Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2006, Page 139

Frjáls verslun - 01.05.2006, Page 139
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6 139 á vinnumarkaðnum heldur hæfni. Almenn réttindi á vinnumarkaði eru hins vegar svo miklu minni en við þekkjum t.d. heima og á hinum Norðurlöndunum. Í Seðlabankan- um er t.d. raunar ekkert til sem heitir fæð- ingarorlof, hvorki hjá konum eða körlum. Starfsmaður á kost á því að taka sér 12 vikur í launalaust leyfi og sumarfríið, það er í rauninni allt og sumt.“ Sigríður segir að það sé reyndar svolítil togstreita á milli heimavinnandi mæðra og útivinnandi. ,,Ég finn að ég er svolítið sér á báti meðal mæðra í skóla barnanna minna þar sem ég vinn utan heimilis. Það eru miklar kröfur gerðar til mæðra hér að þær geri ýmsa hluti með börnunum sínum og ég hef rekið mig á það þar að ég sé úti- vinnandi.“ Þríþætt starf og fjölbreytt Sigríður átti von á sínu þriðja barni þegar hún fór í atvinnuviðtal hjá Seðlabankan- um og það hafði engin áhrif á mat þeirra á hæfni hennar eða hugsanleg framtíð- arstörf enda fékk hún tilboð frá tveimur deild- um innan bankans og raunar fleiri frá stórum fyrirtækjum og háskól- um í Bandaríkjunum. ,,Það tíðkast að bjóða nemendum í helstu há- skólum Bandaríkjanna á ráðstefnu, sem er nokk- urs konar vinnumiðlun, þar sem þeim er boðið í viðtal til fyrirtækja, stofnana og háskóla. Ég er með græna kortið og því leyfi til þess að búa og starfa í Bandaríkjunum. Ég fór í viðtal hjá Seðlabankanum og hafði mikinn áhuga á starfi þar. Í framhaldi af því var mér boðið að velja á milli tveggja starfa í bankanum, annars vegar í alþjóða- gjaldeyrisdeild, þar sem ég væri m.a. í rannsóknum á erlendum hlutabréfamörk- uðum og gjaldeyri og hins vegar í peninga- máladeild þar sem mér hefði gefist færi á að taka þátt í mjög sérvöldum rannsóknum á bandarískum skuldabréfum. Ég valdi fyrri kostinn,“ segir hún og það má heyra á röddinni að hún brosir og sér ekki eftir valinu. „Starf mitt er mjög fjöl- breytt og skiptist í raun í þrjá hluta. Einn hlut- inn snýst um greiningu á áðurnefndum hátíðni- gögnum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum Við erum sex doktorar í hag- fræði í deildinni minni, hnífjafnt kynjahlutfall, auk þriggja aðstoðarmanna og ritara. Við skiptum með okkur vöktum er þessa vinnu varðar þannig að ég tek vaktina um fimmtu hverju viku. Þessi hluti starfsins krefst þess að við séum í mjög nánu sambandi við fjármálamarkaði og bankastjórnina. Annar hluti starfsins felst í gerð skýrslna fyrir bankastjórnina, bæði skýrslna fyrir fundi þar sem vaxtaákvarðanir eru teknar og almennar skýrslur um málefni sem þeir óska eftir og eru á okkar sérsviði. Skýrsl- urnar eru hafðar til hliðsjónar þegar vext- ir Seðlabankans eru ákvarðaðir en þær ákvarðanir hafa bein áhrif á langtímavexti hér í Bandaríkjunum og raunar annars stað- ar í heiminum. Síðasti þriðjungurinn fer síðan í frjálsar rannsóknir.“ Rannsóknir á samhreyfingum gjaldmiðla Rannsóknir eru auðvitað líf og yndi sér- hvers fræðimanns. ,,Mér finnst þær rann- sóknir sem ég er að vinna að núna mjög áhugaverðar en það eru samhreyfingar gjaldmiðla. Þá er ég að kanna hvort gjald- miðlar á markaði hagi sér öðruvísi þegar það er gengislækkun en þegar það er gengishækkun. Eru t.d. neikvæð viðhorf gagnvart ákveðnum gjaldmiðlum á ákveðn- um tímum, sem gerir það að verkum að gjaldmiðillinn fellur hraðar, tekur lyftuna niður eins og það er nefnt í hagfræðinni, en rís síðan hægar, þ.e. tekur stigann upp? Af hverju virtust ákveðnir gjaldmiðlar fylgja á eftir þegar t.d. íslenska krónan byrjaði að falla í lok febrúar og af hverju fylgdu ekki sömu gjaldmiðlar eftir hreyfingum krón- unnar þegar hún hækkaði árið 2005? Og af hverju fylgdu þeir ekki jafnmikið eftir falli krónunnar þegar alþjóðlega matsfyrirtæk- ið Fitch Ratings tjáði sig um íslenska efna- hagslífið um miðjan júní? Þetta er mjög spennandi rannsóknarefni bæði út frá hag- fræðilegu og stærðfræðilegu sjónarhorni. Seinna hef ég mikinn áhuga á að skoða verðmyndun á hlutabréfamarkaðnum á Íslandi, þar sem ég myndi þá skoða há- tíðnigögn, með það að markmið að kanna hvort einstök viðskipti hafi veruleg áhrif á verðmyndun þar,“ segir Sigríður Benedikts- dóttir, sem reyndar gengur undir nafninu Sigga í Bandaríkjunum þar sem hennar ís- lenska nafn þykir dálítið erfitt í framburði. Landinn er hins vegar alltaf stoltur af fram- gangi og sókn sinna þegna út í hinum stóra heimi og mun án efa líta á Siggu sem full- trúa Íslands í starfsliði stjórnar Seðlabanka Bandaríkjanna jafnvel þótt þjóðerni komi starfinu sjálfsagt jafnlítið við og kynið! V I N N U R F Y R I R S E Ð L A B A N K A B A N D A R Í K J A N N A Sigríður Benediktsdóttir starfar fyrir stjórn Seðlabanka Bandaríkjanna. Af hverju virtust ákveðnir gjaldmiðlar fylgja á eftir þegar t.d. íslenska krónan byrjaði að falla í lok febrú- ar og af hverju fylgdu ekki sömu gjaldmiðlar eftir hreyfingum krónunnar þeg- ar hún hækkaði árið 2005?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.