Frjáls verslun - 01.09.2009, Qupperneq 39
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 39
setið fyrir svörum
1. Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis
verið eftir bankahrunið? Hafi komið til
niðurskurðar, hversu hratt fór þá fyrir-
tæki þitt í hann og hver voru fyrstu
þrjú, stóru skrefin í niðurskurðinum?
Við höfum eins og önnur fyrirtæki einbeitt
okkur að hagræðingu í rekstri á öllum
sviðum. Á tímum þeirra vaxta sem við
höfum búið við hefur birgðaaðhald verið
í forgangi. Auk þess var mjög mikilvægt
fyrir okkur að við tókum út áhættu vegna
erlendra gjaldmiðla í okkar efnahagsreikn-
ingi síðla árs 2007. Einnig drógum við úr
fjárfestingaráformum á þeim tímapunkti eins
og kostur var.
2. Heyrir þú á meðal forstjóra að fyr-
irtæki kvarti almennt undan viðmóti
bankanna? Og yfir hverju er helst
kvartað?
Nei, ég heyri ekki kvartað yfir viðmóti
bankanna. Hvað okkar fyrirtæki varðar, þá
hafa öll samskipti við bankana verið til fyr-
irmyndar. Það sem maður heyrir helst er að
afgreiðsla mála og ákvarðanir taka of langan
tíma og ég get tekið undir það.
3. Hafa komið fram aðgerðir af hálfu
ríkisstjórnar og bankakerfis sem
gefa þínu fyrirtæki eðlilegan rekstr-
argrunn?
Því miður hafa aðgerðir stjórnvalda tekið
lengri tíma en ætlað var. Þeir þættir sem
skipta atvinnulífið mestu máli nú eru
lægra vaxtastig annars vegar og síðan að
eiga stöðugan og gjaldgengan gjaldmiðil.
Fyrirtæki munu halda að sér höndum hvað
varðar fjárfestingar á meðan vextir eru
svo háir sem þeir eru. Auk þess eru nýjar
hugmyndir um skattheimtu á atvinnulífið
að mínu mati ekki hugsaðar til enda af
stjórnvöldum.
4. Voru fyrstu sex mánuðir þessa árs
betri eða verri en þú áttir von á?
Heldur þú að árið 2010 verði betra eða
verra en 2009?
Fyrstu sex mánuðir ársins voru á svipuðum
nótum og við reiknuðum með. Minni kaup-
máttur hefur að sjálfsögðu neikvæð áhrif
á ákveðna vöruflokka. Á móti má segja
að minni ferðalög okkar til útlanda hjálpi
íslenskri verslun á þessum erfiðu tímum.
5. Finnur fyrirtæki þitt fyrir andúð og
vantrausti á meðal erlendra
viðskiptavina og birgja?
Við finnum ekki fyrir vantrausti og alls ekki
andúð á nokkurn hátt. Við höfum átt góð
samskipti við okkar erlendu birgja, sem
flestir þekkja okkur vel og það eru einungis
örfáar undantekningar um skort á trausti,
sem ekki hefur tekið langan tíma að kippa
í lag.
6. Ertu fylgjandi algjöru gagnsæi í
íslensku viðskiptalífi?
Að eignarhald fyrirtækja sé öllum ljóst, sem
og upplýsingar úr rekstri? Undangengnir
atburðir kalla að sjálfsögðu á aukið
gagnsæi í íslensku viðskiptalífi.
Fyrirtæki sem eru skráð á markaði
eiga að sjálfsögðu að upplýsa um
rekstur og eignarhald, eins og lög
gera ráð fyrir. Hvað varðar óskráð
fyrirtæki, þá þarf að vera jafnræði
þannig að fyrirtæki skili inn árs-
reikningum eins og lög gera ráð
fyrir.
7. Hvaða heilræði viltu gefa stjórn-
völdum, núna þegar eitt ár er liðið frá
bankahruninu?
Þjóðina skortir traust. Hér verður ekki byggt
upp traust, án þess að við byrjum að treysta
hvert öðru. Stjórnvöld þurfa að treysta
fólki og atvinnulífinu til þess að koma að
uppbyggingu á Íslandi. Þá munum við ná
árangri.
„Þjóðina skortir traust.
Hér verður ekki byggt upp
traust, án þess að við byrjum
að treysta hvert öðru.“
Finnur Árnason,
forstjóri Haga
Finnur Árnason, forstjóri Haga.
verðum að byrja á
að treysta hvert öðru