Frjáls verslun - 01.01.2011, Page 70
70 FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011
STJÓRNUN
Langflestirstjórnendureru færir um að eiga góðsamskipti.Ensamskipti geta verið góð
án þess að vera árangursrík.
Hversu vel stjórnendum tekst
til í samskiptum hefur mikil áhrif
á samstarfsfólk, viðskiptavini,
birgja og aðra hagsmunaaðila.
Afkoma fyrirtækja getur þar af
leiðandi ráðist af því hversu vel
stjórnendur nýta árangursríkar
samskiptaleiðir.
Í rannsókn minni kemst ég
að þeirri niðurstöðu að veruleg
tæki færi séu til staðar fyrir íslensk
fyrirtæki að auka árangur og bæta
rekstrarniðurstöðu með skil virkum
og stefnumiðuðum sam skiptum.
Kveikjan að rannsókninni voru
hugleiðingar um hvað raun veru
lega ræður úrslitum varð andi
árangur fyrirtækja. Stjórn unar
reynslatil15árahafðiekkigefið
neitt lokasvar við þeirri spurningu.
Fjölmargar rann sóknir á árangri
fyrirtækja sýna að aðeins tak
markaður hluti þeirra nær þeim
árangri sem stefnt er að, eða
einungis um 1030%.
Jafnframt nær aðeins lítill hluti
að skila viðeigandi arðsemi til
lengri tíma litið. Stjórnendur
hafa tvímælalaust mest áhrif á
hvernig skipulagsheildum er
stýrt og hvaða árangri þær ná
og rannsóknir á árangri stjórn
enda sýna að a.m.k. helmingur
þeirra getur bætt árangur sinn,
jafnvelþegarþeirsjálfireru
spurðir. Þessar staðreyndir
blasa við þrátt fyrir umtals
verðar rannsóknir og þróun á
rekstri og stjórnun, allt frá því á
nítjándu öld.
Stórnendur verja meira en
90% af tíma sínum í samskipti
Rannsóknir Henrys Mintz
bergs á hlutverki stjórnenda,
1973 og 2009, leiddu í ljós að
stjórnend ur verja langstærstum
hluta tíma síns í samskipti, eða
yfir90%.Fleirihafatekiðísama
streng. Því má gera ráð fyrir að
samskipti ráði miklu um ár angur
og staðfest hefur verið með
rannsóknum að tengsl eru
milli samskipta og árangurs.
Má þar nefna dæmi um aukna
fram leiðni og skilvirkni, lægri
kostnað, betri starfsanda, minni
starfs mannaveltu og aukinn
hagnað. Þessar forsendur gerðu
samskipti að áhugaverðu rann
sóknarefni.
Samskiptaleiðir í íslenskum
fyrirtækjum
Rannsóknin var gerð í apríl
2010 og unnin út frá fræðasviði
samskipta í skipulagsheildum
(OrganizationalCommunica
tion) þar sem fyrst og fremst var
horft á samskipti innan skipu
lagsheilda(InternalComm-
unication). Rætt var við for stjóra
og framkvæmdastjóra í sjö
íslenskum fyrirtækjum. Fyrir tækin
starfa í mismunandi atvinnu grein
umogerstarfsmannafjöldiyfir
100 í þeim öllum.
Spurt var um samskipti varð
andi stefnumótun og markmiðs
setningu, kynningu og innleiðingu
stefnu og meginmarkmiða,
starfs anda í samskiptum, ár ang
ursmælingar og markviss sam
skipti. Tilgangurinn var að varpa
ljósi á hvaða leiðir íslenskir
stjórnendur nýta í samskipt
um og hvort um er að ræða
leiðir sem eru árangursríkar.
Mark miðið var að koma auga á
tæki færi fyrir íslensk fyrirtæki til
að auka árangur með skilvirkari
samskiptum.
Áhugaverðar niðurstöður
sem fela í sér tækifæri
Rannsóknin leiddi í ljós að
margt er mjög vel gert í sam
skiptum og ánægjulegt að sjá
hversu vel er staðið að mörgu.
Enguaðsíðurerutækifæritil
að auka árangur og vannýtt
tækifæri eru alltaf áhugaverð.
Þátttakendur voru sammála
um að samskipti hafa mikil áhrif
bæði við mótun, kynningu og
innleiðingu á stefnu og megin
markmiðum. Þeir telja jafn framt
líklegt að hægt sé að bæta
árangur með því að huga frekar
að því hvernig upplýsingum er
safnað og miðlað innan fyrir tækj
anna. Í meirihluta fyrirtækjanna
ríkir starfsandi sem stuð lar að
árangursrí kum samskipt um
og meirihluti þátt takenda velur
áhrifaríkar boð leiðir, eins og
starfs mannafundi, til að koma
mikil vægum skilaboðum um stefnu
og markmið til starfsmanna.
Rétt er að taka fram að úrtakið
í rannsókninni var smátt og því
erekkimögulegtaðyfirfæra
niðurstöðurúrtaksinsyfirá
þýðið í heild sem væri öll fyrir
tækiáÍslandimeðfleirien100
starfsmenn. Niðurstöðurnar
gefa þó engu að síður athyglis
verðar vísbendingar.
Hvernig nýtum við tækifærin?
Tilhneiging er til að líta á árang
ursrík samskipti sem sjálfsagð
an hlut og ekki er óalgengt að
stjórnendur vanmeti hversu
mikil áhrif samskipti geta haft
á árangur. Með markvissari
að ferðum má auka skilvirkni
sam skipta. Það á til dæmis
við þegar skilaboð eru samin,
þegar boðleiðir eru valdar og
skilaboðflutt,viðhlustuneftir
endurgjöf frá starfsmönnum,
við hvatningu og við þjálfun
stjórnenda og starfsmanna.
Tækifærið felst í því að skoða
betur samhengið milli samskipta
ogárangursogáhrifinsem
sam skipti geta haft á árangur
og veita því aukna athygli. Þetta
samhengiogáhrifinmáskýra
með meðfylgjandi mynd.
Eru góð samskipti alltaf árangursrík?
Svo er ekki. Sigrún Þorleifsdóttir, stjórnendaþjálfari og einn eigenda Vendum – stjórn-
endaþjálfunar, rannsakaði innri samskipti og árangursríkar samskiptaleiðir í íslenskum
fyrirtækjum í lokaritgerð sinni til meistaraprófs í stjórnun og stefnumótun.
TEXTI: SIGRÚN ÞORLEIFSDÓTTIR MYND: GEIR ÓLAFSSON
Sigrún Þorleifsdóttir, stjórn enda
þjálfari og einn eigenda Vendum –
stjórnendaþjálfunar.
Fyrirtæki sem vilja
bæta rekstrar niður
stöðu sína með árang
ursríkari samskiptum
þurfa að huga að
þrennu; hæfni stjórn
enda til samskipta,
andrúmsloftinu í
fyrir tækinu og þeirri
athygli sem samskipt
um er veitt.
Stjórnendur hafa til
hneigingu til að tala
meira en þeir hlusta
og fundir verða því
gjarnan í tilkynninga
stíl þar sem stjórnend
ur hafa orðið.