Frjáls verslun - 01.09.2009, Síða 45
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 45
setið fyrir svörum
„Frá fyrstu dögum hrunsins
höfum við mætt miklum
samvinnuvilja hjá erlendum
samstarfsaðilum okkar.“
1. Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis
verið eftir bankahrunið? Hafi komið til
niðurskurðar, hversu hratt fór þá fyrir-
tæki þitt í hann og hver voru fyrstu
þrjú, stóru skrefin í niðurskurðinum?
HB Grandi selur allar sínar afurðir til
erlendra kaupenda og er þar af leiðandi
ekki háður innlendri eftirspurn. Við höfum
því ekki fækkað starfsfólki okkar í kjölfar
bankahrunsins.
2. Heyrir þú á meðal forstjóra að fyrir-
tæki kvarti almennt undan viðmóti
bankanna? Og yfir hverju er helst
kvartað?
Helst er kvartað yfir seinagangi og ákvarð-
anafælni, sem ráðast af flóknu stjórnkerfi.
Einnig er kvartað undan skorti á lánsfé í
erlendri mynt og óeðlilega háum vöxtum
lána í innlendri mynt, en skýringa þessa er
að leita annars staðar en í viðmóti banka-
starfsmanna.
3. Hafa komið fram aðgerðir af hálfu
ríkisstjórnar og bankakerfis sem gefa
þínu fyrirtæki eðlilegan rekstrargrunn?
Þótt HB Grandi skuldi í erlendri mynt,
munum við greiða niður þessar skuldir með
tekjum í svipuðum myntum. Skuldir hafa
þannig ekki hækkað sem hlutfall af tekjum.
Okkar fjárhagslegi rekstrargrunnur er þannig
traustur. Ríkisstjórnin hefur hins vegar gert
okkur mikinn óleik með hótunum um að
taka af okkur veiðiheimildirnar. Traustasta
aðgerðin til að tryggja framhald stöðugleika
í fjárfestingum, þ.á m. í markaðsstarfi, er að
slá innköllunarleiðina af strax.
4. Voru fyrstu sex mánuðir þessa
árs betri eða verri en þú áttir von á?
Heldur þú að árið 2010 verði betra eða
verra en 2009?
Afkoma HB Granda á fyrstu sex mánuðum
ársins varð lakari en ella vegna brostinnar
loðnuvertíðar og lágs verðs tiltekinna afurða
í erlendri mynt. Á móti kom að veiking krón-
unnar hækkaði framlegðarhlutfallið, einkum
í landvinnslu. Þessar sveiflur og aðrar þær,
sem stýra afkomu sjávarútvegsfyrirtækja,
jafnast út til lengri tíma litið. Árið 2010 mun
áreiðanlega verða hagfelldara en 2009,
þar sem eftirspurn eftir sjávarfangi er góð,
birgðir litlar og verð fara heldur hækkandi.
5. Finnur fyrirtæki þitt fyrir andúð og
vantrausti á meðal erlendra viðskipta-
vina og birgja?
Öðru nær. Frá fyrstu dögum hrunsins
höfum við mætt miklum samvinnuvilja
hjá erlendum samstarfsaðilum okkar. Við
erum í nánum, persónulegum tengslum við
okkar helstu kúnna og það létti okkur lífið
verulega, ekki síst í byrjun hruns.
6. Ertu fylgjandi algjöru gagnsæi í
íslensku viðskiptalífi?
Að eignarhald fyrirtækja sé öllum ljóst
sem og upplýsingar úr rekstri?
Já, æskilegt væri að fleiri fyrirtæki væru
á markaði og veittu þannig kerfisbundið
upplýsingar um sína afkomu. HB Grandi er
eina íslenska sjávarútvegsfyrirtækið, sem
eftir er á markaði.
7. Hvaða heilræði viltu gefa stjórn-
völdum, núna þegar eitt ár er liðið frá
bankahruninu?
Hugið líka að því sem vel gengur. Fyrirtæki
í útflutningi og þeirra birgjar, fyrirtæki í sam-
keppni við innflutning og ferðaþjónustu-
fyrirtæki ættu öll að hafa hag af veikari
krónu. Jafnvel þótt krónan styrkist eitt-
hvað, þá felast tækifæri í rekstri þessara
fyrirtækja. Ekki má leggja stein í götu þeirra,
heldur á að leyfa þeim að nýta tækifærin.
Ein forsenda þess er að sjálfsögðu að menn
fari nú loksins að lækka vextina.
eggert Benedikt guðmundsson,
forstjóri HB Granda
Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB
Granda.
Hótanir um að taka
af okkur veiðiheimildir