Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.07.2014, Side 19

Læknablaðið - 01.07.2014, Side 19
LÆKNAblaðið 2014/100 387 Samræmi kvarðanna og spurningalistans Innra samræmi spurningalistans í heild var 0,95 (Cronbach's alpha) og samræmi undirkvarðanna var á bilinu 0,82­0,91 að und­ anskildum kvarðanum „Tími með lækni“ sem skar sig úr með 0,62 en sá kvarði hefur aðeins tvær spurningar (tafla III). Þáttagrein­ ing sýndi að spurningarnar (að meðtöldum frumsömdu spurn­ ingunum) hlóðu allar nema þrjár á einn þátt. Eftir snúning (direct oblimin rotation) hlóðu spurningarnar í kvarðanum „Eftirfylgni“ saman á einn þátt og sama átti við um spurningarnar í kvarð­ anum „Starfsfólk kynnir sig“. Spurningarnar úr PSQ­III hlóðu enn á sama þátt eftir snúning. Niðurstöður einstakra kvarða Tafla III sýnir að meðaleinkunn fyrir allan spurningalistann var 6,8 ± 1,0 (skali 0­10). Meðaleinkunn fyrir spurningar sem fengnar voru úr PSQ­III var einnig 6,8 og voru einkunnir í kringum 7 í öllum undirkvörðum PSQ­III ef undan er skilin spurningin um kreppu í heilbrigðisþjónustunni (tafla III). Þessar einkunnir end­ urspeglast vel í dreifingu svara við einstökum kvörðum (mynd 1). Af spurningum sem höfundar bættu við var útkoman lökust fyrir kvarðann um eftirfylgni þar sem einkunnin var 5,9 (tafla III). Þegar jákvæð svör og neikvæð svör voru tekin saman í hverjum kvarða var hlutfall ánægðra á bilinu 50­80% fyrir einstaka kvarða og óánægðra á bilinu 7­25%. Aftur var það kvarðinn sem mældi eftirfylgni sem kom verst út með 25% óánægju (tafla III). Niðurstöður einstakra spurninga Tafla III sýnir einnig niðurstöður fyrir spurningarnar þrjár sem ekki tilheyrðu ákveðnum kvarða. Þar voru 15% svarenda ósam­ mála því að fjárútlát í tengslum við heimsóknina á Hjartagátt hafi verið hófleg og 20% ósammála því að aðgengi að heilbrigðisþjón­ ustu sé auðvelt er veikindi koma upp. Meirihluti svarenda (61%) var einnig sammála því að kreppa sé í íslenskri heilbrigðisþjón­ ustu. Fullyrðingin „Læknarnir voru mjög vinalegir og kurteisir“ (spurning 18) kom best út en 91% voru sammála eða mjög sam­ mála. Næst á eftir kom fullyrðingin „Ég er mjög sátt/ur við þá heil­ brigðisþjónustu sem ég fékk“ (spurning 2) sem gaf 88% ánægju, og síðan „Stundum létu læknarnir mér líða eins og kjána“ (spurning 14) með 85% ánægju (85% voru ósammála fullyrðingunni). Einnig voru 85% sammála því að hjúkrunarfræðingarnir kynntu sig og útskýrðu sitt hlutverk á Hjartagáttinni (spurning 32). Tafla II. Grunnupplýsingar um þátttakendur (N=275). Fyrri spítalalegur Hlutfall (%) Aldrei 10 1-2 sinnum 31 3-4 sinnum 29 >5 sinnum 30 Reykingar já 13 Hætt/ur 51 Aldrei 36 Menntun Grunnskóli 32 Iðnskóli 26 Menntaskóli 16 Háskóli 26 Hjúskaparstaða Gift(ur) eða í sambúð 71 Ógift(ur) eða fráskilin(n) 17 Ekkja/ekkill 12 Fyrri reynsla af heilbrigðisþjónustu Góð 87 Hlutlaus 8 Slæm 5 Tafla III. Einkunn, hlutfall ánægðra og óánægðra og innra samræmi spurn- ingakvarða. Heiti kvarða (fjöldi spurninga) Einkunn (0-10) Hlutfall ánægðra Hlutfall óánægðra Alphaa- stuðull kvarðar úr PSQ-iii Almenn ánægja (6) 6,6 ± 2,1 62 17% 0,906 Tækni (9)* 6,8 ± 1,6 63 11% 0,843 Mannleg samskipti (7) 7,4 ± 1,8 75 10% 0,833 Upplýsingaflæði (5) 7,3 ± 1,9 77 10% 0,818 Tími með lækni (2) 6,6 ± 2,2 65 15% 0,621 Kreppa í heilbrigðis- þjónustu (1) 3,1 ± 2,7 13 61% Sérhannaðir kvarðar Starfsfólk kynnir sig (3) 7,6 ± 2,0 80 7% 0,876 Eftirfylgni (4) 5,9 ± 2,5 50 25% 0,871 Stakar spurningar Fjárútlát hófleg (1) 6,6 ± 2,7 66 15% Heilbrigðisþjónusta aðgengileg (1) 6,4 ± 2,8 66 20% listinn í heild (39)* 6,8 ± 1,0 65 15% 0,956 *Einni spurningu sleppt í úrvinnslu (sjá aðferðir). aCronbach´s alpha segir til um innra samræmi, >0,7 telst gott. PSQ-III = Patient Satisfaction Questionnaire III. Mynd 1. Svör sjúklinga við Patient Satisfaction Questionaire III kvörðum sem mátu almenna ánægju (grá súla) og mannleg samskipti (svört súla). Hver súla sýnir meðal- hlutfall sjúklinga sem völdu svar á bilinu 1-5. Svarmöguleikar: 1 = mjög óánægður, 2 = óánægður, 3 = hvorki ánægður né óánægður, 4 = ánægður og 5 = mjög ánægður. R a n n S Ó k n

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.