Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2011, Side 62

Frjáls verslun - 01.01.2011, Side 62
62 FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011 íkið heldur þjóðkirkjunni uppi,“ segja þeir sem vilja aðskilnað ríkis og kirkju. „Þetta er rangt,“ segja talsmenn kirkjunnar og benda á að aðskilnaður ríkis og kirkju hafi endanlega verið staðfest ur árið 2006 og bygg ist á lögum um svonefnt kirkju jarðasamkomulag sem gert var árið 1997. Aðskilnaður ríkis og kirkju var engu að síður mikið í umræðunni í aðdraganda kosninga til stjórn laga­ þings og nefndu margir frambjóðendur að þeir vildu þennan aðskilnað. Er þá kirkjan fjárhagslega sjálfstæð eftir allt sam an – og það þegar ríkið greiðir prestum laun? Þar að auki innheimtir ríkið sóknargjöld fyrir öll trúfélög í landinu. Svarið er bæði JÁ og NEI um fjárhagslega aðskilnaðinn. JÁ vegna þess að laun presta koma sem greiðsla fyrir kirkjujarðir, sem ríkið tók yfir með lögum árið 1907, og sóknargjöldin eru félagsgjöld sem ríkið innheimtir fyrir trúfélögin í landinu, t.d. þjóðkirkjuna, Fríkirkjurnar og Ásatrúarsöfnuð­ inn. Svarið er NEI um fjárhagslega aðskilnaðinn vegna þess að greiðslur til kirkjunnar berast henni frá ríkinu og eru inni á fjárlögum ríkisins. Ríkið kemur hins vegar ekki að fjármálum kirkjunnar með beinum hætti, t.d. hvað varðar ársreikning þjóðkirkjunnar eða aðra rekstrarþætti hennar og heldur ekki utan um heildarfjármál hennar. Hið fjárhagslega sjálfstæði kirkjunnar gagn vart ríkinu byggist því á kirkjujarða­samkomulaginu frá árinu 1997 sem varð að lögum. Þessi samningur náðist eftir um tutt­ ugu ára samningaviðræður um kirkjujarðirnar og byggist á því þegar ríkið yfirtók jarðir kirkjunnar árið 1907. Fjárhagsleg umsvif þjóðkirkjunnar eru rúmir 3,7 milljarðar króna á ári. Þar vega laun presta og sóknargjöld þyngst. Kirkjugarðsgjöldin koma til viðbótar upp á um 850 milljónir en þau eru í raun óviðkomandi þjóð ­ kirkjunni og snúa að rekstri kirkjugarða lands ins, þ.e. rekstri grafreita fyrir landsmenn, og koma ekki inn í rekstur og umsvif kirkjunnar. Ef ríkið ætlar að rifta kirkjujarðasamkomulag­ inu, sem varð að lögum, má búast við stórfelldum málaferlum þar sem ríkið er búið að selja margar þessara kirkjujarða. Þarna yrði þref um jarðir eins og Þingvelli, Garðabæ og Borgarnes. Samkvæmt kirkjujarðasamkomulaginu eign­ aðist ríkið kirkjujarðirnar en samdi um að greiða á móti laun presta, biskupa og prófasta og í kristni­ sjóð og kirkjumálasjóð. Launagreiðslur til þriggja biskupa, um 140 presta og prófasta, auk nokkurra starfs­manna Biskup sstofu, eru á þessu ári tæp lega 1,3 milljarðar króna og greiðslur í helstu sjóð ina rúmlega 600 milljónir króna. Tekjustofnar sjóð anna miðast við ákveðna prósentu til við­ bótar heildarsóknargjöld um til þjóðkirkjunnar. Kristnisjóður, jöfnunarsjóður sókna og kirkju­ TEXTI: INGIBJÖRG BÁRA SVEINSDÓTTIR MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON Fjármál kirkjunnar FJÁRMÁL KIRKJUNNAR Aðskilnaður ríkis og kirkju var mikið í umræðunni í aðdraganda kosninga til stjórnlaga- þings og sögðust margir frambjóðendur vilja aðskilnað. Innan kirkjunnar þótti mönnum þetta svolítið undarlegur málflutningur og bentu á að aðskilnaður ríkis og kirkju hefði endanlega verið staðfestur árið 2006 með lögum og engin fjárhagsleg ágreiningsmál lengur til staðar. AÐSKILNAÐUR RÍKIS OG KIRKJU:

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.