Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.07.2014, Qupperneq 36

Læknablaðið - 01.07.2014, Qupperneq 36
404 LÆKNAblaðið 2014/100 ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Í T i l E F n i 1 0 0 Á R a Ó S l i T i n n a R Ú T G Á F U l æ k n a b l a ð S i n S Örn tók við blaðinu er það var komið í nokkurt öngstræti en ásamt öflugum hópi samstarfsfólks leiddi hann það útúr þrengingum og hóf til öflugri vegs með aukinni útgáfutíðni, útgáfu Fréttabréfs lækna og mikilvægu frumkvöðlastarfi við útgáfu íðorðasafns lækna. „Það má miða upphaf afskipta minna af Læknablaðinu við árið 1975 þegar Tómas Árni Jónasson þáverandi formaður Læknafélags Íslands kom að máli við mig og spurði hvort ég væri tilleiðanlegur að taka að mér ritstjórn blaðsins,“ segir Örn Bjarnason í upphafi samtals okkar. Örn er skipulagður í frásögn sinni og greinilega þaulvanur að fást við heimildir og gerir sér fulla grein fyrir mikilvægi nákvæmni í slíkri upprifjun. „Ég var þá nýfluttur til Reykjavíkur frá Vestmannaeyjum og hafði nóg að gera í nýju starfi í heilbrigðisráðuneytinu en útgáfa Læknablaðsins var komin í nokkurt fjárhagslegt óefni, aðallega vegna óðaverð­ bólgu, og illa gekk að innheimta auglýs­ ingareikninga. Það hentaði auglýsendum vel að draga greiðslur sem lengst, oft mán­ uðum saman, þar sem upphæðin rýrnaði að raungildi með hverjum degi bók­ staflega. Fyrirkomulag lyfjainnflutnings var þá með allt öðrum hætti en síðar varð, umboðin voru öll í höndum Dana og lyfin flutt inn þaðan. Við þessu var í raun lítið hægt að gera og engin lausn í sjónmáli.“ Þrennt skipti sköpum „Ritstjórn Læknablaðsins var á þessum tíma skipt á milli tveggja, annar ritstjór­ inn sinnti fræðilegu efni og hinn sá um félagslega hlutann, báðir læknar. Þá var Arinbjörn Kolbeinsson ritstjóri félags­ lega hlutans og hafði lengi staðið í eldlínu félagsstarfa fyrir Læknafélagið. Hann vildi hætta og Tómas Árni lagði að mér að taka við af honum. Ég sagði að hið fyrsta sem gera þyrfti væri að ráða blaðamann í hlutastarf og úr varð að minni tillögu að Sigurjón heitinn Jóhannsson var ráðinn til starfans. Sigurjón var skólabróðir minn frá Menntaskólanum á Akureyri og við höfðum séð um útgáfu á Carminu, ársriti MA, og vissum því hvernig prentsmiðjur litu út að innan. Skömmu seinna hætti Páll Ásmundsson sem verið hafði ritstjóri fræðilega hlutans og við tók af honum Bjarni Þjóðleifsson. Við Bjarni lögðum síðan upp áætlun hvernig mætti styrkja fjárhag blaðsins en jafnframt hófum við undirbúning að útgáfu íðorðasafns lækna. Það voru því ýmsar hugmyndir á lofti á þessum tíma en þó skipti algjörum sköpum fyrir framtíð Læknablaðsins að samstarf náðist við útgáfufélag danska læknafélagsins.“ Örn var ritstjóri Læknablaðsins í 17 ár. Aðspurður um hvað hann telji mestu skipta um þróun blaðsins á þessu tímabili nefnir hann þrennt. „Í fyrsta lagi hertum við jafnt og þétt kröfurnar um gæði þeirra greina sem birtust í blaðinu. Við áttum gott samstarf við ritstjórnir hinna norrænu læknablaðanna og lærðum mikið af þeim, sérstaklega Dönunum, og þetta samstarf var annar mikilvægasti þátturinn í þróun blaðsins. Fyrri ritstjórnir Læknablaðsins höfðu ekki verið í neinum tengslum við erlenda kollega og útgáfa blaðsins var að sumu leyti komin í öngstræti, bæði fjárhagslega og efnislega, þegar þessar breytingar voru gerðar. Þetta var skemmti­ legur tími því sum hinna norrænu lækna­ blaðanna voru einnig að ganga í gegnum ýmsar breytingar og umræður á sam­ eiginlegum fundum voru bæði líflegar og gagnlegar. Samskiptin við norrænu blöðin hafa síðan verið sjálfsagður hluti af starf­ seminni þó að rúm 20 ár séu síðan vinnsla blaðsins fluttist alfarið hingað heim aftur. Í þriðja lagi skipti vinnan við íðorðasafnið algjörlega sköpum fyrir blaðið og gerði okkur kleift að fylgja eftir þeirri stefnu að allur texti blaðsins skyldi vera á íslensku.“ Danska læknafélagið sá um prentun blaðsins En aftur til upphafs afskipta Arnar af Læknablaðinu og hvernig það kom til að prentun blaðsins var flutt til Kaupmanna­ hafnar. „Povl Riis, ritstjóri danska læknablaðs­ ins á þeim tíma og samtals í 33 ár, var náinn vinur Tómasar Árna og danska læknafélagið var að gera róttækar breyt­ ingar á útgáfumálum sínum. Þeir höfðu um árabil verið í samstarfi við prentsmiðju sem ekki svaraði kröfum tímans varðandi búnað og tækni, sem var reyndar okkar vandi að verulegu leyti líka, og Danirnir leystu sinn vanda með því að stofna út­ gáfufélag, ráða prentara og framkvæmda­ stjóra útgáfunnar og gera beina samninga við lyfjafyrirtæki um auglýsingar. Sumarið 1978 var haldinn í fyrsta sinni hér á landi fundur ritstjóra norrænu læknablaðanna og þá skýrði Riis okkur frá því hvernig þeir hefðu leyst sín mál. Hann stakk upp á því að við kæmum í samstarf við þá með því að þeir sæju um prentun blaðsins og auglýsingasöfnun. Við ákváðum að láta reyna á þetta og árið eftir er síðan tekið upp formlegt samstarf þar sem við í upp­ hafi sendum þeim handritin, þeir sáu um setninguna, prentunina, útveguðu auglýsingarnar, og tekjuafgangurinn, sem var talsverður, rann til okkar. Menn höfðu „Samstarfið við danska læknafélagið réði úrslitum“ – segir Örn Bjarnason sem var ritstjóri Læknablaðsins frá 1976-1993
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.