Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Side 41
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
31
geisa milli nazista og alþýðu manna. Hungursneyð og farsóttir
munu tíiinda fólkið, nema víðtækar ráðstafanir verði gerðar til
að afstýra skelfingum. En þegar búið er að seðja sárasta sultinn,
þegar búið er að ráðstafa stríðsglæpamönnunum og fólkið hefur
hefnt harma sinna, þá rísa upp hin gömlu vandamál um skipan
Evrópu, um skipan alls heimsins. Það er í þessu efni, sem menn
hafa geíið ímyndunarafli sínu lausan tauminn og búið til og sniðið
heimsskipulög, hver eftir sinni getu.
Ef litið er á þau stórveldi, sem sitja á bekk hinna sameinuðu
þjóða, þá er ekki neinurn getum að því að leiða, að Ráðstjórnar-
sambandið mun bera ægishjálm á meginlandi Evrópu. Þetta verða
menn að sætta sig við, hvort sem þeirn þykir það Ijúft eða leitt.
„Hvað munu Rússar gera?“ er spurning, sem maður heyrir í hvert
skipti sem rætt er um friðinn. Og menn gera sér hinar furöulegustu
hugmyndir um það, sem Rússar r.iuni gera. Allar slíkar bollalegg-
ingar eru tilgangslausar. Eitt er víst, að Rússlrnd mun krefjast
slíkrar skipanar í Evrópu, að álfan verði ekki á nýjan ieik vermi-
reitur nazískra ævintýramanna né annarra, er geti gert sér bolsje-
víkagrýluna að pólitísku lífsuppeldi og stofnað til alþjóölegs sam-
særis gegn ríki sósíalismans. En það er ekki á valdi Ráðstjórnar-
ríkjanna einna að koma á slíkri skipan. Menn ættu því frekar að
spyrja: „Hvað munu þjóðir Evrópu gera?“ Munu þær sætta sig
við hina sömu pólitísku og félagslegu skipan að ófriðarlokum og
þær áttu við að búa fyrir stríð? Það þarf ekki annað en að setja
spurninguna fram til þess að sjá, að hún er fásinna. í ríkjabelti
því, sem myndað var eftir síðustu heimsstyrjöld ríkti stjórnarfar
fasismans nálega alls staðar, allt frá Finnlandi til Balkanlanda, að
báðum meðtöldum. Fasistar þessara landa hafa unnið sér svo til ó-
helgi, að þeir verða dæmdir sem pólitískir glæpamenn. Óll þessi
lönd telja rúmlega 100 milljónir íbúa, meirihlutinn örsnauðir,
jarðnæðislausir bændur. 1 löndum þessum verður án efa róttæk
bændabylting í bandalagi við lýðræðislegt stjórnarfar. Bændabylt-
ingin í Austurevrópu og Balkanlöndum mun útrýma hinni herskáu
yfirstétt þessara landa, og með nýrri landbúnaðartækni mundu
þessi kostaríku lönd verða friðsælir bústaðir vinnandi fólks, í stað
þess að þau hafa veriö til þessa illvígasti hluti álfunnar.