni sem voru virk gegn ýmsum
sýklum, m.a. veirum, og aukinheldur
virtust þau örva ónæmiskerfi líkamans.
Simpansakerlingin náði síðan fullri
heilsu og það er fyrsta skráða dæmi
um að simpansi hafi læknað sjálfan sig.
Hún varð reyndar viðfangsefni í ná-
kvæmri rannsókn sem þeir Michael
Huffman og Mohamedi Seifu önnuðust.
Kerlan reyndist svefnsjúk og virtist þjást
af steinsmugu sem er glöggt einkenni
sníkjudýrasýkingar.
Hún sneiddi algjörlega hjá safaríkum
plöntum sem aðrir simpansar voru þá
stundina að gæða sér á og leitaði uppi
bragðbeiska sprota af sníkilbana. En í stað
þess að éta þá heila tuggði hún þá vand-
lega, saug úr þeim safann og spýtti út úr
sér trefjunum. Og eins og segir í kvæðinu,
eftir að þetta allt var skeð, náttból hún sér
velja réð, en allt um kring voru félagar
hennar á beit. Að liðnum sólarhring var
kerla hin sprækasta og blandaði geði við
hina og át sem þeir.
Rannsóknir annars staðar í Afríku hafa
sýnt fram á að simpansar þekkja og nota
ýmsar aðrar lækningaplöntur og neyta
þeirra ávallt á sama hátt, gleypa þær heilar
en tyggja þær ekki líkt og hefðbundnar
fæðuplöntur. Þessar lækningaplöntur eru
jafnframt vel þekktar meðal frumbyggja á
viðkomandi svæði. I laufblöðum fíkjutrés
eins, Ficus exasperata, eru vel þekkt
gerla- og veiruhemjandi efni, svonefnd só-
lín. Fornegyptar notuðu sólín til að lækna
húðkvilla. Simpansar éta þessi laufblöð
með annarri fæðu. Rodriguez hefur einnig
einangrað fjölpeptíð úr roðastreng (Rubia
cordifolia) sem er þekkt lækningaplanta í
Uganda og er notuð þar við magakveisu og
sníkjudýrum. Rannsóknir í Japan hafa
gefið til kynna að þetta efni sé virkt gegn
æxlisvexti.
Það er Ijóst að hér hefur
opnast nýtt svið í
lyflæknisfræði sem á
vafalaust eftir að
reynast gjöfult og
nytsamt.
Og enn má tína plöntur til sögunnar. í
Uganda og Tansaníu gleypa simpansar en
tyggja ekki heil, bursthærð blöð af klifr-
andi plöntum, vafjurtum (Commelina). Í
jurtunum eru tannín (sútunarsýrur) og
mjólkurkennt efni sem afríkubúar nota
sem sýklalyf, gegn hitasótt, eyrnaverk og
til að hemja blæðingu. Rodriguez er nú að
72 ÞJÓÐLÍF