Frjáls verslun - 01.09.2009, Qupperneq 16
Fyrst þetta...
16 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9
Í
tilefni 70 ára afmælis EJS
í ár hefur verið komið upp
sýningu í verslun fyrir-
tækisins að Grensásvegi
10, Reykjavík, undir yfirskriftinni:
EJS 70 ára. Þar má sjá skrif-
stofuvélar allt frá árinu 1920
til dagsins í dag. Helgi Þór
Guðmundsson, fyrrum eigandi
og starfsmaður, á heiðurinn af
sýningunni.
Þann 11. september síð-
astliðinn færði Helgi Þór EJS
einnig að gjöf fyrstu verkbeiðni
fyrirtækisins, en þá voru
nákvæmlega 70 ár síðan fyrsta
verkbeiðnin var skráð hjá fyrir-
tækinu sem þá bar heitið Einar
J. Skúlason í höfuðið á stofn-
anda þess.
Einar J. Skúlason fæddist
13. janúar 1918. Árið 1937
fór hann til Kaupmannahafnar
til náms í viðgerðum á skrif-
stofuvélum og síðar til Svíþjóðar
á kynningu í viðgerðum á skot-
vopnum. Árið 1939 sneri Einar
aftur til Íslands og stofnaði fyrir-
tæki í kjallara að Veltusundi 1 í
Reykjavík.
Á fimmta áratugnum flutti
Einar fyrirtækið í Bröttugötu 3b
og árið 1963 að Hverfisgötu
89. Árið 1986 flutti fyrirtækið
í nýbyggingu á Grensásvegi 10
þar sem það er enn til húsa,
auk þess að vera með starf-
semi á Grensásvegi 8 og útibú
á Tryggvabraut 10 á Akureyri.
Starfsemi Einars J.
Skúlasonar fólst framan af í
viðgerðum á skrifstofutækjum,
saumavélum og öðrum smærri
tækjum. Eftir að hann flutti í
Bröttugötu hóf hann sölu á skrif-
stofuvélum, hinum svissnesku
Precisa reiknivélum og Hermes
ritvélum. Fljótlega bættust við
fleiri vörumerki sem áttu eftir
að fylgja fyrirtækinu um langa
hríð. Árið 1956 hóf fyrirtækið
að selja Triumph ritvélar, Sweda
búðarkassa og Kienzle bók-
haldsvélar.
Árið 1984 gerði fyrirtækið
samning við bankastofnanir um
tölvuvæðingu afgreiðslustaða
bankanna. Kerfið var mikið að
umfangi, 130 miðlægar tölvur
frá Kienzle, 500 vinnustöðvar
fyrir gjaldkera og 600 afgreiðslu-
skjáir fyrir gagnaskráningu og
upplýsingagjöf. Þetta var eitt
stærsta tölvukerfi á landinu,
enda notað í bankaafgreiðslu
um land allt.
Árið 1986 hófst almenn
sala á PC tölvum (einmenn-
ingstölvum) frá Victor, fljótlega
bættust AST tölvurnar í hópinn
og árið 1998 fékk EJS umboðið
fyrir tölvur frá DELL. Vinsældir
DELL hafa aukist ár frá ári og
traustið sem landsmenn bera
til DELL endurspeglast í þeim
fjölda fyrirtækja og einstaklinga
sem nota DELL. Í dag er EJS í
eigu Teymis.
Starfsmenn EJS fagna 70 ára afmæli fyrirtækisins á þessu ári.
EJS 70 ára
Þann 1. október sl. sam-
einaðist Formfast ehf.
Prentsmiðjunni Odda.
Formfast var stofnað árið
2006 og hefur sérhæft sig
í formhönnun, framleiðslu
á umbúðum úr kartoni og
bylgjupappa. Fyrirtækið hefur
meðal annars sérframleitt
umbúðir í litlu upplagi og vöru-
standa. Meðal viðskiptavina
þess hafa verið hönnuðir,
auglýsingastofur og ýmis fram-
leiðslufyrirtæki. Með sam-
einingu fyrirtækjanna bætist
umbúðaráðgjöf er varðar form-
hönnun við vöru- og þjónustuval
Odda.
Jón Ómar Erlingsson (til vinstri) býður Snorra Má Snorrason
frá Formfast (til hægri) velkominn til starfa.
Formfast sameinast Odda
Við erum með Kaffitár
á okkar könnu
Kaffitár er ört vaxandi fyrirtæki sem þarf að samþætta innkaup sín hjá kaffibændum
í Afríku og Suður Ameríku, framleiðsluna í Reykjanesbæ og rekstur átta kaffihúsa.
Þess vegna á Kaffitár mikið undir því að tölvu- og upplýsingakerfi fyrirtækisins sé
öruggt, hagkvæmt og þægilegt í notkun.
Skyggnir sérhæfir sig í hönnun og rekstri tölvu- og samskiptalausna sem lækka
kostnað og bæta eiginleika upplýsingakerfa. Við höfum á annað hundrað
sérfræðinga á okkar snærum og þjónustumiðstöð sem opin er allan sólarhringinn.
Eitt af fjölmörgum fyrirtækjum sem treysta
Skyggni fyrir rekstri tölvukerfa sinna
Urðarhvarf 6 203 Kópavogur Sími 516 1000 skyggnir.is
Skyggnir sérhæfir sig í hönnun, uppsetningu og rekstri tölvu-
og samskiptalausna. Fyrirtækið er hluti af Nýherjasamstæðunni.
· Kerfisrekstur
· Rekstur miðlægs búnaðar
· Ruslpóstvarnir
· Vírusvarnir
· Öryggismál
· Notendaaðstoð
· Afritun
· Gagnageymsla
· Vefhýsing