Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2011, Síða 29

Frjáls verslun - 01.01.2011, Síða 29
FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011 29 menn sem styðja viðræðurnar með mikla fyrirvara á aðild að ESB. Þetta virðist því snúast um það hjá mjög mörgum að sjá hvað kemur út úr viðræðum.“ En það eru málsmetandi menn innan flokksins sem eru mjög harðir Evrópusinnar og vilja snúa flokknum og flokksmönnum til fylgis við inngöngu í ESB. Þeir vita líka sem er að tapist orrustan núna þá er hún töpuð til langs tíma. „Niðurstaðan innan flokksins gagnvart Evrópusambandinu er fengin með lýðræðis­ legum hætti eftir umræður á lands fundi. Þetta er lýðræðisleg niðurstaða og hún gildir. Það er ríkur meirihluti hjá flokks mönnum Sjálfstæðisflokksins um að halda sig utan Evrópusambandsins. Miðað við það sem ég hef kynnt mér um eðli Evrópusambandins munu þeir sem vilja kíkja í pakkann á end­ anum verða fyrir vonbrigðum.“ DAVÍÐ ODDSSON Hvert er samband ykkar Davíðs Oddssonar? Ræðið þið oft saman? „Það er ekki mikið. Við höfum rætt saman af og til og yfirleitt líða margir mánuðir á milli.“ Hvaða skoðun hefur þú á Davíð Oddssyni? „Mér finnst Davíð vera stórbrotinn karakter. Hann á að baki glæstan feril í stjórn málum. Afburða yfirsýn yfir heildar sam hengi hlut­ anna og næmt innsæi var líklega mesti póli tíski styrkur Davíðs. Ég hef ávallt litið á hann sem vin og samherja, jafnvel þótt hann hafi stundum sent mér kaldar kveðjur. Ég reyni að taka hlutunum með ró og stofna ekki til illinda við menn, enda hefur mér, sem betur fer, almennt gengið illa að eignast óvini.“ En þú hlýtur að finna fyrir áhrifum hans innan flokksins. Finnst þér hann, sem fyrr- verandi leiðtogi flokksins, vera svolítið á bak- inu á þér, t.d. með hörðum skrifum sínum í Morgunblaðinu? Ekki endilega sem fyrrverandi formaður flokksins heldur hefur hann fyrst og fremst áhrif í þjóðfélaginu sem skörungur með ákveðnar skoðanir. Það er lagt við hlust­ ir þegar hann talar. Þannig er hann. Hann fylgir sínum málstað fast eftir. Stundum af list og næmi en önnur skipti af krafti og jafn­ vel reiði. Mér líkar betur við fyrri aðferð ina.“ Finnst þér hann skyggja á þig sem formann flokksins? „Nei, en sumir hafa nefnt það við mig. Ég læt það ekki trufla mig og hugsa ekki um það þegar ég vakna á morgnana. Ég er formaður flokksins og ber ábyrgðina og verð að fara eftir eigin sannfæringu við að leiða hann.“ En hann er harðorður um þig í leiðurum Morgunblaðsins. „Í Icesave­málinu hefur hann mjög ákveðnar skoðanir og þegar svo er fylgir hann þeim mjög fast eftir. Ég get ekki sett út á það í sjálfu sér en mér finnst hann hafa verið óbilgjarn. Mér finnst ekkert jafnvægi í umfjöllun Morgunblaðins um Icesave­málið svo ég segi það alveg eins og er. En ég efast ekki um að Davíð vill mér og flokknum vel þótt hann verði fyrir vonbrigðum í einstökum málum. Ekki síst vill hann þjóðinni allt. Það verður að hafa það þótt við séum ósammála um einstaka hluti. Það er þá ekki í fyrsta skipti sem ritstjóri Morgunblaðsins og formaður Sjálf­ stæðis flokksins eru á öndverðri skoðun.“ Þegar þú steigst þín fyrstu spor í pólitík inni var Davíð Oddsson formaður og forsætis ráðherra. Það var bæði skemmtilegt og lærdóms­ríkt að hafa hann sem leiðtoga þegar við komum nokkrir ungir þingmenn inn á þing. Davíð tók okkur vel. Hann var orð­ inn mjög reynslumikill þegar þetta var og það var ógleymanlegt að sjá hann fást við nokkur af þeim deilumálum sem upp komu á meðan hann var formaður. Hann er öflugur í að meta stöðuna og velja næsta leik. Eitt sinn þegar við vorum að ræða umdeilt mál sem margir höfðu skoðun á sagði hann við mig nokkuð sem ég hugsa oft til: „Vit verður ekki lagt saman,“ og vísaði þar í Sigurð Nordal. Líkt og Sigurður benti á þá er það svo á sviði vitsmuna að tveir og tveir eru ekki fjórir.“ STAÐA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Hvert er forgangsmálið hjá þér með flokkinn? „Að stefna flokksins komist að við stjórn landsins og flokkurinn vinni þannig þjóð­ inni gagn. Að því miðast öll mín störf. Stóra verkefnið hefur verið að byggja upp traust á Sjálfstæðisflokknum eftir hrunið. Traust skiptir öllu máli í stjórnmálum. Þetta er eins og í lífinu sjálfu; það tekur lang an tíma að byggja upp traust en það getur horfið á einni nóttu fari menn út af sporinu. Í kjölfar kosninga var öll áherslan á að gera hreint fyrir sínum dyrum, ræða um orsakir og aðdraganda hruns ins. Sjálfstæðisflokkurinn hafði misst traust fólks eftir hrunið þegar ég tók við for mennskunni, fólk var ekki tilbúið til að hlusta á sjónarmið okkar. Á mínum fyrstu dögum sem formaður komst styrkjamálið sömuleiðs í hámæli og það kostaði flokkinn sennilega 5­6% fylgi í kosningunum. En smám saman er umræðan að snúast meira um framtíðina og réttu leiðirnar til að takast á við þá stöðu sem við búum nú við. Það er mjög góður hljómgrunnur fyrir áherslu okkar á at vinnu­ sköpun og hvetjandi aðgerðir fyrir atvinnu ­ lífið. Inn á milli hefur þetta verið erfiður róður, en þegar glímt er við vanda mál skiptir hugar farið öllu. Ég hef litið á erfið leikana sem tækifæri fyrir okkur sem flokk, tækifæri til að eiga samtal við fólk.“ Mér finnst Davíð vera stórbrotinn karakter. Hann á að baki glæstan feril í stjórn mál­ um. Afburða yfir­ sýn yfir heildar­ sam hengi hlut anna og næmt inn sæi var líklega mesti póli tíski styrkur Davíðs. Ég hef ávallt litið á hann sem vin og sam ­ herja, jafnvel þótt hann hafi stund um sent mér kaldar kveðjur. Ég reyni að taka hlut unum með ró.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.