Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.07.2014, Qupperneq 50

Læknablaðið - 01.07.2014, Qupperneq 50
418 LÆKNAblaðið 2014/100 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R Þann 1. júlí gengu í gildi lög um breyt­ ingar á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Þau heimila meðal annars læknum og tannlæknum að starfa áfram eftir 75 ára aldur að uppfylltum skilyrðum. Þessar breytingar voru samþykktar á lokadögum alþingis síðastliðið vor, mótatkvæðalaust. Í þeim segir meðal annars: ,,Heilbrigðis­ starfsmanni samkvæmt lögum þessum er óheimilt að veita heilbrigðisþjónustu á eigin starfsstofu eftir að hann nær 75 ára aldri. Landlækni er þó heimilt, að fenginni umsókn viðkomandi, að veita undanþágu frá þessu ákvæði, enda séu skilyrði reglu­ gerðar ... uppfyllt. Í fyrsta sinn er heimilt að veita undanþágu til allt að þriggja ára, og eftir það til eins árs í senn.“ Reglugerðin setur tvö skilyrði fyrir því að veita megi slíkt leyfi: Að viðkomandi sé andlega og líkamlega fær um að starf­ rækja þá starfsemi sem sótt er um undan­ þágu til og hafi viðhaldið þekkingu sinni, faglegri færni og tileinkað sér nýjungar. Fyrra skilyrðinu skal fullnægja með því að leggja fram læknisvottorð og hinu síðara með því að ,,leggja fram yfirlit og gögn um endurmenntun, námskeið eða annað til staðfestingar á því með hvaða hætti hann hefur viðhaldið þekkingu sinni, faglegri færni og tileinkað sér nýjungar síðastliðin fimm ár.“ Læknablaðið hitti þá Sigurð E. Þorvalds­ son lýtalækni, fyrrverandi formann Öldungadeildar Læknafélags Íslands, og Tryggva Ásmundsson lungnalækni og fyrrum stjórnarmann í Öldungadeildinni fyrir skemmstu til að spjalla um þessi tímamót. Aðdragandi þessarar lagasetningar er í sjálfu sér merkilega stuttur, þótt umræðan um þetta efni eigi sér lengri sögu hér á landi. Það sem ýtti á eftir lagasetningunni var að þann 1. janúar 2013 tóku gildi lög sem bundu starfslok lækna við 76 ára aldur. Áður hafði verið möguleiki fyrir landlækni að framlengja lækninga­ leyfi einstakra lækna að fullnægðum ákveðnum skilyrðum en þessi lög festu þær reglur í sessi að einungis væri hægt að framlengja leyfið í tvö ár í senn eftir sjötugt og mest þrisvar. ,,Ekki hafði verið brugðist við þessari breytingu og það var ekki fyrr en við Tryggvi vöktum athygli á málinu í Læknablaðinu og Morgunblaðinu að þessi umræða fór af stað,” segir Sigurður. Í kjölfarið fylgdu nokkur blaðaviðtöl um þetta efni og þeir höfðu samband við ráðamenn og fengu liðsinni ýmissa þeirra til að gera þær breytingar sem nú hafa verið samþykktar. ,,Sigurður sá alfarið um allan áróður í viðtölum við ráðamenn,” segir Tryggvi. ,,Mitt eina framlag er í raun greinin sem við sendum saman til birtingar í Morgunblaðið. Það eina sem ég gæti stært mig af er að hafa verið ,,ráð­ gjafi” Sigurðar.” Þeir fóru að rýna í þá umræðu sem hafði farið fram samhliða og í kjölfar lagasetningarinnar og komust að raun um að Eygló Harðardóttir núverandi félags­ og húsnæðismálaráðherra og Sif Friðleifs­ dóttir fyrrverandi heilbrigðisráðherra höfðu lýst miklum efasemdum vegna þessara nýju, takmarkandi reglna. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir formaður heilbrigðis­ nefndar og síðar velferðarnefndar bar fram fyrirspurn á alþingi til Kristjáns Þórs Júlíussonar um hvort til stæði að breyta lögunum og hann var ekkert að tvínóna við það og hóf mál sitt á því að segja að stutta svarið væri ,,Já.” Ekkert af þessu gerðist af sjálfu sér. Sigurður, með fulltingi Tryggva, vann ötullega að því að kynna röksemdir þeirra og segja það Kristjáni til hróss að hann hafi hlustað vel á rök þeirra. Þannig óx skilningur ráðamanna á málinu. ,,Meðallíftími fólks, jafnt lækna sem annarra, og heilsufar þess er allt annað en það var,” segir Sigurður. Annað, ekki lítil­ vægara, er aldurssamsetning læknastétt­ arinnar en stéttin eldist hratt. Aldurinn er ekki það sem skiptir mestu máli svo lengi sem heilsan er góð og til þess eru ákvæðin um læknisskoðun að ganga úr skugga um heilsufarsþáttinn. En það er mat þeirra að ekki skipti minna máli að fylgjast með því hvernig menn hafa viðhaldið þekk­ ingu sinni, sótt ráðstefnur og þing, skrifað fræðigreinar og fylgst með nýjungum í sérgrein sinni. Þeir benda á athyglisverð dæmi um harðfullorðna lækna sem hafa verið framarlega í flokki hvað þetta varðar. Kristján Sveinsson læknir birti á sínum tíma grein um sjúkling sem hann hafði fylgt eftir í marga áratugi og að minnsta kosti tvær greinar í ritrýndu, erlendu tímariti eftir sjötugt. Úlfar Þórðarson augnlæknir var lengst allra í heiminum ráðgefandi læknir fyrir bandaríska herinn og heiðraður fyrir það. ,,En það getur verið munur milli sérgreina því þær gera mis­ miklar kröfur um líkamlegt atgervi og skurðlæknar til dæmis þurfa að standa mikið við sín störf. Það getur tekið á marga þeirra sem eldri eru, og reyndar eru dæmi um það líka að menn hafi ekki valið sér skurðlækningar sem sérgrein vegna þess líkamlega álags sem fylgir starfinu,” segir Sigurður. Mikilvægt að viðhalda þekkingunni – segja öldungar um hækkuð aldursmörk í nýjum heilbrigðislögum ■ ■ ■ anna björnsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.