Læknablaðið - 01.07.2014, Page 40
408 LÆKNAblaðið 2014/100
Í T i l E F n i 1 0 0 Á R a Ó S l i T i n n a R Ú T G Á F U l æ k n a b l a ð S i n S
„Ég tók við á sínum tíma af Sigurjóni
Jóhannssyni blaðamanni og starfið var í
upphafi fólgið í því að taka efni blaðsins,
lesa það yfir og fylgja því síðan eftir í
gegnum prentun,” segir Jóhannes Tómas
son blaðamaður sem fyrstur hlaut starfs
heitið ritstjórnarfulltrúi Læknablaðsins og
sinnti því um nokkurra ára skeið þar til
hann réðst til Frjálsrar fjölmiðlunar og fór
þaðan á Morgunblaðið en hefur frá árinu
2006 gegnt starfi upplýsingafulltrúa, fyrst
iðnaðarráðuneytis en nú innanríkisráðu
neytis.
Jóhannes var kannski ekki alveg
ókunnugur Læknafélaginu en faðir hans
er Tómas Árni Jónasson sérfræðingur í
lyflækningum, er var formaður Læknafé
lags Íslands 197075 og gegndi fjölmörgum
öðrum trúnaðarstörfum fyrir lækna á
starfsferli sínum.
„Vinnsluferill blaðsins var á þá leið að
ritstjórnin kom saman mánaðarlega og
valdi efni í næstu blöð. Ritstjórnin sá um
að lesa efnið yfir og leiðbeina höfundum
um efnistök og á þessum árum mótaðist
formlegri ferill fræðigreina, sem mér skilst
að sé nú í mjög föstum skorðum. En ég tók
við greinunum og gekk frá þeim og hafði
mest samstarf við Örn Bjarnason ritstjóra
á milli fundanna. Ég setti blaðið upp,
límdi textaspaltana upp og myndirnar
líka, og svo var þetta sett í blýi en Félags
prentsmiðjan var enn á því stigi á þessum
árum.”
Á þessum fyrstu árum sínum við
Læknablaðið var Jóhannes í fullu starfi sem
blaðamaður við Morgunblaðið. „Þetta var
bara hlutastarf, nokkrir tímar í mánuði,
blaðið kom út 67 sinnum á ári og engin
blaðamennska í þessu. Það var ekki fyrr en
samstarfið við útgáfufélag Danska lækna
félagsins hófst að mér var boðið hálft starf
ritstjórnarfulltrúa Læknablaðsins. Sam
hliða þessu hófst útgáfa Fréttabréfs lækna
sem kom út mánaðarlega en Læknablaðið
sjálft birti einungis fræðigreinar og var
unnið talsvert langt fram í tímann, yfirleitt
voru 23 blöð undir á hverjum tíma, enda
þurftum við að senda það út til Danmerk
ur til prentunar. Mér var falið að sjá um
að ganga frá Læknablaðinu til prentunar
í Danmörku og jafnframt að vinna efni
Fréttabréfsins og koma því út mánaðarlega.
Útgáfutíðni Læknablaðsins jókst á næstu
misserum í 1011 tölublöð á á ári þar til
menn sáu að óþarft var að hafa útgáfuna
tvískipta, og þá voru Fréttabréfið og Lækna-
blaðið sameinuð í eina útgáfu að nýju og
þannig hefur það verið síðan.“
Upplýsingamiðlun af því tagi sem
Fréttabréfið sinnti á þessum árum hefur
síðan færst yfir á heimasíðu Læknafélags
Íslands, enda hægt um vik að birta þar
allar upplýsingar jafnóðum og þær verða
til.
Jóhannes lýsir vinnuferlinu á blaðinu
á árunum þegar Danir sáu um prentunina
svo að hann hafi sent þeim efni blaðsins
út á tölvudisklingi. „Þeir keyrðu síðan
textannn út og sendu mér spaltana til baka
sem ég síðan límdi upp og sendi þeim
til baka. Við fengum síðan síðuprófarkir
sem voru lesnar yfir og það var mikilvægt
að vanda sig við leiðréttingarnar, skrifa
skýrt með prentstöfum, svo dönsku setjar
arnir misskildu ekki neitt. Það var eigin
lega makalaust hvað þetta gekk vel fyrir
sig. Við fórum út tvisvar, þrisvar á ári og
gengum þá kannski frá 23 blöðum í einu,
en Örn Bjarnason var mikið á ferðalögum
um Norðurlöndin á þessum árum vegna
starfs síns fyrir Hollustuvernd ríkisins.
Hann notaði þá gjarnan tækifærið og kom
við í Kaupmannahöfn og las yfir síðustu
prófarkir og þannig gekk þetta allt saman
meira og minna snurðulaust.“
Jóhannes segir Örn Bjarnason hafa
unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir
Læknablaðið. „Hann hafði þekkingu á nær
öllu sem viðkom efni og vinnslu blaðsins.
Sem læknir og fræðimaður hafði hann
kunnáttu til að meta gæði þeirra greina
sem bárust til blaðsins en hann hafði
einnig brennandi áhuga á málfari og
lagði gríðarlega áherslu á að texti blaðsins
væri á vandaðri íslensku. Starf hans að
Íðorðasafni lækna ber vitni um það. Það var
sérstaklega gaman að fara með honum í
prentsmiðjuna, því þar var hann ekki síð
ur vel heima í handverki prentaranna. Ætli
besta lýsingin sé ekki sú að hann hafði
brennandi áhuga á öllu er viðkom því að
Fyrsti ritstjórnarfulltrúi blaðsins
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
HaUSTþinG Á akUREyRi
Geðheilbrigði, nýjar
og gamlar aðferðir
til eflingar og varna
Haustþing læknafélags Akureyrar og Norðurlandsdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga verður haldið laugardaginn 11. október að Hólum í Menntaskólanum á Akureyri.
Þingið ber nafnið: Geðheilbrigði, nýjar og gamlar aðferðir til eflingar og varna.