Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2009, Side 127

Frjáls verslun - 01.09.2009, Side 127
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 127 Íslenska gámafélagið var stofnað sem sorpeyðingarfyrirtæki og starfaði á höfuðborgarsvæðinu. Þótt áætlanir hafi alltaf verið stórtækar hefur vöxturinn verið meiri en gert var ráð fyrir, að sögn Jóns Þóris Frantzsonar forstjóra. Félagið er ekki lengur bara sorp- eyðingarfyrirtæki. Það hefur bætt við sig í kjölfar kaupa og samruna við önnur fyrirtæki greinum eins og götusópun, leigu, bifreiðum, tækjum, hafnargerð, grasslætti, jarðvinnslu og inn-og útflutningi. Jón Þórir er einn fimm eigenda Íslenska gámafélagsins og vinna fjórir þeirra í fyrirtækinu. Ákvarðanataka er því einföld og þægileg. Á ráðstefnu Stjórnvísi sagðist hann, eins og Hermann Guðmundsson hjá N1, hafa forðast skólagöngu nokkuð vel og því væru ekki farnar hefðbundnar leiðir í stjórnum og menn væru nokkuð sveigj- anlegir. Vöxtur ÍG hafði kostað mikið fé sem var að miklu leyti lánsfé í erlendum gjaldeyri enda ekki annað í boði. „Þegar bankahrunið kemur upp erum við mjög skuldsett fyrirtæki en samt á þann hátt að við erum búnir að vera að kaupa fyrirtæki uppgjör.“ Mældar eru sölubreytingar og allir helstu þættir og auk þess er sjóðstreymið mælt daglega. Þetta hefur skipt sköpum. Útlánin hjá N1 eru mjög stór þáttur og fyrirtækið á um sex milljarða útistandandi. Að sjálfsögðu verður að vakta það sem aldrei fyrr. Í því eru ákveðnir starfsmenn en ekki til þess að herða innheimtuna heldur til að bæta vinnubrögðin. Langmest af viðskiptavinunum eru viðskiptavinir til ára og áratuga og menn hafa ákveðið að standa við bakið á þeim á meðan stætt er. Markmiðið er ekki að fá alla peningana í hús og skella svo í lás heldur að reyna að vinna að því að íslenskt atvinnulíf geti komist í gegnum þessa erfiðleika því að þeir eru tímabundnir, að mati Hermanns. Hermann sagði frá því að meiri tíma hefði verið eytt í að tala við starfsfólk fyrirtækisins en áður hefði verið gert. Það þurfti á því að halda, enda menn misjafnlega vel staddir og sumir kvíðnir. Haldnir hafa verið starfsmannafundir, opnir fundir og fræðslufundir um fjármálakreppuna. Fram- kvæmdastjórarnir hafa talað við hvern og einn starfsmann um það hvernig honum líði og hvort hann sé að glíma við erfið vandamál. Sumum hefur jafnvel verið veitt fyr- irgreiðsla tímabundið í gegnum launakerfið. „Það er partur af þeirri hugmyndafræði sem forstjórinn vill að fyrirtækið standi að, að standa með fólkinu og fólkið með fyrirtækinu þegar erfiðleikar steðja að. Þetta þarf að vera á báða vegu.“ Þá hefur N1 viljað láta eitthvað gott af sér leiða og staðið fyrir hugmyndaráðstefnu í Borgarleikhúsinu og einnig að hugmyndasamkeppni um viðskiptaáætlanir. Sjálfur sagði Hermann að hann hefði breytt vinnutíma sínum úr 240 í 260-280 stundir á mánuði. Ekkert sé óeðli- legt við það. Nú hafi hann eytt 10 tímum á viku í að mæta á fundi til dæmis með grasrótarhópum og ýmsum öðrum til þess að geta betur áttað sig á því hvað fólk væri að hugsa. Loks sagðist hann hafa skrifað pistla á pressan.is en það væri nokkuð sem hann hefði aldrei reiknað með að gera. Við þeim hefði hann fengið mikil og sterk viðbrögð. Að hugsa með hjartanu „Ég hef predikað fyrir mínum stjórnendum að hugsa meira með hjartanu og minna með höfðinu. Við þurfum öll á því að halda að taka ákvarðanir sem okkur líður vel með en ekki vegna þess að þær séu nákvæmlega arðbærustu ákvarð- anirnar sem við erum að taka. Ef við ætlum bara að taka ákvarðanirnar með höfðinu munum við örugglega valda miklu tjóni, sárum og reiði í samskiptum okkar við starfs- fólk og viðskiptavini. Stundum eigum við að gera það sem „feels right“ eins og þeir segja í Ameríku.“ Hermann sagðist trúa því að björt framtíð væri á Íslandi og ennfremur að við þyrftum að verja þá sem ekki geta varið sig sjálfir. Við værum með fullt af tækifærum í hönd- unum sem við gætum byggt á og þyrftum ekki ofboðslega mikið til að láta okkur líða vel. mikill vöxtur Íslenska gámafélagið er 10 ára. Vöxtur þess hefur verið hraður og mikill; það byrjaði með tvo starfs- menn en nú eru þeir 220. Í upphafi var aðeins einn bíll í fyrirtækinu en þeir eru nú á þriðja hundrað. Veltan fyrsta árið var 10 milljónir en er nú 2,6-2,7 milljarðar. Úr ruslfyrirtæki í flott fyrirtæki Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins. Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.