Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Qupperneq 33

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Qupperneq 33
ÍIANNES PÉTURSSON Þorgeir Hávarsson í Fóstbræðra sögu og Gerplu FÓSTBRÆÐRA SAGA arkmib þessarar ritgerðar er að draga fram höfuðeinkenni nafnanna, þeirra Þorgeirs Hávarssonar í Fóstbræðra sögu og Gerplu. Sú spurning hlýtur að vakna við lestur síðarnefndu bókarinnar, að hve miklu leyti Þorgeir í Fóstbræðra sögu sé fyrirmynd hins. Eins geta þeir tæpast verið, því ekki var ástæða til að færa manngerðina Þor- geir óbreytta frá einni bók til annarrar. Það leynir sér ekki heldur, að Gerplu-Þor- geir er annar og nýr Þorgeir Hávarsson. Eg ræði sér í lagi um hvora bókina. Allar tilvitnanir í Fóstbræðra sögu eru teknar úr útgáfu Hins íslenzka fornritafélags, Islenzk fornrit VI. bindi, Rvík 1943. I Allskiptar skoðanir eru uppi um það, livert handrit Fóstbræðra sögu geymi hina upprunalegu sögu. Er ekki ástæða til að rekja það mál ýtarlega hér, þar sem ritgerð þessi fjallar ekki um það, hvernig sagan kann að hafa litið út nýsamin, heldur hitt, hvernig hún er nú. Þó get ég ekki stillt mig um að minnast lítillega á afstöðu fræði- manna gagnvart hinum frægu stöðum í sög- unni, sem sumir nefna „klausur“, því þær eru, eins og sagan hefur verið á horð borin, órjúfanlega tengdar frásögninni um Þor- geir, eins og síðar mun að vikið. Skoðanir fræðimanna skiptast í tvennt, hvað þetta snertir. Langflestir ætla klausurnar síðari tíma innskot, gerð af einhverjum skrásetj- aranum á 13. öld; Hauksbók geymi upp- runalegastan texta. Svo farast Bimi Karel Þórólfssyni orð í formála að útgáfu sinni á sögunni, Kaupmannahöfn 1925—27 (þýtt af mér): „Það er ekki minnsti vafi, að um- ræddar breytingar á textanum eiga rætur að rekja til endursemjanda, sem sníða vildi söguna að eigin geðþótta (og þá jafnframt að tíðarandanum). Ekki kemur til mála, að þær séu aðeins meira eða minna tilviljunar- kenndar breytingar af völdum skrásetning- ar. Endursemjandi þessi hefur ekki hikað við að hæta í söguna annarlegum atriðum, sem á engan hátt voru samrýmanleg hinni klassísku sagnalist." Varla var hróflað við þessari afstöðu, þar til Sigurður Nordal kom með þá kenningu (í formála að fsl. fornr. VI, 1943) að klaus- urnar væru upprunalegar í sögunni, sem stöðugt hefði verið að styttast og fágast í meðförum, vegna batnandi smekks á ritað mál, eða eins og hann segir, „að tvisvar verði gamall maður barn, og vera mætti, að 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.