Frjáls verslun - 01.09.2009, Qupperneq 36
KYNNING36 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9
H
undrað ár eru liðin frá því að fyrsti Michelsen úrsmið-
urinn, J. Frank Michelsen, stofnaði fyrirtæki með úr
og skartgripi á Sauðárkróki. Michelsen hafði verið
í föruneyti Friðriks VIII konungs Danmerkur sem
kom í opinbera heimsókn 1907 og ílenst hér á
landi. Einn sona hans, Franch Michelsen
úrsmíðameistari, lærði úrsmíði hjá föður
sínum og fór að því búnu til frekara
náms til Danmerkur árið 1937. Að námi
loknu starfaði hann hjá Carli Jonsén,
konunglegum hirðúrsmið í Kaupmanna-
höfn. Er Þjóðverjar hertóku Danmörku
1940 hélt hann heim til Íslands og árið
1943 opnaði hann verslun í Reykjavík,
samhliða úrsmíðastofunni á Sauðárkróki.
Verslanirnar sameinuðust árið 1946 er J.
Frank fluttist til Reykjavíkur. Störfuðu
Michelsen-feðgarnir saman þar til J. Frank féll frá árið 1954. Þriðji
ættliðurinn, Frank Ú. Michelsen úrsmíðameistari, hóf nám hjá föður
sínum og lauk námi hjá WOSTEP í Sviss árið 1978, fyrstur
Íslendinga. Að námi loknu sneri hann heim og starfaði við
hlið föður síns og keypti fjölskyldufyrirtækið á 90 ára
afmæli þess, árið 1999. Fjórði ættliðurinn, Róbert F.
Michelsen, útskrifaðist í maí eftir strangt tveggja
ára úrsmíðanám hjá WOSTEP í Sviss með hæstu
einkunn, efstur í skólanum. Róbert gat sýnt afa
sínum lokaverkefni sitt áður en hann lést í hárri elli,
95 ára gamall í júní sl.
Verslunin breytir um nafn
Alla tíð hefur aðaláhersla og metnaður Michelsen
úrsmiðanna verið framsækni og vönduð vinnubrögð
sem skilar sér í því góða orðspori sem af þeim fer. Þeir eru
virtir fyrir fagmennsku í verslun sinni, sem og á úrsmíða-
vinnustofunni. Verslunin er til húsa að Laugavegi
15. Þegar blaðamann bar að garði eru feðgarnir
Frank og Róbert við morgunstörf í versluninni og
Frank sýnir blaðamanni nokkur Rolex-úr sem eru stolt fyrirtækisins
en Michelsen er einkaumboðsaðili hér á landi fyrir Rolex-úr sem eru
í hágæðaflokki og fer þar saman meistarasmíð og glæsileg hönnun.
Ekki er hægt að reka verslun hér á landi sem eingöngu selur Rolex,
til þess er þjóðin of lítil og því býður verslunin upp á fleiri gerðir úra
í öllum verðflokkum. Þá býður verslunin
einnig gott úrval af skartgripum úr gulli
og silfri.
Þær breytingar urðu á rekstrinum á
þessu ári að nafni verslunarinnar var breytt
úr Franch Michelsen í Michelsen úrsmiðir
og segir Frank að ástæða nafnbreyting-
arinnar sé sú að þeir telji Michelsen eitt og
sér sterkara markaðsnafn, bæði erlendis og
hérlendis: „Nafnið hefur þróast á erlendri
grundu sem Michelsen watchmakers og
það er ein af ástæðum þess að áhersla
verður lögð á Michelsen-nafnið. Stór hluti viðskiptavina Franch
Michelsen á Íslandi eru erlendir ferðamenn og í alþjóðlegu við-
skiptasamfélagi er nauðsynlegt að vera með gott og sterkt nafn
sem lifir í minningu fólks.“
Michelsen úr
Eins og ávallt á stórafmælum er gert eitthvað til hátíða-
brigða og Michelsen-feðgarnir eru engir eftirbátar í
þeim efnum því nú er verið að setja á markaðinn Mic-
helsen-úr. Róbert segir að í raun sé verið að endurvekja
eldri framleiðslu en Michelsen-úrin voru smíðuð á
Sauðárkróki á fyrstu áratugum síðustu aldar. Von er á
fyrstu úrunum í nóvember. „Úrin eru framleidd í Sviss.
Við stjórnum framleiðslunni og hönnunin, sem gerð er í
samvinnu við framleiðandann, er eftir okkar hugmyndum.
Úrin eru mekanísk og eru smíðuð af mjög áreiðanlegum
og traustum framleiðanda. Um er að ræða klassískt hágæða
stálúr með fallegri tvískiptri skífu, munsturskorin
í miðju en utan við er hún slétt með rómverskum
tölustöfum, kvenúr og herraúr.“
Fagmennska
og gæði í hundrað ár
Rolex-úrin eru flaggskip
Michelsen-úrsmiða og eru þeir
umboðsaðili Rolex á Íslandi.
Alla tíð hefur aðaláhersla og
metnaður Michelsen-úrsmiðanna
verið framsækni og vönduð
vinnubrögð sem skilar sér í góðu
orðspori þeirra. Þeir eru virtir
fyrir fagmennsku í verslun sinni,
sem og á úrsmíðavinnustofunni.