Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2011, Qupperneq 24

Frjáls verslun - 01.01.2011, Qupperneq 24
24 FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011 jarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­ flokks ins, hefur síðustu vikurnar átt sviðið í íslenskri pólitík ásamt for seta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni. Bjarni hefur staðið í orra hríð Icesave og um hann stendur styr innan flokks ins. Mörg um finnst Bjarni hafa styrkt sig í sessi; öðrum finnst hann hafa leikið af sér. Eftir Kastljósviðtal þar sem hann útskýrði viðhorf sitt í Icesave finnst mörgum að vigt hans, sannfæringarkraftur og áhrif séu meiri. Eftir fund í Valhöll tveimur dögum síðar stigu tveir af fyrrverandi formönnum flokksins fram og sögðust styðja Bjarna, þeir Þorsteinn Pálsson og Geir H. Haarde. Davíð Oddsson hefur hins vegar farið gegn ákvörðun hans. ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLAN Það kom eiginlega af sjálfu sér að hefja samtalið á viðbrögðum hans við þeirri ákvörðun forseta Íslands að synja Icesave-lögunum staðfestingar. „Ég fagna því að þjóðin fái að eiga síð­ asta orðið í Icesave. Ég hefði þó kosið að þingið tæki þessa ákvörðun, í stað þess að hún lægi hjá einum manni. Við sjálf­ stæð ismenn greiddum atkvæði með því á þingi að málið færi fyrir þjóðina en stjórnar flokkarnir voru á móti. Þjóðin fékk þetta mál til afgreiðslu á fyrri stigum og mér finnst eðlilegt að hún afgreiði það. Núna er brýn þörf á upplýstri og hlut­ lausri umræðu um Icesave svo fólk eigi auðvelt með að taka upplýsta afstöðu. Ég hef sterka sannfæringu fyrir því að rétt sé að samþykkja Icesave­samninginn. Þjóðar ­ atkvæðagreiðslan snýst um að semja eða fara dómstólaleiðina. Mér finnst dóm stóla­ leiðin ekki virði áhættunnar í ljósi þess sem ég tel að fáist út úr þrotabúi gamla Lands­ bankans.“ Hvernig telur þú að þjóðaratkvæðagreiðslan fari? „Það er útilokað að fullyrða nokkuð um það. Mikilvægast er að fólk kynni sér málið og taki upplýsta afstöðu til þess. Ég mun mæla fyrir því að samningurinn verði samþykktur.“ Ef dómstólaleiðin verður farin þá verður það íslenskra dómstóla að dæma í málinu og þeir eru að margra mati óháðari dómstólar en EFTA-dómstóllinn. „Það er dómstóla á Íslandi að dæma í máli gegn tryggingasjóði innstæðueigenda og fari Bretar og Hollendingar í mál við sjóðinn verður dæmt í því hér á landi. Flest ir eru hins vegar á því að angar af málinu fari fyrst fyrir ESA­dómstólinn og að þar yrði skoðað hvort Íslendingar hefðu með einhverjum hætti farið rangt að við að innleiða tilskipunina um tryggingasjóðinn. Þá yrði það líka skoðað hvort í því liggi mismunun að koma innstæðum í banka­ kerfi nu á Íslandi í skjól í nýju banka kerfi en skilja innstæðueigendur í útibú um erlendis utan garðs. Lögfræðingar sem veittu þinginu álit töldu að þar væri okkar lagalega staða óviss. Það má gera ráð fyrir að ágrein ing ur ESA, Eftirlits stofnunar EFTA, og íslenskra stjórnvalda um þetta tvennt lendi að lokum fyrir EFTA­dómstólnum. Sá dómur er ekki aðfararhæfur á Íslandi. En Bretar og Hollendingar gætu í kjölfarið höfðað mál á Íslandi og vísað til niðurstöðu EFTA­ dómstólsins máli sínu til stuðnings. Þeir gætu einnig reist mál á enn öðrum grund­ velli eða reynt að beita pólitískum þrýstingi líkt og bent hefur verið á. Af þessu má vera ljóst að það er talsverð óvissa um fram­ haldið verði málið áfram í ágreiningi.“ KLÝFUR ICESAVE SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN? Varst þú alltaf þeirrar skoðunar að það væri rétt að Alþingi legði til að Icesave færi í þjóðaratkvæðagreiðslu? „Við ræddum málið í þaula í þing flokkn­ um en það sem réði úrslitum um þetta atriði að lokum var saga málsins. Það er slæmt að við höfum ekki skýrari reglur í stjórnarskrá eða almennum lögum um þau skilyrði sem mál þurfa að uppfylla til að fara í þjóðaratkvæði. Þarna er verk að vinna en jafnvel þótt ég vilji setja um þetta skýrari reglur vil ég alls ekki að öll mál, stór sem smá, fari í þjóðaratkvæði.“ Hefur staða þín veikst eða styrkst vegna þess að þú samþykktir Icesave á Alþingi? „Það getur tíminn einn leitt í ljós. Ég vissi vel að þetta yrði umdeild ákvörðun og ég hef fengið sterk viðbrögð á báða bóga. En það getur enginn verið ósáttur við að ég hafi mælt með því á alþingi að fólkið í land inu hefði síðasta orðið.“ Þú fullyrðir að flokkurinn sé ekki að klofna út af þessu máli. Ég tel það útilokað. Við vildum að málið færi til þjóðarinnar, m.a. til að skapa sem mesta sátt um niður stöð una, og nú fer það þangað eftir synjun forsetans. Vissulega er málið umdeilt, en Sjálfstæðis flokkurinn hefur aldrei klofnað um málefni. Hann hefur klofnað vegna manna, en ekki mál efna. Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, ræðir við Bjarna Benediktsson, for mann Sjálfstæðisflokksins,­ um­ ólguna­ innan­ flokksins,­ pólitíska­ áhættu­ hans,­ stjórnunarstíl,­ ráðgjafa,­ fyrirmyndir,­ ákvörðun­ forsetans­ í­ Icesave,­ályktun­ landsfundarins­ í­ Icesave,­ mót­framboð­Péturs­Blöndal,­ESB,­evruna,­Davíð­Oddsson,­Steingrím­og­Jóhönnu,­ákær- una­á­hendur­Geir­Haarde,­stjórn­lagaþingið,­stjórnarskrána,­hvort­Sjálfstæðis­flokk­urinn­ hafi­náð­vopnum­sínum,­hvort­í­þingliðinu­séu­ekki­veikir­hlekkir­eftir­hrunið,­styrkja- málið,­hvort­flokkurinn­hafi­gert­hreint­fyrir­sínum­dyrum­og­hvort­hann­sjálfur­sé­til- búinn til að leiða nýja ríkisstjórn. TEXTI JÓN G. HAUKSSON MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON B
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.