Frjáls verslun - 01.07.2008, Page 103
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 8 103
fótbolti:
ákvEðin listgrEin
Fótbolti er aðaláhugamál Sveins Andra Sveinssonar
lögmanns. Hann æfði með Breiðabliki á yngri árum
en þar sem hann meiddist á hné á námsárunum í
lögfræðinni lætur hann sér nægja að fylgjast með.
„Það er lykilatriði að eiga áhugamál til að hafa að
einhverju að hverfa og til að dreifa huganum. Það
gefur lífinu ákveðna fyllingu.“
Sveinn Andri segir að fótbolti sé meira en íþrótt.
„Þetta er ákveðin listgrein. Ef horft er á eðalfótbolta,
þá er þetta list. Þá fylgja ákveðnar tilfinningar
og hughrif fótboltanum þegar maður fylgist
með sínum mönnum.“ Þess má geta að
Sveinn Andri heldur með Fram í dag en
hann var í stjórn félagsins í nokkur ár.
„Fótbolti er „íþróttin“ – með
ákveðnum greini. Þetta er vinsælasta
íþrótt í heimi og það eru ákveðnir töfrar við
hana.“
Hrönn Sveinsdóttir: „Mér finnst alltaf notalegt að koma til
Kaupmannahafnar; það er eins og að koma heim. Borgin er
frekar lítil, umferðin ekki mikil og Danirnir rólegir eða „ligeglad“.“
Uppáhaldsborgin:
Hvíld frá daglEgu amstri
Kaupmannahöfn er uppáhalds-
borg Hrannar Sveinsdóttur,
framkvæmdastjóra fjár-
málasviðs Vodafone. Hún og
eiginmaðurinn, Bergsveinn
Sampsted, fara þangað reglu-
lega og gista þá yfirleitt á Skt.
Petri. Stundum fara synirnir
þrír með.
„Mér finnst alltaf
notalegt að koma til
Kaupmannahafnar; það er
eins og að koma heim. Borgin
er frekar lítil, umferðin ekki
mikil og danirnir rólegir eða
„ligeglad“.“
Strigaskórnir eru alltaf í
ferðatöskunni en hjónin ganga
alltaf mikið í útlöndum. „Við
löbbum út í eitt en höngum
lítið í búðum. Við förum meðal
annars á kaffihús í Nýhöfn,
göngum út á Amager og förum
í garða þar sem íbúar borg-
arinnar koma saman.“
Hrönn þarf stundum að
fara til útlanda á vegum vinnu-
nnar en með eiginmanninum
og sonunum fer hún yfirleitt
árlega í eina skíðaferð, eina
golfferð og eina borgarferð.
Eitt árið fóru hjónin þó fjórum
sinnum til Kaupmannahafnar.
„Það er hvíld frá þessu
daglega amstri að fara
til útlanda og skipta um
umhverfi. Það er ekki mesta
hvíldin að ganga mikið eins
og við gerum, en þó gerum
við ekki það sama og dags
daglega. Þá er gaman að upp-
lifa nýja staði með börnunum
og sjá nýja hluti. Mér finnst
nauðsynlegt fyrir Íslendinga að
fara til útlanda þar sem vet-
urnir hér eru þungir og kaldir.“
Sveinn Andri Sveinsson. „Þetta er ákveðin listgrein.
Ef horft er á eðalfótbolta, þá er þetta list.“