Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2015, Síða 18

Læknablaðið - 01.03.2015, Síða 18
138 LÆKNAblaðið 2015/101 endurlífgunarskýrslum rituðum af vakthafandi neyðarbílslækni eftir öll útköll vegna endurlífgunar. Einnig var leitað í sjúkraskrám Landspítala að ICD-10 kóða fyrir hjartastopp I-64 og gagna aflað um endurlífgunartilraunir utan sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæð- inu. Rannsakendur skráðu upplýsingar um endurlífganir sam- kvæmt lykilþáttum Utstein-staðalsins sem er stöðluð framsetning til að meta árangur endurlífgana og var uppfærður 2004.9,10 Tilfelli þar sem hjartastoppið var ekki talið vera af völdum hjartasjúkdóms voru ekki talin með við mat á árangri endur- lífgana. Ef orsök fyrir hjartastoppi var ekki tilgreind í sjúkraskrá voru viðkomandi krufningarskýrslur og dánarvottorð skoðuð. Þau hjartastopp sem áttu sér stað í sjúkrabíl voru ekki talin með öðrum hjartastoppum sem vitni voru að. Útkallstími var skilgreindur í samræmi við fyrri rannsóknir, það er tíminn frá því að tilkynn- ing um hjartastopp barst Neyðarlínu og þar til sjúkrabíllinn var kominn á vettvang. Fengust þessar upplýsingar úr endurlífgunar- skýrslum og frá Neyðarlínunni. Upplýsingar um sjúklinga sem meðhöndlaðir voru með kælingu, auk mats á færni við útskrift, fengust úr sjúkraskrám Landspítala. Vitræn geta sjúklinga við út- skrift var metin samkvæmt Cerebral Performance Category (CPC) skala á bilinu 1 til 5 þar sem 1 stig þýðir að viðkomandi hafi haft eðlilega heilastarfsemi en 5 stig jafngilda heiladauða.11 Íbúafjöldi á þjónustusvæði neyðarbílsins var 181.929 í byrjun árs 2004 og 197.951 í lok árs 2007.12 Leyfi fyrir rannsókninni voru fengin frá framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala, Vísindasiðanefnd og Persónuvernd. Samanburður á meðalaldri, hvort vitni var að hjartastoppi eða hvort grunnendurlífgun var beitt, var framkvæmdur með t- prófi. Annar samanburður var gerður með x2-prófi. Greining gagna var framkvæmd í R, útgáfu 2.14 og marktæknikrafa var 0,05. Niðurstöður Á árunum 2004-2007 var tilkynnt um 289 hjartastopp á höfuðborg- arsvæðinu. Reynd var endurlífgun í 279 tilfellum (97%) af læknum og sjúkraflutningamönnum neyðarbíls. Hjartasjúkdómar voru orsök í 200 tilfellum (72%) af þeim 279 þar sem endurlífgun var reynd. Sjötíu og níu tilfelli (28%) voru talin vera af öðrum orsökum eins og áverka, drukknun, eitrun, sjálfsvígi, öndunarfærasjúkdómi og öðrum ástæðum. Skráning samkvæmt endurlífgunarskýrslum var góð en hjá 15 einstaklingum var ekki skráð orsök og þurfti að leita upplýsinga í krufningarskýrslum og dánarvottorðum hjá Hagstofu. Fjöldi karla var 151 (76%) og konur voru 49 (24%). Meðalaldur sjúklinga var 67,7 ár og aldursbil var 20-99 ár. Útkallstími var að meðaltali 6,3 mínútur. Í hjartastoppum af völdum hjartasjúkdóma voru vitni til staðar í 120 tilvikum (60%) og eru niðurstöður endurlífgunartilrauna í þeim tilvikum sýndar samkvæmt Utstein-staðli í flæðiriti. Ekki var vitni að hjartastoppi í 60 tilvikum (30%) og 20 hjartastopp (10%) áttu sér stað í sjúkrabíl. Fjöldi endurlífgana í heild var að meðal- tali 71,5 ± 4,5 á ári. Fjöldi endurlífgana þar sem orsök var hjarta- sjúkdómar var að meðaltali 48 ± 6 á ári. Tíðni á hverja 100.000/ári er því 26 ± 3,5. Tíðni sleglatifs/sleglahraðtakts var 13,9 ± 2,5 á hverja 100.000/ári. Fyrsta rit Níutíu og níu (50%) voru í sleglatifi eða sleglahraðtakti á fyrsta hjartarafriti af þeim sem fóru í hjartastopp vegna hjartasjúkdóms. Fjörutíu (20%) voru með rafvirkni án dæluvirkni en 61 (30%) var með rafleysu á fyrsta hjartarafriti. Lifun að innlögn og útskrift Af 200 einstaklingum náðu 107 einstaklingar (54%) inn á bráða- deild með merki um blóðflæði eða sýndu merki um blóðflæði eftir að á bráðadeild var komið. Áttatíu og sex einstaklingar (43%) lögð- ust inn á gjörgæslu/legudeild. Alls útskrifuðust 50 einstaklingar (25%) af sjúkrahúsi. Fjörutíu og sjö voru lifandi ári eftir útskrift, eða 24%. Sleglatif/Sleglahraðtaktur Níutíu og níu voru upphaflega í sleglatifi eða sleglahraðtakti á fyrsta hjartarafriti. Af þeim náðu 72 (73%) inn á bráðadeild, 61 (62%) lagðist inn á gjörgæslu/legudeild og 43 (43%) útskrifuðust. Sjötíu prósent þeirra sem lifðu að innlögn á gjörgæslu/legudeild útskrifuðust. Rafleysa Sextíu og einn einstaklingar var í rafleysu á fyrsta hjartarafriti. Fimmtán þeirra (25%) komust inn á bráðadeild. Ellefu (18%) lögð- ust inn á gjörgæslu/legudeild en enginn útskrifaðist. Rafvirkni án dæluvirkni Fjörutíu voru með rafvirkni án dæluvirkni eða hægatakt. Tuttugu þeirra (50%) lifðu inn á bráðadeild, 14 (35%) lögðust inn á gjör- gæslu/legudeild og 7 (18%) útskrifuðust af sjúkrahúsi. Kringumstæður Flestir fengu hjartastopp í heimahúsi, eða 120 einstaklingar, af þeim útskrifuðust 28 (23%) heim af spítala. Tuttugu og einn ein- R A N N S Ó K N Flæðirit um árangur endurlífgana vegna hjartasjúkdóma utan sjúkrahúsa frá 2004-2007. Endurlífgun reynd N=279 Orsök ekki tengd hjarta N=79(28%) Orsök:Hjartasjúkdómur N=200(72%) Vitni að hjartastoppi N=120(60%) Upphafstaktur Sleglahraðtaktur/Sleglatif N=79(66%) Upphafstaktur Rafvirkni án dæluvirkni N=21(18%) Upphafstaktur Rafleysa N=20(17%) Lifun inn á bráðamóttöku N=72(60%) Lifun inn á gjörgæslu/legudeild N=56(49%) Útskrift af sjúkrahúsi N=37(31%)

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.