Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2009, Side 39

Frjáls verslun - 01.09.2009, Side 39
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 39 setið fyrir svörum 1. Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis verið eftir bankahrunið? Hafi komið til niðurskurðar, hversu hratt fór þá fyrir- tæki þitt í hann og hver voru fyrstu þrjú, stóru skrefin í niðurskurðinum? Við höfum eins og önnur fyrirtæki einbeitt okkur að hagræðingu í rekstri á öllum sviðum. Á tímum þeirra vaxta sem við höfum búið við hefur birgðaaðhald verið í forgangi. Auk þess var mjög mikilvægt fyrir okkur að við tókum út áhættu vegna erlendra gjaldmiðla í okkar efnahagsreikn- ingi síðla árs 2007. Einnig drógum við úr fjárfestingaráformum á þeim tímapunkti eins og kostur var. 2. Heyrir þú á meðal forstjóra að fyr- irtæki kvarti almennt undan viðmóti bankanna? Og yfir hverju er helst kvartað? Nei, ég heyri ekki kvartað yfir viðmóti bankanna. Hvað okkar fyrirtæki varðar, þá hafa öll samskipti við bankana verið til fyr- irmyndar. Það sem maður heyrir helst er að afgreiðsla mála og ákvarðanir taka of langan tíma og ég get tekið undir það. 3. Hafa komið fram aðgerðir af hálfu ríkisstjórnar og bankakerfis sem gefa þínu fyrirtæki eðlilegan rekstr- argrunn? Því miður hafa aðgerðir stjórnvalda tekið lengri tíma en ætlað var. Þeir þættir sem skipta atvinnulífið mestu máli nú eru lægra vaxtastig annars vegar og síðan að eiga stöðugan og gjaldgengan gjaldmiðil. Fyrirtæki munu halda að sér höndum hvað varðar fjárfestingar á meðan vextir eru svo háir sem þeir eru. Auk þess eru nýjar hugmyndir um skattheimtu á atvinnulífið að mínu mati ekki hugsaðar til enda af stjórnvöldum. 4. Voru fyrstu sex mánuðir þessa árs betri eða verri en þú áttir von á? Heldur þú að árið 2010 verði betra eða verra en 2009? Fyrstu sex mánuðir ársins voru á svipuðum nótum og við reiknuðum með. Minni kaup- máttur hefur að sjálfsögðu neikvæð áhrif á ákveðna vöruflokka. Á móti má segja að minni ferðalög okkar til útlanda hjálpi íslenskri verslun á þessum erfiðu tímum. 5. Finnur fyrirtæki þitt fyrir andúð og vantrausti á meðal erlendra viðskiptavina og birgja? Við finnum ekki fyrir vantrausti og alls ekki andúð á nokkurn hátt. Við höfum átt góð samskipti við okkar erlendu birgja, sem flestir þekkja okkur vel og það eru einungis örfáar undantekningar um skort á trausti, sem ekki hefur tekið langan tíma að kippa í lag. 6. Ertu fylgjandi algjöru gagnsæi í íslensku viðskiptalífi? Að eignarhald fyrirtækja sé öllum ljóst, sem og upplýsingar úr rekstri? Undangengnir atburðir kalla að sjálfsögðu á aukið gagnsæi í íslensku viðskiptalífi. Fyrirtæki sem eru skráð á markaði eiga að sjálfsögðu að upplýsa um rekstur og eignarhald, eins og lög gera ráð fyrir. Hvað varðar óskráð fyrirtæki, þá þarf að vera jafnræði þannig að fyrirtæki skili inn árs- reikningum eins og lög gera ráð fyrir. 7. Hvaða heilræði viltu gefa stjórn- völdum, núna þegar eitt ár er liðið frá bankahruninu? Þjóðina skortir traust. Hér verður ekki byggt upp traust, án þess að við byrjum að treysta hvert öðru. Stjórnvöld þurfa að treysta fólki og atvinnulífinu til þess að koma að uppbyggingu á Íslandi. Þá munum við ná árangri. „Þjóðina skortir traust. Hér verður ekki byggt upp traust, án þess að við byrjum að treysta hvert öðru.“ Finnur Árnason, forstjóri Haga Finnur Árnason, forstjóri Haga. verðum að byrja á að treysta hvert öðru
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.