Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Page 29

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Page 29
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 19 kennda umfrymis er frumukjarni (nucleus), sem hjá karlmanninum hefur 47, en hjá kvenmanni 48 svonefnda litninga (chromosomes) í sér fólgna; en hver þeirra myndar tvöfalda perluröS af svonefndum litnisdeilum, en í þeim eru hinir svonefndu arfgjafar (genes), sem eru undirstaða erfðanna. A svipaðan hátt er því farið með sjálfar frumeindir efnanna. Áttatíu og níu ólíkar tegundir frumefna eru fundnar af þeim 92, sem gert er ráð fyrir að til séu, og vér vitum nú, að þau eru aðeins hvert öðru frábrugðin í þeim fjölda frádrægra rafeinda (nega- tivra elektrona), er í misvíðum baugum fljúga um hinn pósitivt hlaðna kjarna (proton), svo að líta má á hverja frumeind sem of- urlítið, ósýnilegt sólkerfi. En hvílík snilld er ekki í því fólgin að vefa hin marglitu klæði veraldar og alla þá hluti, sem í henni eru, úr þessum viðlægu og frádrægu rafeindum, auk sjálfrar sálarinnar, sem höfð er til þess að skyggnast inn í vefinn til þess að uppgötva gerð hans og starf. Fjórða tilefnið til skynsamlegrar undrunar er skipulagning nátt- úrunnar, sem er hér um bil það sama og að segja, að hún geti orðið manni skiljanleg. Hversu mikið er ekki fólgið í þeirri staðreynd, að menn skuli hafa reynzt færir um að skapa sér náttúruvísindi! Hafi stjörnufræðingur náð 3 góðum athugunum af halastjörnu, getur hann sagt fyrir um endurkomu hennar svo að varla skeiki um nótt, þótt ár og aldir líði. Það er því enginn ímyndaður heimur, sem vér lifum í, heldur nákvæmlega skipulagt heimskerfi. Því meir sertl vís- indunum fer fram, því minna ber á tilviljuninni einni saman og því fleira má segja fyrir. Tveir stjörnufræðingar sögðu fund stjörn- unnar Neptúnus fyrir. Efnafræðingar hafa sagt fyrir fund nýrra frumefna. og líffræðingurinn getur ekki einungis talið, heldur og búið til myndir af kjúklingum þeim, sem enn er óklakið út. Skipu- lag náttúrunnar er vissara en allt annað, og eðlisfræðingar nútím- ans segja, að það geti ekki verið sprottið af tómri tilviljun. Það er því tími til kominn að jarða orðið „tilviljun“. Jafnvel frumþok- an var ekki neitt af því tægi. — Vissulega hafa mennirnir þjáðst af allskonar sjúkdómum og slysförum, óáran elds og ísa o. s. frv.; — engum dettur í hug að neita skuggahliðunum. En jafnvel þessar truflanir eru ekki af handahófi. Og svo að ég vitni í orð frægs
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.