Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Síða 77
FRÁ UNGVERJALANDJ
andi meirihluti ungversku þjóðarinn-
ar mundi hafa varið ávinninga sósíal-
ismans, alveg eins og hann er reiðu-
búinn að verja þá aftur nú. Leiðtogar
gagnbyltingarinnar voru svo ráðugir
að velja sér kjörorð, sem gátu komið
þeirri trú inn hjá almenningi, að þeir
væru að berjast fyrir eins konar lýð-
ræðislegum sósíalisma, er virða
mundi þjóðlegar erfðavenjur, en sam-
tímis- reiddu þeir allt frá upphafi öxi
sína til höggs að sjálfum rótum sósíal-
ismans. Gagnbyltingarsinnar fóru
ekki að boða opinberlega kjörorð sín
um endurreisn kapítalismans fyrr en
síðustu dagana í október.
Mánuðina á undan októberatburð-
unum var þannig bæði opinber og
leynileg mótspyrnuhreyfing, er koma
vildi Rakósístjórninni frá. Það voru
einkum menntamenn, er forustu
höfðu fyrir þeim, er störfuðu opinber-
lega, þeir vildu stefna að uppbygg-
ingu sósíalistísks skipulágs með því
að endurreisa lýðræðið í opinberu
lífi, bæði á félagslegu og efnahagslegu
sviði. Þróunin í lýðræðisátt var þeg-
ar byrjuð, en stirðleiki og andstaða
gömlu föringjanna, er vildu halda
völdum sínum, gerði þjóðina óþolin-
móða. Þeir, sem störfuðu í leyni, vildu
endurreisa stjórn landaðals og kapí-
talista með vopnaðri uppreisn.
Þegar komið er að atburðunum 23.
október og dagana þar á eftir, er rétt
að vitna til nokkurra staðreynda, sem
sanna, að um var að ræða raunveru-
lega gagnbyltingarhreyfingu í Ung-
verjalandi.
Fyrst er rétt að vitna í ummæli í
grein eftir fréttaritara „Daily Mail“
og birt var 25. október: „Ég hef snætt
miðdegisverð síðustu dagana með
frjálsum mönnum, sem síðastliðið ár
hafa unnið að því að skipuleggja þá
uppreisn, er brauzt út í þessari viku.“
Atburðirnir 23. okt. voru vissulega
framkallaðir af óyfirlögðum aðgerð-
um ungra menntamanna og háskóla-
stúdenta. En kröfugöngumönnum var
þegar beint að yfirlögðu ráði að út-
varpsstöðinni, miðstöð símasambahds
við útlönd, vopnageymslum og sam-
göngumiðstöðvum. Það er kannski
ekki úr vegi að geta um eitt atvik.
Eftir töku útvarpsstöðvarinnar voru
kommúnistarnir, sem störfuðu þar,
lokaðir inni í herbergi einu og skildir
eftir í umsjá vopnaðs stúdents. Þegar
hann var orðinn einn eftir, sleppti
hann föngunum og sagði, að hann
hefði ekki ímyndað sér, að það byrj-
aði svona.
Hinn 25. okt. skýrði ungur maður
á ferðaskrifstofunni IBUSZ, sem unn-
ið hafði þar í nokkra mánuði og ver-
ið kosinn í verkamannaráð, frá því.
að hann hefði starfað á skrifstofunni
undir röngu nafni og að hann hefði
snúið heim til Ungverjalands frá
Vesturlöndum fyrir fjórum mánuðum
til þess að taka þátt í undirbúningn-
um undir vopnaða uppreisn.
Veitið því einnig athygli. að vopn-
67