Frjáls verslun - 01.07.2008, Page 67
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 8 67
Þórmundur Jónatansson, deildarstjóri markaðsdeildar:
„Í hátíðisdagaauglýsingunni í tilefni af frídegi verslunar-
manna var atriði úr hinni geysivinsælu kvikmynd Ágústs
Guðmundssonar „Með allt á hreinu“ endurskapað. Í henni
túlkar Ólafur Egill Egilsson leikari föður sinn, Egil Ólafsson,
og Bryndís Jakobsdóttir tónlistarmaður var fengin til að
feta í fótspor móður sinnar, Ragnhildar Gísladóttur. Bryndís
Sveinbjörnsdóttir lék móður sína, Herdísi Hallvarðsdóttur,
og dætur Ásgeirs Óskarssonar, þær Margrét og Hrafnhildur,
léku hinar Grýlurnar; Lindu Björk Hreiðarsdóttur og Ingu Rún
Pálmadóttur. Þá var hin vinsæla hljómsveit Sprengjuhöllin
fengin til að túlka aðra meðlimi hljómsveitarinnar
Stuðmanna.“
Á hvað lögðuð þið mesta áherslu?
„Eins og í öðrum auglýsingum í hádegisdagaseríu
Landsbankans var mikil alúð lögð við leikmynd, búninga og
leikmuni þannig að okkur tækist að fanga tíðarandann og
að auglýsingin væri trú fyrirmyndinni. Fyrir hana var sviðið
á Þjóðhátíð í Eyjum endursmíðað og fengnir voru að láni
upprunalegir búningar og lúðrasveitarhúfur sem Grýlurnar
og Stuðmenn klæddust í myndinni. Þar lék Helga I.
Stefánsdóttir búninga- og leikmyndahönnuður stórt hlutverk
en hún starfar í markaðsdeild bankans.“
Hvernig varð þessi hugmynd til og til hvaða hóps er
bankinn að höfða?
„Það hefur skapast sú hefð hjá Landsbankanum að óska
landsmönnum til hamingju á tíu helstu hátíðisdögum lands-
ins. Þetta eru hreinar ímyndarauglýsingar og eiga að höfða
til allrar þjóðarinnar. Þær eru allar þjóðlegar og lykilgildi
þeirra er virðing fyrir ólíkum samfélagshópum, menningu og
listum og þjóðlegum gildum. Þær eiga að undirstrika stöðu
Landsbankans sem banka allra landsmanna og víðtækan
stuðning bankans við íslenska menningu og samfélag.
Frumhugmyndin varð til hjá góðu fólki og handritið þróað í
náinni samvinnu við markaðsdeild Landsbankans og Eggert
Þór Bernharðsson, sögulegan ráðgjafa. Svo kom auðvitað
ekkert annað til greina en að fá Ara Magg og hans fólk til
þess að taka myndirnar.“
Heitustu
sumar-
auglýsingarnar
Verslunarmenn,
til hamingju með daginn.
Landsbankinn - Frídagur verslunarmanna