Frjáls verslun - 01.03.2010, Blaðsíða 63
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 1 0 63
Mig langaði að prófa að halda samkeppni og fékk til liðs við mig Hönnunar
miðstöð Íslands og samstarfið gekk mjög vel. Keppnin gekk út á að hanna skart
gripasett;
hálsmen, armband, eyrnalokka og hring. Verðlaunahafinn hlaut 500.000
krónur. Auk þess verður línan seld víðs vegar um heiminn í framtíðinni undir
vöru merki mínu og hönnuðarins. Ég sé svo í samráði við hönnuðinn einnig um
þróun vörunnar, framleiðslu, dreifingu og kynningu. Hönnuðurinn fær einnig
umboðsþóknun af sölu.“
Hendrikka segir að keppnin hafi farið fram úr sínum björtustu vonum
en þátttakendur voru rúmlega 120. „Hvað dómnefnd varðar vorum við með
þungavigtarfólk í hönnun og tísku erlendis frá og Íslandi en í dómnefnd sátu
meðal annars Geoffroy Medinger, forstjóri Van Cleef & Arpels í London,
Louise Sherman frá Dargen’t í London, Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður,
Helga Daníelsdóttir frá Leonard og Halla Bogadóttir hjá Kraum.“
María Kristín Jónsdóttir bar sigur úr býtum. „Hún ólst upp á meðal gull
smiða en er með BAgráðu í vöruhönnun frá Listaháskólanum og MApróf
í umhverfis og náttúrusiðfræði við Háskóla Íslands. Skartgripalína hennar
fer í framleiðslu í maí og ég hlakka til að sjá útkomuna. Ég hef trú á Maríu
Kristínu og hún er mjög efnileg. Minn sigur verður að sjá hana sigra.“
Hend rikka hefur aðeins verið að vinna í því að koma íslenskum listamönnum
á framfæri erlendis. „Ég er svona rétt að byrja aftur. Mér finnst þetta mjög
skemmti legt og netatengslin mín í dag gera þetta mér auðveldara fyrir en áður.“
Hendrikka er umboðsaðili fyrir listamennina Laufeyju Johansen og
Parelius. „Þetta eru mjög ólíkir listamenn en ég trúi á það sem þau eru að
gera.“
KIDS PARLIAMENT
Hendrikka var með erlendum vinum sínum á Þingvöllum árið 2008 þar sem
hún var meðal annars að sýna þeim staðinn þar sem Alþingi var stofnað. Þessir
vinir hennar eru félagar í ýmsum góðgerðarsamtökum og fékk hópurinn hug
myndina að Kids Parliament. Um er að ræða alþjóðleg góðgerðarsamtök sem
eru með höfuðstöðvar í Vín.
„Tilgangurinn er að skapa heim þar sem börn vilja búa og þar sem allir hafa
sömu tækifæri án mismunar til kynþátta eða trúarbragða. Samtökin vilja styrkja
börn til menntunar og munu þau einnig styðja við bakið á fjöl fötl uð um börnum
og unglingum. Við einblínum meðal annars mikið á menntun barna, jafnrétti
kvenna í þróunarlöndunum, frumkvöðlastarfsemi og listsköpun. Mennt un er
grund vallaratriði.“
Formleg starfsemi samtakanna hefst í haust. „Við erum búin að fá yndi
slega gott fólk með okkur sem hefur starfað að mannréttindum svo sem Betty
Willi ams, Nóbelsverðlaunahafa frá NorðurÍrlandi, Kerry Kennedy frá New
York, Dalai Lama, Bibi Russel frá Bangladesh, Gunter Pauli frá Belgíu og Rabbi
David Rosen frá Jerúsalem.
A. Fjallað hefur verið um skartgripi Hendrikku í mörgum þekktustu tímaritunum.
B. Úr barnalínu Hendrikku Waage.
C. Teikningar Maríu Kristínar Jónsdóttur sem sigraði í skartgripasamkeppninni.
D. Kokteilpinnar úr silfri og tré sem Hendrikka hannaði fyrir Víkingaheima Einars
Bárðarsonar. Línan kallast ,,Designing my culture“ og í henni má finna ýmsa
nytjahluti sem tengjast víkingaarfleifðinni.
C
D
H Ö N N U N
„Það er búin að vera svo mikil gróska í skartgripahönnun á Íslandi undanfarið og ég vildi
endilega efla þá nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi.“
Hendrikka og sigurvegari skartgripa sam keppn
innar, María Kristín Jónsdóttir.