Frjáls verslun - 01.07.2008, Blaðsíða 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 8
Forsíðu grein SPROTAFYRIRTÆKI
Hugbúnaðarfyrirtækið AGR á upphaf sitt í Háskóla Íslands. Það er sprotafyrirtæki sem þróaðist út úr tveimur rannsóknarverk-efnum. Bestun er lykilorðið í starfsemi félagsins, sem nú er um
það bil að leggja í útrás.
AGR er hljómgóð skammstöfun fyrir fræði-
heitið „aðgerðagreining“. Fyrirtæki sem ætlar sér
stóran hlut á markaði getur ekki heitið Aðgerða-
greining hf. Það er of þungt nafn og alveg ósegj-
anlegt fyrir útlendinga. AGR hljómar hins vegar
alþjóðlega!
Upphaflega voru þetta tvö lítil fyrirtæki –
Bestun og ráðgjöf og Mímisbrunnur. Þau urðu til
skömmu fyrir aldamótin vegna tveggja rannsókn-
arverkefna um bestun; annað var í sjávarútvegi og hitt í vörudreifingu.
Síðan voru félögin sameinuð og tóku þá fyrir sem höfuðviðfangsefni
bestun við innkaup hjá Húsasmiðjunni og hjá Baugi, það er þeim
hluta sem nú heitir Aðföng.
Haukur Hannesson, framkvæmdastjóri hjá AGR, segir að fyr-
irtækið sé enn nátengt háskólastarfi. Fimm starfsmenn eru einnig við
kennslu í Háskólanum í Reykjavík og nemendur hafa unnið loka-
prófsverkefni hjá AGR. Núna vinna tíu manns hjá AGR.
„Við treystum í upphafi mest á fjárfesta til að afla þróunarfjár,“
segir Haukur. „Hin síðari ár höfum við getað treyst meira á fé úr eigin
rekstri, auk bankalána og styrkja frá Rannís.“
Aðalsöluvara AGR er forrit sem heitir AGR Innkaup. Það er inn-
kaupa- og birgðastýringarkerfi, sem á að draga úr birgðakostnaði hjá
fyrirtækjum með minna birgðahaldi og nákvæmari söluspám.
„Við nýtum okkur gögn sem eru til um söluna og notum þau til
að gera söluspár og sem eru síðan nýttar við útreikning innkaupa-
tillagna,“ segir Haukur um þróun AGR Innkaupa. Þetta er forrit
sem nýtist stærri verslunum og heildsölum á íslenska markaðnum.
Haukur segir að forritið skili fyrirtækjunum arði ef 50 milljónir eða
meira eru í birgðum.
„Þetta á við um 40 til 50 fyrirtæki á Íslandi,“ segir Haukur. Staðan
er núna sú að það er búið að metta íslenska markaðinn. Það eru fáir
eftir sem gætu nýtt sér forritið. Þá er að leita á erlend mið.
Bestunarkerfi af þessu tagi eru ekki ný. Flest stórfyrirtæki heims-
ins hafa yfir slíkum kerfum að ráða. Vandinn er hins vegar sá að
þær lausnir eru of dýrar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Fyrirtæki á
íslenska markaðnum eru smá í samanburði við þessi stórfyrirtæki.
Þarna er sylla að setjast á. Þeir hjá AGR hafa búið til lítið birgða-
stýrikerfi, sem notar venjulegan tölvubúnað og skilar arði þótt veltan
á lagernum sé lítil á heimsmælikvarða. Haukur segir að lausn ARG
kosti bara tíunda hluta af því sem stór, erlend kerfi kosta.
Og nú á að fara með AGR Innkaup í útrás. Úti í hinum stóra
heimi eru ekki bara risar. Þar eru líka lítil fyrirtæki. Núna er búið að
opna skrifstofur í Bretlandi og Danmörku. Og forritið frá AGR hefur
fengið gullvottun Microsoft. Endursöluaðilar
Microsoft í Bretlandi mæla með forritinu. Þetta
er forsenda þess að komast inn á markaðinn. Nú
þegar er allt að 40 prósent sölunnar í útlöndum.
Jafnframt er unnið að fleiri lausnum hjá AGR á
þessu sama sviði.
Haukur segir að fyrirtækið hefði átt að leggja
fyrr í útrás. Markaðurinn í öðrum löndum er
meiri en þeir hjá AGR héldu. Það vantar birgða-
stýringarkerfi af þessari stærð.
„Það er gott að þróa svona viðskiptalausnir í íslesnku umhverfi og
með íslenskum viðskiptavinum áður en farið er í útrás,“ segir Haukur
um reynsluna af þróun AGR. „Boðleiðir á Íslandi eru stuttar og sam-
vinnan við fyrirtækin því auðveldari en ella.“
AGR
vA ldIR S PRO TA R
Haukur Hannesson, framkvæmdastjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu AGR:
Í úTRÁS MeÐ ÍSLeNSKA
BIRgÐASTýRINgU
Haukur Hannesson hjá hugbúnaðarfyrirtækinu AGR.
Bestunarkerfi af
þessu tagi eru ekki ný.
Flest stórfyrirtæki
heimsins hafa yfir
slíkum kerfum að ráða.