Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Page 42

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Page 42
32 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR í Þýzkalandi hefur hin grimma og átfreka yfirstétt í stóriðnaði, fjármálum, landbúnaði og her svarizt í slíkt fóstbræðralag við naz- ismann, að hún hlýtur að bíða sömu örlög og hann. Það er blátt áfram skilyrði fyrir friði í Evrópu, að þessari stétt verði stevpt úr þeim valdastóli, er hún hefur skipað um svo langan aldur. í hönd- um þýzku þjóðarinnar verður framleiðslubákn Þýzkalands, tækni þess og skipulagssnilli, til blessunar öllum heimi. í höndum hinnar þýzku yfirstéttar verður Þýzkaland það voðaskeyti, sem jafnan er beint að hjarta menningarinnar. En framtíðarskipan innanríkismála Evrópu verður að vera verk þeirra þjóða, sem byggja lönd Evrópu. Lýðræði og sósíalisma verð- ur ekki komið á með valdboði erlendra herja. I neðanjarðarsam- tökum undirokaðra stétta og þjóða, í skæruliðahópunum og í verk- smiðjuráðunum munu upp vaxa hin nýju skapandi öfl Evrópu, sem reisa við svívirta, eldforna menningu hennar og veita henni ný þroskaskilyrði, sem hæfa okkar öld. Frjálslyndir amerískir stjórnmálamenn hafa kallað þessa öld alþýðumannsins öld. Hún er það enn sem komið er aðeins að stefnu- skrá. Til þessa hefur hlutur alþýðumannsins, hlutur hins vinnandi manns, verið fyrir borð borinn. Alþýðan hefur orðið að bera ógnir stríðsáranna og sult hinna svokölluðu friðarára. Svo hefur það verið um allan hinn borgaralega heim. Þegar einn kunnasti mat- vælafræðingur Breta, Sir John Orr, lýsir því yfir í bók sinni: What are we fighting for?, að þriðjungur íbúa Bretlandseyja fái aldrei fullan kvið, þá geta menn ímyndað sér, hvernig vera muni hagur alþýðumannsins í þeim löndum, sem fátækari eru. Eða þeg- ar Henry Wallace, varaforseti Bandaríkjanna, segir frá því 1939, að helmingur íbúa Bandaríkjanna fái ekki nóg af mjólkurafurðum, grænmeti né ávöxtum, þá birtist eyðilegging Ameríkumanna á mat- vælum í nýju ljósi. Friðarárin og styrjöldin, sem á eftir fór, hafa ljóstrað meiru upp um eðli þess þjóðfélagsskipulags, sem hvílir á einkaeignarrétti fram- leiðslutækja og lífsuppsprettulinda, en allar bækur og allur áróður sósíalista frá upphafi og fram á þennan dag. Sú reynsla hefur fært mönnum heim sanninn um það, að framleiðsla gróðans er ósam- rýmanleg framleiðslumætti og framleiðsluþörfum mannanna. Þetta
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.