Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 82

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 82
J UAN ÍÍAMON JIMENEZ Tvö kvæði Juan Ramón JimÉnez fæddist 1881 í Morguer f Andalúsíu. Kominn af ríkum foreldrum gat hann alla tíð helgað sig einvörðungu ljóðlistinni. Æskuárum sínum eyðir hann í fæðingarþorpi sínu meðal hvítra sólhrenndra liúsa og víngarða í nálægð hafsins, sem flyt- ur kvöldsvala eftir liita dagsins. 1895, l)á fimmtán ára, byrjar hann að skrifa og litlu síðar að hirta ljóð sín í ýmsum blöðum og tímaritum hæði í Andalúsíu og Madríd, og áður en hann flytur jiangað alda- mótaárið, er hann vel jiekktur af ljóðunnendum, sem bíða eftir innreið þessa ljóðræna skálds í kvöldsamsæti listelskra sem þá tízkuðust mjög í höfuðborginni. En þegar liann kemur, kemur hann til að einangra sig, til að lifa efnalega áhyggjulaus í sínum eigin ljóð- heimi. Hann hverfur frá liinni ríkjandi nútímastefnu annarra spænskra Ijóðskálda, vex undan áhrifum spænskra rómanza og rómantíkur. Hinn ytri lieimur, ef liann hefur verið honum nokkurntíma til, hverfur honum algerlega öðruvísi en í nokkurs konar draumsýn, ljóðið verður einlægt, minning, einfalt í sniði, unnið, svo að það verður átakalaust að ytra útliti, slétt og fellt, hreint ljóð. Það er þú með bók sinni Sumar 1915 og Dagbók ný- gifts skúlds 1916, sem bann hefur hreinsað sig af áhrifum og skapað sinn eigin stíl, sem helzt óbreyttur gegniim öll hans verk, hvar sem þau eru skrifuð og undir hvaða kringum- stæðum, livort sem liann dvelur langdvölum fjarri ættjörð sinni á ferðalögum eða land- flótta eftir borgarastyrjöldina, svið ljóðanna verður fæðingarþorpið: hvít sólbrennd hús og víngarðar í nálægð hafs, sem flytnr kvöldsvala eftir liita dagsins, þá er draumkennt líf fæðist minningunni. 011 ljóð lians einkennast því af einlægni draumkenndrar minningar og depurðar, náttúrustemmningu og hjúpaðri þrá, sem oft nálgast það að vera væmin. Hann skrifar eins og hann segir fyrir liina fáu, þá sem líta á list sem nautn án notagildis. Jiménez hefur verið kallaður faðir spænskrar nútímaljóðagerðar vegna hinna miklu ábrifa sem liann liafði á alla ljóðagerð spænsknmælandi þjóða, einkum þó á hin fjögur skáld sem gnæfa upp yfir spænska Ijóðagerð síðari tíma, þá Jorge Guillén, Pedro Salinas, Rafael Alberti og Garcia Lorca, þó þau álirif liafi varað stutt og óbeint vegna takmarka ljóðforms hans, því þegar 1925 eru þessi fjögur skáld orðin fullmótuð sjálfstæð skáld og kenna sig Kynslóðina frá 1925. I landflótta sínum eftir borgarastyrjöldina dvelur Jiménez mestmegnis í Washington og síðarmeir á eyjunni Puerto Rico og það er þar sem hann tekur við verðlaunum Nóbels 1956 við dánarbeð konu sinnar, sem alla tíð fylgdi honum og varði liann gegn hnjaski heimsins. Og á Puerto Rico deyr liann snemma á þessu ári. Kannske er það kaldhæðni örlaganna við þetta skáld, að þó hann liafi alltaf þverneitað boði þeirrar stjórnar, sem liann flýði, að hverfa heim aftur til þess lands sem hann þráði, þá er liann ekki fyrr dáinn með ósk um að fá að livíla við lilið konu sinnar og annarra 72
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.