Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.07.2014, Qupperneq 46

Læknablaðið - 01.07.2014, Qupperneq 46
414 LÆKNAblaðið 2014/100 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R Vigdís Stefánsdóttir erfðaráðgjafi vigga@islandia.is ESHG eða European Society of Human Genetics heldur árlega ráðstefnu í ein­ hverju landa Evrópu. Hún var að þessu sinni haldin í Milano Congressi eða MiCo ráðstefnuhöllinni í Mílanó og var ítalska mannerfðafræðifélagið, Società Italiana di Genetica Umana, umsjónaraðili þess. Annað hvert ár er ráðstefnan sameiginleg með EMPAG eða The European Meeting on Psychosocial Aspects of Genetics og var svo nú. Ráðstefnan hefur farið stækkandi ár frá ári og nú sóttu hana rúmlega 3000 manns og að auki rúmlega 130 sýnendur tækja, aðferða og upplýsingatækni. Fyrirlestrar voru um NGS (next genera- tion sequencing), erfðafræði hjarta­, tauga­, krabbameins­ og annarra sjúkdóma, líf­ upplýsingatækni, fósturgreiningu á móðurblóði (non-invasive testing), fóstur­ vísisgreiningu, efnaskiptasjúkdóma, gæðastaðla í erfðarannsóknum og á rann­ sóknarstofum, lyfjaerfðafræði, auk leiða til að finna ný sjúkdómsgen. Líka um leiðir til að koma erfðaupplýsingum á framfæri bæði til fagfólks og sjúklinga, siðferðileg atriði í ýmsu sem að erfðafræði snýr, skim­ un fyrir ýmsum sjúkdómum, erfðaheil­ brigðisþjónustu framtíðarinnar, nauðsyn þess að kenna almennum læknum meira um erfðafræði og fleira og meira. Fróðlegt var að heyra hversu hröð þróunin er í tölvu­ og samskiptatækni varðandi erfðaupplýsingar og erfðaráð­ gjöf. Þar virðast Hollendingar og Ástralir einna fremstir og hafa látið mikla vinnu í að setja upp kerfi sem raunar er hægt að nota í öllum sérgreinum læknisfræðinnar. Erfðafræðideildir sjúkrahúsa í Hollandi hafa tekið upp örugga samskiptaleið sjúk­ linga og lækna/erfðafræðinga/erfðaráð­ gjafa. Notuð eru kerfi sem gera kleift að tala saman gegnum tölvu en um leið deila prentuðu og tölvutæku efni, hvort sem það eru upplýsingatextar eða niðurstöður. Hver sjúklingur á sitt „hólf“ og hver heilbrigðisstarfsmaður hefur aðgang að heildarupplýsingum og getur búið sér til eigið upplýsingasafn. Þetta er mun ódýrari leið en að allir hitti fagmann og stundum besta leiðin ef sjúklingur á ekki heiman­ gengt. Einnig er hægt að nota þessa leið til að sérfræðingur og læknir sem ekki er sérfróður um viðkomandi vandamál geti skoðað sjúkling í sameiningu. Þannig hafa lítil sjúkrahús eða læknastofur aðgang að sérfræðingum án þeirrar fyrirhafnar að fara á staðinn. Þrjá þingfyrirlestra er hægt að sjá og heyra á vefslóðinni client.cntv.at/ eshg2014/ og eru lesendur hvattir til þess að hlusta og horfa. Það var afar áhugavert að taka þátt í umræðum og almennri kosningu um ýmis mál sem varða tilfallandi niður­ stöður (incidental findings) þegar gerðar eru erfðarannsóknir. Sérlega þar sem flestir í salnum höfðu þekkingu á umræðuefninu og höfðu afar mismunandi skoðanir á því. Hal Brunner forseti ESHG stjórnaði kosningunni og umræðunum á palli. Til að ræða málin og svara spurningum voru þau Angus Clarke frá Cardifff, Martina Cornel frá Amsterdam, Robert Green frá Boston, Stephen Kingsmore frá Kansas City, Marjolein Kriek frá Leiden og Arnold Munnich frá París. Talsverð umræða var um það meðal þátttakenda hvort a) það sem finnst við raðgreiningar sé óvænt, og b) hvort og hvernig veita eigi upplýsingar um það sem finnst á þann máta. Eins og alltaf eftir góða ráðstefnu er margt sem situr eftir. En sterkust er hugsunin um það hvað erfðaheilbrigðis­ þjónustan vex hratt og er víða sá hluti heilbrigðisþjónustunnar sem hraðast vex. Sífellt eykst getan til að skoða og skila betur erfðamengi mannsins og með því möguleikar á að finna leiðir til að lækna eða koma í veg fyrir sjúkdóma. Ráðstefnur sem þessar, í hvaða fagi sem er, eru mikilvægur þáttur í endurmenntun og þó svo kostnaður sé nokkur er ljóst að hann skilar sér margfalt til baka í meiri þekkingu, áhugasamara starfsfólki og auknu tengslaneti um allan heim. Ráðstefna ESHG í Mílanó
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.