Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Síða 20
10
TÍMARIT MALS OG MENNINGAR
ingum, rakningu allskonar sjálfsagðra hluta og almennra efna, sem auðvelt
er að afla sér betri fræðslu um annars staðar. Nauðsynlegar upplýsingar
vantar, en hégómlegir hlutir eru margteknir fram. Eg leita í Barðstrendinga-
bók að fræðslu um þrjá stórmerka menn, sem lifðu og störfuðu í þessari
sýslu, en þeirra er hvergi getið. I sögu Borgarfjarðar rekst ég á tvítekna frá-
sögn af kvíahellunni á Húsafelli og hve þung hún sé; á seinni staðnum er
þess kyrfilega getið hvað mennirnir hétu, sem vógu stein þenna fyrir nokkr-
um árum.
Sannleikurinn er sá, að tilviljunarkenndur, illa kerfaður fróðleikur, bland-
inn ljóðrænum ástarjátningum til átthaganna og huglægum vangaveltum, er
ekki það sem almenning varðar um hin ýmsu héruð landsins, þótt að öðru
leyti sé margt gott um bækur þessar, og lofsverður sá áhugi sem felst bak við
þær. Okkur vantar hinsvegar aðgengileg uppsláttarrit um hvert hérað, alfræði
hvers héraðs, samda eftir stafrófsröð um sent flest þau atriði, er héraðið
snerta sérstaklega, einkum persónusögu og staðfræðileg efni. Slíkt rit þarf
að geyma nöfn, upplýsingar og tilvísun unt uppruna sérhvers ntanns úr hérað-
inu að fornu og nýju, sem nokkuð er hægt að vita unt; fróðleik um allar jarðir
í héraðinu, sérhvert örnefni undantekningarlaust, og sögu þess ef til er; upp-
lýsingar um drauga og forynjur í héraðinu og aðra þjóðtrú, sent liggur í
landi; um vinnubrögð sem eru sérstök og einkennileg fyrir héraðið, svo sem gert
er í hinni ágætu ritgerð Þorleifs Bjarnasonar um bjargsig í Hornstrendingabók;
um orð og orðatiltæki, sem tengd eru þessum sérstöku vinnubrögðum, svo og
afbrigði í máli, sérstakt orðaval eða framburður sem einkennir héraðið. Slík
héraðsrit, gerð með hagkvæmri niðurskipun, laus við huglægar athugasemdir
misgóðra höfunda um almenn efni, gætu í senn verið þarfar handbækur og
skemmtilestur fyrir alla, sem einhvers meta áþreifanlegan, óþvoglaðan fróðleik.
En hvort sem slíkur fróðleikur verður gefinn út í sérstökum héraðsbókum
eða ekki í framtíðinni, þá er fræðasöfnun af þessu tagi þjóðnýtt starf, sem
áhugamenn og opinberir aðiljar ættu að leggjast á eitt um að vinna á kom-
andi árum, líta þó ekki á það sem takmark í sjálfu sér, heldur þátt í þvi
verki sem nauðsyn ber til að unnið sé hér á landi, en það er sanming alfræði-
rits um Island, Islandsbókar, orðabókar um öll íslenzk efni, þar sem tilkvæm-
ar séu sem fullkomnastar upplýsingar í stuttn máli um hvaðeina er snertir
land, þjóð og sögu.
H. K. L.