Frjáls verslun - 01.01.2008, Blaðsíða 132
Lífsstíll
132 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 8
kvikmyndir:
hiLmar karLsson
Ekki kemur til greina að láta
eyða fóstrinu, heldur ákveður
Juno að eiga barnið og að hafa
sjálf stjórn á öllu ferlinu í samráði
við Leah vinkonu sína. Hún til
kynnir furðu lostnum foreldrum
sínum ástand sitt og segir þeim
að hafa engar áhyggjur, hún
ásamt vinkonu sinni ætli að velja
foreldra fyrir barnið. Juno sér
auglýsingu í dagblaði frá ungum
hjónum sem auglýsa eftir barni.
Þau eru forrík og virðast tilvaldir
foreldrar og eftir að Juno hefur
heimsótt þau er hún hæstánægð
með valið.
Juno hafði ekkert haft fyrir því
að láta Bleeker vita um að hún sé
ófrísk eftir hann, en að sjálfsögðu
kemst hann að ástandi hennar og
lítur ekki sömu augum og hún á
málið og má segja að vandamálin
hrannist upp, ekki síst vegna þess
að Juno er því marki brennd að
vera símalandi og með skoðanir
á öllu en meinar ekki alltaf það
sem hún segir.
Stjarna er fædd
Það er enginn sem efast um
að miklar vinsældir Juno er að
stórum hluta að þakka hinni
ungu leikkonu, Ellen Page.
Það geislar af henni í hlutverki
Juno og enginn er ósnortinn
af frábærum leik hennar. Þekkt
ari leikarar eru í öðrum hlut
verkum, Jennifer Garner og
Jason Bateman leika tilvonandi
foreldra og í hlutverkum foreldra
Juno eru kunnugleg andlit úr
sjónvarpinu, J.K. Simmons (Law
and Order, Closer) og Allison
Janney (The West Wing).
Ellen Page er aðeins eldri en
Juno. Hún er kanadísk, fædd
21. febrúar 1987 í Halifax, þar
sem hún ólst upp. Hún fór að
leika strax á barnsaldri og tíu
ára gömul var hún komin með
S
tundum gerist það
vestan hafs að ódýrar
gæðakvikmyndir, sem
fyrirfram vekja litla
athygli, slá í gegn. Það
er ekki algengt, fyrst og fremst
vegna þess að markaðssetning
er lítil þegar miðað er við þær
kvikmyndir sem „eiga að slá í
gegn“. Og eins og flestir vita
sem fylgjast með kaupunum á
eyrinni í Hollywood þá eiga allir
erfitt uppdráttar sem ekki eru
í náðinni hjá stóru kvikmynda
fyrirtækjunum eða eru daglegir
gestir á síðum slúðurblaða. Ein
af undantekningunum er Juno,
kvikmynd sem frumsýnd var á
almennum markaði í byrjun des
ember og hefur hægt og sígandi
verið að nálgast toppinn hvað
varðar aðsókn og náði að verða
næstmest sótta kvikmyndin eina
vikuna í janúar þrátt fyrir að
vera sýnd í helmingi færri sýn
ingarsölum en flestar þær kvik
myndir sem hún keppti við um
aðsókn.
Allt frá því Juno var fyrst
sýnd á kvikmyndahátíðinni í
Toronto í september í fyrra hefur
hún verið lofuð af kvikmynda
gagnrýnendum sem og dóm
nefndum á kvikmyndahátíðum
og hefur hún þegar unnið til
fjölda verðlauna og er tilnefnd
til nokkurra óskarsverðlauna.
Flestir eru á því að Juno sé að
því leyti lík Little Miss Suns
hine, sem sló óvænt í gegn í
fyrra, að öllum líður vel eftir að
hafa séð myndina.
Ung og ófrísk
Juno er sextán ára skólastelpa
sem leiðist og ákveður að kanna
leyndardóma lífsins og fær skóla
félaga sinn og jafnaldra, Bleeker,
til að fara í rúmið með sér. Juno
er ekkert sérstaklega hrifin af
Bleeker, en líkar vel við hann og
telur hann vera besta kostinn.
Nánara samband á milli þeirra er
ekki í spilunum hjá Juno og lífið
heldur áfram sinn vanagang, allt
þar til Juno uppgötvar að hún
er ófrísk.
Juno
Kvikmynd sem lætur öllum líða vel
er góð kvikmynd. Juno kallar fram
slíka vellíðan, er margverðlaunuð
og á mikilli sigurför.
Vinkonurnar Juno (Ellen Page) og Leah (Olivia Thirlby) ræða framtíð barnsins sem Juno gengur með.