Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2014, Síða 25

Læknablaðið - 01.07.2014, Síða 25
LÆKNAblaðið 2014/100 393 Y F I R L I T Inngangur Á Íslandi verða um 400 einstaklingar fyrir heilablóð­ þurrð á ári hverju. Rúmlega einn á dag. Heilablóðþurrð er bráðaástand. Talið er að um tvær milljónir heila­ frumna deyi á hverri mínútu eftir að slagæð í heila lokast.1 Því skiptir tíminn öllu máli ef bjarga á heilavef frá heiladrepi. Afar mikilvægt er að sjúklingurinn kom­ ist sem fyrst á sjúkrahús, meðal annars til segaleysandi meðferðar. Illa hefur gengið að ná til sem flestra innan tímamarkanna.2 Ástæður þess geta verið margar. Sum­ ir átta sig ekki á eðli einkenna sinna, aðrir vilja bíða og sjá til hvort þau gangi yfir. Aðrir búa einir og ná ekki að gera viðvart. Því er mikilvægt að fræða heilbrigðis­ starfsfólk og almenning um einkenni heilablóðþurrðar og nauðsyn þess að leita sér tafarlaust hjálpar á svip­ aðan hátt og fólki hefur lærst á síðustu áratugum þegar grunur vaknar um hjartaáfall.2 Í þessari grein verður fjallað um greiningu og meðferð heilablóðþurrðar. Aðferðir Gerð var leit í PubMed gagnasafninu. Notuð voru leitarorðin „cerebral ischemia“, „cerebral infarction“ og „transient ischemic attack“. Alls fengust 317.500 (98.192, 199.224, 20.084) heimildir í þeirri leit. Áhersla var lögð á greinar sem birst hafa eftir 1990, en í vissum tilvikum leiddi leitin fram mikilvægar eldri heimildir. Eingöngu voru lesin ágrip á ensku og íslensku. Aðeins voru lesnar greinar úr virtum tímaritum sem eru leiðandi í skrifum um taugalækningar, öll ritrýnd. Ágrip af fundum eða veggspjöldum voru ekki skoðuð. Gerðar voru þær kröf­ ur að tilfellaraðir hefðu fleiri en 50 sjúklinga til að koma til álita. Yfirlitsgreinar í virtum tímaritum voru einnig teknar til greina. Greinar voru valdar út frá mikilvægi Á Íslandi verða um 400 einstaklingar fyrir heilablóðþurrð á ári hverju, rúmlega einn á dag. Heilablóðþurrð er bráðaástand. Talið er að um tvær milljónir heilafrumna deyi á hverri mínútu eftir að slagæð í heila lokast. öllu máli skiptir að sjúklingurinn komist sem fyrst á sjúkrahús, meðal annars til segaleysandi meðferðar. Þó að segaleysandi meðferð sem gefin er allt að fjórum og hálfum tíma eftir upphaf áfalls skili árangri, minnkar gagnsemin hratt eftir því sem líður á tímann. Fyrir hverja tvo sjúklinga sem meðhöndlaðir eru innan einnar klukkustundar nær annar fullum bata en meðhöndla þarf 14 einstaklinga til að einn nái fullum bata sé lyfið gefið þremur til fjórum og hálfri klukkustund eftir upphaf einkenna. Allir sjúklingar með brátt heilablóðfall ættu að leggjast inn á heilablóðfallseiningu. Þar fer fram heildstæð og þverfagleg nálgun hvað varðar hinar fjölmörgu orsakir og afleiðingar heilablóðfalls, með áherslu á endurhæfingu. Til að koma í veg fyrir endurtekið áfall skal hefja annars stigs fyrirbyggjandi meðferð sem fyrst. Þar kemur til álita blóðflöguhemj- andi meðferð, blóðþrýstingsmeðferð, lækkun blóðfitu, meðferð sykursýki, lífsstílsbreytingar, blóðþynning hjá sjúklingum með segalind í hjarta og æðaþelsbrottnámsaðgerð á hálsslagæð, þar sem það á við. ÁGRIp og þýðingu fyrir skrif þessarar yfirlitsgreinar. Af ofan­ töldum fjölda heimilda voru 608 ágrip lesin. Á grunni þeirra voru 153 greinar lesnar og af þeim var efni úr 77 notað í þessa grein. Sérstök áhersla var lögð á að fylgja leiðbeiningum amerísku heilablóðfallasamtakanna frá 2011 og 2013 (heimildir 2 og 49). Greining Tíminn fram að greiningu Þegar grunur vaknar um brátt heilablóðfall skal flytja sjúkling tafarlaust á sjúkrahús þar sem læknir tekur á móti honum strax við komu. Afar mikilvægt er að mennta sjúkraflutningsmenn í að greina hugsanlegt heilablóðfall. Þegar þeir koma á vettvang geta einföld stöðluð próf komið að gagni. Eitt slíkt próf er FAST (Face, Arms, Speech, Time) prófið sem inniheldur eftirfarandi þrjár spurningar við grun um heilablóðfall:2,3 • Er andlitið ósamhverft þegar sjúklingurinn reynir að brosa? • Fellur annar handleggur þegar sjúklingurinn reynir að halda báðum uppi? • Á sjúklingurinn erfitt með að segja setningar eins og ,,það er gott veður úti“? Sjúkraflutningsmenn leitast við að komast að því hvenær einkennin hófust og hvenær sjúklingurinn var síðast án einkenna. Á leiðinni á sjúkrahúsið þarf að huga að öndunarvegi, öndunarhjálp og blóðflæðishjálp. Fylgj­ ast skal með lífsmörkum og mæla blóðsykur, þar sem blóðsykurfall getur gefið einkenni lík heilablóðfalli. Við komu sjúklings á bráðamóttöku þarf að svara eftirfarandi spurningum umsvifalaust: Er um bráða heilablóðþurrð að ræða? Ef svo er, uppfyllir sjúklingur Greinin barst 27. janúar 2014, samþykkt til birtingar 21. maí 2014. Engin hagsmunatengsl gefin upp. Heilablóðþurrð/­drep – greining og meðferð Ólafur Árni Sveinsson læknir1, Ólafur Kjartansson læknir2, Einar Már Valdimarsson læknir3 1Taugadeild Karolinska sjúkrahússins, Stokkhólmi, Svíþjóð, 2röntgendeild, 3taugalækningadeild Landspítala. Fyrirspurnir: Ólafur Sveinsson olafur.sveinsson @karolinska.se

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.