Frjáls verslun - 01.07.2008, Page 8
KYNNING8 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 8
Gunnar Valur Gíslason,
forstjóri Eyktar, fyrir framan
turninn á Höfðatorgi sem
verið er að byggja.
H
öfðatorg er eitt stærsta og metnaðarfyllsta uppbygg-
ingarverkefnið í miðborg Reykjavíkur. Þar eru uppi
áform um að flétta saman mannlíf, viðskipti, list og
menningarstarfsemi með nýstárlegum hætti og skapa
nýtt og glæsilegt kennileiti í borginni.
Höfðatorg rís á reit sem afmarkast af Borgartúni, Skúlatúni,
Skúlagötu og Höfðatúni og við þróunarvinnuna voru farnar nýstár-
legar leiðir. „Við lögðum strax áherslu á að við ætluðum ekki að móta
venjulegt byggingarverkefni. Við ætluðum með hugmyndafræði
og víðtækri þekkingu erlendra aðila á þessu sviði að búa til svæði
sem yrði vörumerki fyrir Reykjavík, tákn um skýra framtíðarsýn og
myndi skipa sér í flokk eftirsóttustu viðkomustaða borgarinnar,“ segir
Gunnar Valur Gíslason, forstjóri Eyktar sem sér um framkvæmd
verkefnisins.
Hugmyndafræði og þróun vörumerkis
Frá upphafi var áhersla lögð á að öðlast skýra sýn á svæðið í heild og
hlutverk þess í borgarmyndinni. „Þegar við keyptum lóðirnar 2005
var strax hafist handa við að endurskipuleggja svæðið í ljósi nýrra
möguleika. Við leituðum til arkitektanna Léon Wohlhage og Wernik
í Berlín, sem unnu frábæra vinnu við mótun hugmyndafræði fyrir
Höfðatorg í samstarfi við þýska hönnunarfyrirtækið MetaDesign,
sem meðal annars hefur þróað vörumerki Volkswagen, Audi og
Lufthansa, og Pálmar Kristmundsson, sem er okkar aðalarkitekt að
byggingum á Höfðatorgi. Þannig fáum við þaulhugsaða byggð sem
tekur markaðsþáttinn inn í hönnunarferlið frá fyrsta degi.“
Nýjar áherslur
Gunnar Valur segir að starfsmenn MetaDesign sem komu hingað
2006 hafi komið með ferskan andvara í hugmyndavinnu sem byggð
er á ákveðnum fræðum og er nýstárleg fyrir þá sem starfa í bygging-
arbransanum hér á landi. Þegar hugmyndavinnan var tilbúin var farið
að huga að markaðsmálum og grunnhönnun bygginganna.
„Vinnubrögðin við uppbyggingu á Höfðatorgsreitnum hafa alls
ekki verið eins og algengt er hjá okkur Íslendingum þar sem byrjað er
að teikna hús og síðan hugsað út í hver og hvað passar í húsið. Eftir
ársvinnu í undirbúning og hugmyndavinnu fékk arkitektinn skýrar
línur um ímynd og markaðsstefnu sem ræður miklu um endanlega
hönnun sjálfra bygginganna. Þetta ferli er ekki bara nýtt fyrir okkur
heldur einnig fyrir hönnuðina. En hafi verið einhver efi í hugum
manna hvað varðar þessa aðferð þá er sá efi ekki til lengur til þar sem
allt sem ráðist hefur verið í virkar mjög vel.“
Miðstöð mannlífs
Sem hluti af miðborg Reykjavíkur kemur Höfðatorg til móts við þá
sem vilja búa miðsvæðis í nýju og vönduðu húsnæði og hafa ánægju
af iðandi mannlífi. Um leið kemur Höfðatorg til móts við þá sem
vilja aðeins það besta sem nútíma byggingarlist hefur að bjóða. Íbúðir
NÝJAR LEIÐIR, AUKIÐ VIRÐI