Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2010, Síða 32

Frjáls verslun - 01.03.2010, Síða 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 1 0 N Æ R M Y N D A F S I G R Í Ð I B E N E D I K T S D Ó T T I R S igríður Benediktsdóttir er svo hlédræg að hún veitir ekki við­ töl, nema þá um fræðin sín, sem eru hagfræði. Annað eru hennar einkamál. Frjáls verslun náði að vísu viðtali við hana sum arið 2006 í júníblaðinu um 100 áhrifa mestu konur landsins. Tilefnið var að hún var þá orðin einn af sérfræðingum í alþjóðagjaldeyrisdeild seðlabanka Bandaríkjanna. Sigríður var ekki til í viðtal við Frjálsa verslun vegna rannsóknarskýrslu Alþingis og hún veitir nánast aldrei viðtöl. Við­ talið frá árinu 2006 er eitt af fáum. Þegar rannsóknarnefnd Alþingis var skipuð ráku margir upp stór augu; Sigríður Benediktsdóttir, hagfræðiprófessor við Yale ­háskóla. Hver er hún? Kom strax fyrir á fréttamyndum í sjónvarpi sem skelegg kona. Þegar skýrslan var kynnt sagði Sigríður að stærð bankanna hafa orðið þeim að falli en þeir 20 földuðust á nokkrum árum. Vöxturinn samrýmdist ekki lang tíma­ markmiðum um vöxt banka en vöxt­ urinn einkenndist að mestu af lánum til eignarhaldsfélaga og erlendra aðila, var haft eftir Sigríði. Erlend innlán urðu meginuppistaða fjár magns bankanna eftir að hin svo kall­ aða mini­kreppa reið yfir árið 2006. Sigríður hefur sagt opinberlega að eftir­ litsaðilar eins og fjármálaeftirlitið hefði ekki beitt þeim heimildum sem það hafði til að sporna við stærð bankanna. „Sigríður hefur alltaf lagt á sig það sem þarf til að ná árangri. Þess vegna hefur hún náð þeim árangri sem raun ber vitni,“ segir Haukur C. Benediktsson, hag fræðingur við Seðlabanka Íslands og skóla bróðir Sigríðar bæði í Verslunar skóla num og Háskóla Íslands – alls í sjö ár. Hafnfirðingur Sigríður er úr Hafnarfirði, dóttir Bene­ dikts Guðbjartssonar lögfræðings og Eddu Hermannsdóttur hagfræðings. Sjaldan fellur eplið lagt frá eikinni, segir máltækið og það sannast á Sigríði. Sigríður fór í Verslunarskólann og út skrif­ aðist þaðan stúdent árið 1992 og fór beint í hagfræðinám við Háskóla Íslands og svo í tölvunarfræði – áður en leiðin lá til TEXTI: GÍSLI KRISTJÁNSSON MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON KONA ÚR VERSLÓ Þegar rannsóknarnefnd Alþingis var skipuð ráku margir upp stór augu; Sigríður Bene dikts dóttir, hagfræðiprófessor við Yale-háskóla. Hver er hún? Hún er úr Hafnarfirði og þykir sam viskusöm, rösk og fylgin sér. Hún hefur ekki látið mikið á sér bera utan náms og fræða. Skelegg kona. Með tvær háskólagráður á Íslandi fluttist hún til Bandaríkjanna. Þar bættust við tvær háskólagráður – og á sama tíma eignaðist hún þrjá syni. SKELEGG
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.