Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Page 13

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Page 13
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 3 félagsmanns í Máli og menningu. Við höfðum ekki fyrr kynnt okkur hana en við sögðum einum rómi: Þetta rit verður Mál og menning að gefa út. Hver er þessi hók? Hún heitir á ensku A Treasury oj Science (orðrétt þýtt Fjársjóður vísinda), en titillinn Undur veraldar svarar bezt til efnis og anda bókarinnar og fer bet- ur á íslenzku. Þetta rit, sem er yfir 1000 síður í Skírnisbroti, gefur einstak- lega ljósa og töfrandi mynd af starfi hinna frægustu vísindamanna og þeim sannkölluðum undrum veraldar, sem vísindin ljúka upp á fjölmörgum svið- um. Bókin er saman tekin af forseta vísinda- og lista-akademísins í Banda- ríkjunum, Harlow Shapley, prófessor við Harvardháskóla, og nefnd vísinda- manna með honum. Og hún er saman tekin með þeim hætti, að fyrst gerðu þeir sér hugmynd og áætlun um verk- ið, unnu síðan að því á annað ár að fara yfir þúsundir rita og ritgerða vísindalegs efnis, og að þeirri yfirferð lokinni vörðu þeir mánuðum til að velja úr efninu og setja saman úr því það verk, sem þeir höfðu gert sér á- ætlun um. Bókin er því að einu leyti úrval hins bezta, sem ritað hefur ver- ið í vísindum. Akaflega strangt tillit hefur verið tekið Ijósrar og skemmti- legrar framsetningar, því að ritstjór- arnir settu sér að gera hana auðlæsi- lega hverjum leikmanni. Að öðru leyti er bókin alhliða mynd nútíma vísinda og ennfremur þróunarsaga þeirra. Ef til vill gerir bókina ekkert jafn hrífandi sem það', að við finnum þar alls staðar nálægan anda og persónuleika vísindamannanna sjálfra, því að þeir eru sem víðast í bókinni látnir sjálfir flytja mál sitt, gefa lýsingu á starfi sínu og uppfinningum. Þarna eru greinar og kaflar úr ritum eftir heimskunna vís- indamenn, sem margir eru jafnframt stærstu persónuleikar mannkynssögunn- ar: Kopernikus, Galilei, Newton, Darwin, Pavloff, Einstein, Pasteur, Thomas og Julian Huxley, Haldane o. fl. o. fl. Okkur þykir gaman að sjá Vilhjálm Stefánsson í hópi þessara ntanna. Við kynnumst með andblænum í orðum þessara vísindamanna hinni ástríðuíullu leit mannsandans eftir þekkingu og ráðningu á gátum tilverunnar, ráðningum á undrum veraldar, sem verða reyndar því óumræðilegri, sem þekking mannsins nær lengra, eins og svo fall- ega er lýst í einum kafla bókarinnar, sem Agúst H. Bjarnason prófessor hefur þýtt og birtur er hér á eftir. Við lesum í þessari bók það, sem vísindamenn- irnir hafa sjálfir að segja um þau efni, er þeir þekkja bezt, um jurtir og dýr, um menn og himintungl, um veðrið, landskjálfta, aldur og framtíð jarðar, Harlow Shapley
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.