Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2009, Side 22

Frjáls verslun - 01.09.2009, Side 22
22 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 „Að stærsta hugbúnaðarfyrirtæki í heimi komi hingað til Íslands þegar það vill efla hugbúnaðarlausnir sínar, sýnir að við erum fyllilega samkeppnishæf á alþjóðavett- vangi. Hugvitið er ein mikilvægasta auðlind Íslendinga þegar horft er til framtíðar og við vonum að þessi viðskipti okkar og Microsoft verði hvatning fyrir alla sem starfa í upp- lýsingatækni á Íslandi,“ segir Gunnar Björn Gunnarsson, framkvæmdastjóri hugbúnaðar- fyrirtækisins LS Retail. Nýlega var tilkynnt að Microsoft hefði keypt hugbúnaðarlausnina LS Retail Ax, sem LS Retail hefur þróað. Microsoft fær eignarrétt á lausninni og mun bæta henni við viðskiptahugbúnaðinn Microsoft Dynamics Ax. Þetta er ein verðmætasta hugbúnaðarsala í sögu Íslands. Það kemur ekki á óvart að Microsoft hafi leitað til LS Retail þegar tölvurisinn vildi efla Dynamics Ax. Þróun og sala LS Retail- hugbúnaðarins hefur verið samfelld í nær tvo áratugi og á þeim tíma hefur náðst yfir- burða markaðshlutdeild á smásölulausnum sem byggja á Microsoft Dynamics á heims- vísu. Lausnir LS Retail eru notaðar hjá yfir 1.400 fyrirtækjum, í 26.000 verslunum og á 53.000 afgreiðslukössum um allan heim. LS Retail hefur að auki fengið inngöngu í „Inner circle“ hóp Microsoft, en þangað komast einungis 1% af verðmætustu sam- starfsaðilum fyrirtækisins. „LS Retail Ax er ein þriggja meginlausna sem við höfum þróað, en hinar eru LS Retail NAV og LS POS .NET. LS Retail mun eftir sem áður eiga og selja síðarnefndu lausn- irnar tvær auk þess að halda áfram að vinna í sérútfærslum fyrir Ax lausnina sem seld var til Microsoft, bjóða þjónustu tengda henni og veita fræðslu fyrir markaðinn,“ segir Gunnar Björn. „Þessi sala opnar því ýmsar dyr og eflir stöðu fyrirtækisins á alþjóðavettvangi.“ Microsoft kaupir íslenska hugbúnaðarlausn af LS retail Hvatning fyrir alla sem starfa í hugbúnaðarþróun, segir Gunnar Björn Gunnarsson, framkvæmdastjóri LS Retail Húsgögn plús hugvit Verið velkomin í sýningarsal okkar í Hallarmúla 4 og Hafnarstræti 93 á Akureyri. Fáðu nánari upplýsingar og ráðgjöf í síma 540 2000 eða sendu fyrirspurn á netfangið husgogn@penninn.is FANSA Plús er nýja línan í íslensku FANSA-skrifstofuhúsgögnunum Mikil áhersla er lögð á að allar einingar falli vel saman og þannig eru möguleikar á uppröðun ótalmargir og alltaf smekklegir, hvort sem skrif stofuhúsnæðið er lítið eða stórt. Húsgögnin eru hönnuð af Valdimari Harðarsyni arkitekt. Sérstakur kynningarafsláttur af nýju FANSA Plús línunni gildir til 30. nóvember. www.penninn.is Gunnar Björn Gunnarsson, framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins LS Retail. Sveinn Áki Lúðvíksson, sölustjóri LS Retail.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.