Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2009, Side 45

Frjáls verslun - 01.09.2009, Side 45
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 45 setið fyrir svörum „Frá fyrstu dögum hrunsins höfum við mætt miklum samvinnuvilja hjá erlendum samstarfsaðilum okkar.“ 1. Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis verið eftir bankahrunið? Hafi komið til niðurskurðar, hversu hratt fór þá fyrir- tæki þitt í hann og hver voru fyrstu þrjú, stóru skrefin í niðurskurðinum? HB Grandi selur allar sínar afurðir til erlendra kaupenda og er þar af leiðandi ekki háður innlendri eftirspurn. Við höfum því ekki fækkað starfsfólki okkar í kjölfar bankahrunsins. 2. Heyrir þú á meðal forstjóra að fyrir- tæki kvarti almennt undan viðmóti bankanna? Og yfir hverju er helst kvartað? Helst er kvartað yfir seinagangi og ákvarð- anafælni, sem ráðast af flóknu stjórnkerfi. Einnig er kvartað undan skorti á lánsfé í erlendri mynt og óeðlilega háum vöxtum lána í innlendri mynt, en skýringa þessa er að leita annars staðar en í viðmóti banka- starfsmanna. 3. Hafa komið fram aðgerðir af hálfu ríkisstjórnar og bankakerfis sem gefa þínu fyrirtæki eðlilegan rekstrargrunn? Þótt HB Grandi skuldi í erlendri mynt, munum við greiða niður þessar skuldir með tekjum í svipuðum myntum. Skuldir hafa þannig ekki hækkað sem hlutfall af tekjum. Okkar fjárhagslegi rekstrargrunnur er þannig traustur. Ríkisstjórnin hefur hins vegar gert okkur mikinn óleik með hótunum um að taka af okkur veiðiheimildirnar. Traustasta aðgerðin til að tryggja framhald stöðugleika í fjárfestingum, þ.á m. í markaðsstarfi, er að slá innköllunarleiðina af strax. 4. Voru fyrstu sex mánuðir þessa árs betri eða verri en þú áttir von á? Heldur þú að árið 2010 verði betra eða verra en 2009? Afkoma HB Granda á fyrstu sex mánuðum ársins varð lakari en ella vegna brostinnar loðnuvertíðar og lágs verðs tiltekinna afurða í erlendri mynt. Á móti kom að veiking krón- unnar hækkaði framlegðarhlutfallið, einkum í landvinnslu. Þessar sveiflur og aðrar þær, sem stýra afkomu sjávarútvegsfyrirtækja, jafnast út til lengri tíma litið. Árið 2010 mun áreiðanlega verða hagfelldara en 2009, þar sem eftirspurn eftir sjávarfangi er góð, birgðir litlar og verð fara heldur hækkandi. 5. Finnur fyrirtæki þitt fyrir andúð og vantrausti á meðal erlendra viðskipta- vina og birgja? Öðru nær. Frá fyrstu dögum hrunsins höfum við mætt miklum samvinnuvilja hjá erlendum samstarfsaðilum okkar. Við erum í nánum, persónulegum tengslum við okkar helstu kúnna og það létti okkur lífið verulega, ekki síst í byrjun hruns. 6. Ertu fylgjandi algjöru gagnsæi í íslensku viðskiptalífi? Að eignarhald fyrirtækja sé öllum ljóst sem og upplýsingar úr rekstri? Já, æskilegt væri að fleiri fyrirtæki væru á markaði og veittu þannig kerfisbundið upplýsingar um sína afkomu. HB Grandi er eina íslenska sjávarútvegsfyrirtækið, sem eftir er á markaði. 7. Hvaða heilræði viltu gefa stjórn- völdum, núna þegar eitt ár er liðið frá bankahruninu? Hugið líka að því sem vel gengur. Fyrirtæki í útflutningi og þeirra birgjar, fyrirtæki í sam- keppni við innflutning og ferðaþjónustu- fyrirtæki ættu öll að hafa hag af veikari krónu. Jafnvel þótt krónan styrkist eitt- hvað, þá felast tækifæri í rekstri þessara fyrirtækja. Ekki má leggja stein í götu þeirra, heldur á að leyfa þeim að nýta tækifærin. Ein forsenda þess er að sjálfsögðu að menn fari nú loksins að lækka vextina. eggert Benedikt guðmundsson, forstjóri HB Granda Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda. Hótanir um að taka af okkur veiðiheimildir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.