Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2006, Side 108

Frjáls verslun - 01.05.2006, Side 108
108 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6 KYNN ING Ég fæ oft spurninguna: „Í hverju er starf ykkar á ráðstefnuskrifstof-unni fólgið? Þessu er ekki hægt að svara í fáum orðum, enda starf-ið innan þessarar deildar fyrirtækisins svo viðamikið, en við erum sérstök deild innan Íslandsferða, „Iceland Travel“, sem er dótturfyrirtæki „Icelandair Group,“ segir Helga Lára Guðmundsdóttir, deildarstjóri Ráð- stefnuskrifstofu Íslandsferða. „Í deildinni starfa sex manns auk mín. Við þjónum um sex þúsund manns á ári en sú tala getur farið í níu til tíu þúsund eftir því hve viða- mikil verkefnin eru en þau eru ráðstefnur, fundir, viðburðir og sýningar. Verkefnin koma í hús eftir ýmsum leiðum: Með föstum viðskiptavinum, með tilboðum, í gegnum persónulegan kunningsskap og á Netinu. Ráð- stefnuþjónusta er mjög persónuleg og þess vegna nefni ég kunningsskap sérstaklega. Í litlu samfélagi eins og okkar þekkir maður mann og góður orðrómur er okkar besta markaðssetning. Í persónulegri þjónustu felst að hugsað er um viðskiptavininn frá A til Ö en þjónusta er mismikil eftir umfangi verkefnisins. Stærri ráðstefnum, sem hafa verið í undirbúningi í allt að tvö ár, fylgja töluvert mikil samskipti og persónulegri þjónustu og náin tengsl myndast oft milli starfsmanna skrifstofunnar og viðskipta- vinarins við tíðar fundarsetur og mikil samskipti. Ég á því láni að fagna að vera með frábært fólk sem er tilbúið að gefa af sér það sem þarf og stuðlar að okkar góða orðspori.“ Mikill undirbúningur „Ráðstefnuhaldi fylgir gríðarlegur undirbúningur og þjónustan felst m.a. í að aðstoða við nákvæmar tímasetningar, bóka gistingu, funda- og sýningaraðstöðu og aðstoða við auglýsinga- og bæk- Ráðstefnuskrifstofan hefur séð um Norðurlanda- ráðsþing, ráðstefnu norrænna bæklunarlækna og Evrópuþing sérfræðinga í svefnrannsóknum. Í und- irbúningi eru, t.d. ráðstefna á vegum Háskólans í Reykjavík, European Marketing Academy og alþjóð- leg ráðstefna um málefni mænuskaddaðra. RÁÐSTEFNUSKRIFSTOFA ÍSLANDSFERÐA: Einstakir viðskiptavinir – frábært starfsfólk Starfmenn ráðstefnuskrifstofu Íslandsferða. lingagerð. Erlendir ráðstefnugestir kjósa oft að bæta dögum framan eða aftan við ráðstefnudagana og þá kemur oft til okkar kasta að skipuleggja það. Einnig þarf að skipuleggja ýmsa atburði utan formlegrar dagskrár, makaferðir og skoðunarferðir. Sjá þarf um að nægt starfsfólk sé á ráðstefnustað sem er gestum innan handar og sér um skráningu og sölu aukaatburða. Eftir á felst vinnan í uppgjöri og ýmsum frágangi. Nálgunin er mismunandi eftir verkefnum. Nú vinnum við t.d. með Félagi heyrnarlausra, sem heldur á Akureyri norræna menningarhátíð heyrnarlausra um miðjan júlí. Allir fundir með undirbúningsnefndinni fara fram með táknmálstúlkun sem hefur gefið okkur heilmikla innsýn í heim heyrnarlausra. Þegar verið var að ákveða hvar gestirnir ættu að gista, kom upp spurningin hvernig staðið væri að brunavörnum á viðkomandi hótelum, nokkuð sem ekki er hugsað út í daglega. Annað dæmi er norræn ráðstefna fatlaðra sem haldin var í Reykjavík fyrir nokkrum árum og varð til að bæta aðgengi fatlaðra til muna á nokkrum stærstu hótelum borgarinnar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.