Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Blaðsíða 92
82
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Vilji menn krefjast þess af bókinni, að hún sé héraðssaga og alhliða lýsing,
eru efnishlutföll hennar ekki rétt. Þannig eru sjósókn og heimilisiðnaði gerð
ólíkt minrii skil en baráttunni við björgin. En sú er orsökin, að sjósókn, sem
að vísu var aðalatvinnuvegur, greinir Homstrendinga lítt frá öðrum Vest-
firðingum. Það er efasamt, að sögu höfuðgreina atvinnulífsins sé hægt að
segja í héraðssögum á viðhlítandi veg, hún er landssaga. En Hom og Hæla-
víkurbjarg eiga ekki aðra en Hornstrendinga.
Björn Sigfússon.
Matur og megin
Are Waerland: MATUR OG MEGIN.
Þýðandi: Bjöm L. Jónsson. Utgefandi: Náttúru-
lækningafélag Islands. Reykjavík, 1943.
Vér lifum á byltingatímum. Vísindin og tæknin eru að umskapa heiminn
og breyta lifnaðarháttum fólksins. Sá grundvöllur, sem lífsvenjur undanfar-
andi kynslóða hafa verið byggðar á, er nær hruninn til grunna. Umhverfið
er gjörbreytt. Stórborgir og verksmiðjur, það er sá heimur, sem mestur hluti
hins hvíta kynstofns lifir nú og hrærist í. Vér erum að fjarlægjast gróður
jarðarinnar. Maðurinn er að undiroka náttúruna, en hann fjarlægist hana um
leið. Skynsemin er að yfirbuga eðlishvatimar.
Það fer ekki hjá því, að bylting sem þessi hafi veruleg áhrif á fólkið
sjálft, heilbrigði þess og hamingju. Andi mannsins skapar nýtt umhverfi, en
það getur tekið langan tíma fyrir Hkamann að laga sig eftir hinum breyttu
kringumstæðum. Það er því mjög hætt við því, að maðurinn komist í and-
stöðu við lögmál náttúrunnar, í það minnsta í svipinn. Það er hætt við því,
að honum gleymist það, að liann er náttúrunnar barn, að líkami hans er
byggður og starfar á svipaðan hátt og líkami annarra spendýra og verður
að meðhöndlast með tilliti til þess. Kyrrsetur, innivera og breytt mataræði
fylgja siðmenningunni. Af þess háttar lífsvenjubreytingum getur það leitt, að
þörfum líkamans sé ekki fullnægt eins og vera her, en afleiðingar þess eru
sjúkdómar og ótímabær dauði. Það er sú refsing, sem náttúran leggur á hverja
þá lífveru, sem óhlýðnast lögmálum hennar.
Starfsemi Náttúrulækningafélags Islands er mjög virðingarverð viðleitni í
þá átt að forða fólki frá þessari refsingu náttúrunnar, kenna því að lifa í
samræmi við lögmál náttúrunnar, gera það löghlýðið, ef svo mætti segja.
Einkuni hefur Náttúrulækningafélagið beitt sér fyrir hættu mataræði fólks,
varað við ýmsum einhæfum fæðutegundum og gervifæðu, en hvatt til meiri
neyzlu grænmetÍ9, heilkorns og ávaxta. Félagið hefur gefið út bækur áhuga-
málum sínum til stuðnings, og er bókin Matur og megin, eftir A. Waerland,
sú þriðja í röðinni. Áður eru komnar út: Sannleikurinn um hvítasykurinn,
eftir A. Waerland, og Nýjar leiðir, eftir Jónas Kristjánsson.