Frjáls verslun - 01.09.2009, Page 43
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 43
setið fyrir svörum
1. Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis
verið eftir bankahrunið? Hafi komið til
niðurskurðar, hversu hratt fór þá fyrir-
tæki þitt í hann og hver voru fyrstu
þrjú, stóru skrefin í niðurskurðinum?
Hrun íslenska gjaldmiðilsins eftir fall bank-
anna fyrir ári hafði slæm áhrif á efnahag
Parlogis eins og annarra fyrirtækja sem
flytja inn vörur og greiða í erlendri mynt. Við
sáum fram á að þurfa að skera verulega
niður kostnað fyrirtækisins og fórum strax
í aðgerðir á ýmsum sviðum. Við fækkuðum
starfsmönnum, úthýstum hluta af þeirri þjón-
ustu sem við höfðum sjálf sinnt áður og
lögðum áherslu á að minnka birgðir.
2. Heyrir þú á meðal forstjóra að fyr-
irtæki kvarti almennt undan viðmóti
bankanna? Og yfir hverju er helst
kvartað?
Samskipti stjórnenda fyrirtækja við banka-
menn eru sjálfsagt með misjöfnum hætti.
Ég held hins vegar að viðmót bankamanna
einkennist fyrst og fremst af varkárni og
því umhverfi sem þeim hefur verið búið frá
hruninu. Fyrir haustið 2008 voru ákvarðanir
teknar hratt og einkenndust af bjartsýni og
trú á eilífa hagsæld eins og við þekkjum.
Undanfarið hafa samskipti við banka hins
vegar einkennst frekar af ákvarðana- og
aðgerðarfælni, trúlega vegna þess að stefna
nýrra eigenda bankanna hefur verið óskýr.
Vonandi erum við hins vegar nú að sigla inn
í faglegra umhverfi þar sem ákvarðanir eru
ígrundaðar og gegnsæjar og heiðarleiki og
traust ríkir í samskiptum manna. Ég vona
það allavega.
3. Hafa komið fram aðgerðir af hálfu
ríkisstjórnar og bankakerfis sem gefa
þínu fyrirtæki eðlilegan rekstrargrunn?
Parlogis hefur, frá því í september á þessu
ári, verið í eigu NBI. Það má vissulega kalla
það aðgerðir af hálfu bankakerfisins að yfir-
taka félagið. Þessi aðgerð var að sjálfsögðu
sársaukafull fyrri eigendum, sem töpuðu
öllu hlutafé sínu, en hún var hins vegar
nauðsynleg fyrir fyrirtækið og skapar okkur
aðstæður til að einbeita okkur að því sem
við gerum best, sem er vörustjórnun í heil-
brigðisgeiranum.
4. Voru fyrstu sex mánuðir þessa árs
betri eða verri en þú áttir von á?
Heldur þú að árið 2010 verði betra eða
verra en 2009?
Afkoma af daglegum rekstri fyrstu sex mán-
uði þessa árs er umfram áætlanir en geng-
isþróunin hafði hins vegar neikvæð áhrif á
fjármagnsliði og skuldastöðu annað árið í
röð. Ég held að árið 2010 verði erfitt ár fyrir
flest fyrirtæki og væntanlega mun eftirspurn
enn minnka í flestum greinum atvinnulífsins.
Það sem skiptir Parlogis hins vegar mestu
máli er stöðugt gengi og traust fjárhags-
staða og í ljósi þess verður árið 2010 vænt-
anlega betra fyrir okkur en það ár sem nú er
að líða.
5. Finnur fyrirtæki þitt fyrir andúð og
vantrausti á meðal erlendra viðskipta-
vina og birgja?
Nei alls ekki, við höfum lagt mikið á okkur
við að kynna það sem hefur verið að gerast
í íslensku umhverfi og mætum alls staðar
skilningi og trausti hjá viðskiptavinum okkar
erlendis.
6. Ertu fylgjandi algjöru gagnsæi í
íslensku viðskiptalífi? Að eignarhald
fyrirtækja sé öllum ljóst, sem og upp-
lýsingar úr rekstri?
Já, ég tel það afar mikilvægt fyrir starfs-
menn og viðskiptavini að ljóst sé hverjir eigi
fyrirtækin. Varðandi upplýsingar úr rekstri
þá er tiltölulega auðvelt að fá aðgang að
rekstrarlegum upplýsingum fyrirtækja þar
sem þeim er skylt skv. lögum að skila inn
ársreikningi sínum. Þessum reglum ætti
hins vegar að fylgja betur eftir þar sem mörg
fyrirtæki komast upp með að skila seint og
jafnvel ekki inn ársreikningi.
7. Hvaða heilræði viltu gefa stjórn-
völdum, núna þegar eitt ár er liðið frá
bankahruninu?
Hefjum endurreisnarstarfið ótrauð og horfum
fram á við. Við skulum gera allt sem í okkar
valdi stendur til að efla íslenskt atvinnulíf og
gera umhverfi þess sterkara og heilbrigðara,
en láta þeim það eftir sem til þess hafa
verið ráðnir að horfa í baksýnisspegilinn.
guðný rósa þorvarðardóttir,
forstjóri Parlogis
Guðný Rósa Þorvarðardóttir, forstjóri Parlogis.
mætum alls
staðar skilningi
erlendis
„Ég held hins vegar að
viðmót bankamanna
einkennist fyrst og
fremst af varkárni og
því umhverfi sem þeim
hefur verið búið frá
hruninu.“