Læknablaðið - 01.07.2014, Qupperneq 24
Vísindaþing geðlækna
26.-28. september 2014 á akureyri
Fimmta vísindaþing Geðlæknafélags Íslands verður haldið á Hótel KEA á Akureyri 26.-28. september nk.
Skráning er á lauga@landspitali.is, fyrir 1. september.
Skráningargjald er 10.000 kr.
Undirbúningsnefnd hefur tekið frá herbergi á Hótel KEA vegna þingsins, en þátttakendur sjá sjálfir um að bóka gistingu.
Þingið verður með svipuðu sniði og áður. Dagskrá þingsins hefst kl. 15, föstudaginn 26. september og stendur til kl. 18 laugardaginn
27. september. Dagskráin verður fjölbreytt, en á þinginu munu geðlæknar og annað fagfólk á geðheilbrigðissviði kynna afrakstur vísindastarfs
síns í stuttum erindum.
Frestur til að skila ágripum erinda (hámark 250 orð) er 31. ágúst 2014.
Ágrip skal senda með tölvupósti til
Halldóru jónsdóttur, halldjon@landspitali.is
Laugardagskvöldið 27. september verður hátíðarkvöldverður og skemmtidagskrá.
Í undirbúningsnefnd þingsins eru geðlæknarnir
Halldóra Jónsdóttir, Magnús Haraldsson, Þórgunnur Ársælsdóttir, Lára Björgvinsdóttir og Sigurður Páll Pálsson.
XXi. þing Félags íslenskra lyflækna
21.-22. nóvember 2014 í Hörpu
Dagskrá þingsins verður fjölbreytt og ætti að höfða til breiðs hóps lyflækna og heimilislækna. Að vanda verður kynning vísindarannsókna stór
þáttur og er skilafrestur ágripa til 20. október.
leiðbeiningar um ágrip
Hámarkslengd ágripa miðast við 1800 letureiningar með bilum (titill ágrips og nöfn höfunda og stofnana eru ekki talin með).
Ágrip skulu rituð á íslensku og er ætlast til að vandað sé til orðfæris og efnistaka. Lyfjaheiti skal rita með íslenskum rithætti.
Innsending ágripa verður á netinu. Slóðin er athygliradstefnur.is
Þar á áberandi stað verður flipi: Verkefni – skráningar.
Opnað verður fyrir innsendingu ágripa föstudaginn 17. ágúst.
Skráning á þingið verður á netinu á sama stað.
Skipulagningu Lyflæknaþingsins annast: Athygli ráðstefnur: athygliradstefnur.is
birna@athygliradstefnur.is, thorunn@athygliradstefnur.is
Nánari upplýsingar munu birtast síðar.
Einnig er unnt að leita upplýsinga hjá stjórn Félags íslenskra lyflækna:
Runólfur Pálsson formaður, netfang: runolfur@landspitali.is
Davíð O. Arnar ritari, netfang: davidar@landspitali.is
392 LÆKNAblaðið 2014/100