Frjáls verslun - 01.03.2010, Page 82
82 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 1 0
JÓN TRAUSTI ÓLAFSSON
framkvæmdastjóri Öskju
H
inn 1. apríl hóf ég störf sem fram
kvæmdastjóri Bílaumboðsins Öskju
sem er umboðsaðili fyrir Merc
edesBenz og KIA á Íslandi. Ég hef
starfað í rúman áratug í bílageiranum og
komið að markaðsmálum, sölumálum og
þjónustumálum þannig að bakgrunnur
minn liggur í bílunum. Hjá Öskju eru
mörg spennandi verkefni framundan –
við erum um 50 starfsmenn félagsins og
leggjum okkur alla daga fram um að veita
bíleigendum MercedesBenz og KIA sem
besta þjónustu. Þessi tvö merki eru mér
afar hugleikin, MercedesBenz hefur
um árabil verið fremsti bílaframleiðandi
heims og skartar breiðri lúxusbílalínu og
í atvinnubílum er enginn þeim fremri.
KIA er rísandi stjarna í bílaheiminum.
Undanfarin ár hefur átt sér stað bylting
í framleiðslu þeirra og þeir eiga nú eina
fullkomnustu bílaverksmiðju í Evrópu sem
er í Slóvakíu. Allir KIA bílar koma með
sjö ára ábyrgð og það verður krefjandi
og skemmtilegt verkefni að byggja það
vörumerki upp á næstu misserum.“
Eigin kona Jóns Trausta er Edda Björk
Kristjánsdóttir sem starfar hjá Practical
viðburðafyrirtækinu en þau eiga saman
þrjú börn og búa í Garðabæ. „Í vetur hef
ég samhliða vinnu stundað MBAnám við
Háskólann í Reykjavík. Það hefur verið
krefj andi verkefni en um leið er ákaflega
gott að endurnýja sjálfan sig með því að
vinna hagnýt verkefni og kynnast um leið
frábærum hópi nemenda á ólíkum stöðum
í atvinnulífinu. Og það er ekki síst þessi
tengsl við samnemendur mína, sem koma
alls staðar frá, sem þú tekur með þér úr
MBAnáminu út í atvinnulífið.“
Jón Trausti segir að í fríum reyni fjöl
skyld an gjarnan að eyða tíma sínum sam an
við úti vist, hestamennsku og fleira í sumar
bústað tengdaforeldranna í Borgar firði.
„Okkur þykir gott að ferðast um landið
og notum helgarnar á sumrin eins og
við getum til þess. Öðru hverju næ ég
að skjótast í veiði og hefur veiðiáhuginn
stigmagnast hjá mér með bættum búnaði
en eiginkona mín hefur verið dugleg að
græja mig upp undan farin ár og hefur
veiðimennskan því orðið betri og betri –
ég tel þó enn á fingrum annarrar handar
laxana sem ég hef landað en það horfir
vonandi til betri vegar.“
Nafn: Jón Trausti Ólafsson.
Fæðingarstaður: Akranesi, 9.
maí 1974.
Foreldrar: Ólafur Óskarsson og
Kristný Lóa Traustadóttir.
Maki: Edda Björk Kristjánsdóttir.
Börn: Arnar Ingi 12 ára, Dilja Björk
13 ára og Hildur Karitas 4 ára.
Menntun: Viðskiptafræðingur frá
Bifröst. Stundar nú MBA-nám við
Háskólann í Reykjavík.
Jón Trausti
Ólafsson: „Öðru
hverju næ ég
að skjótast í
veiði og hefur
veiðiáhuginn
stigmagnast
hjá mér með
bættum búnaði
en eiginkona
mín hefur verið
dugleg að græja
mig upp undan
farin ár.“
Fólk