Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Page 59
MILLIFÆRSLUKERFIÐ
erlendan gjaldeyri fyrir vömútflutning, um
leið og kaupin fara fram.
Af þessum ástæðum viljum við spyrjast
fyrir um, hvort Seðlabankinn telji vand-
kvæði á, að slíkri skipan verði komið á
greiðslu verðbóta á vöruútflutning.
Virðingarfyllst,
F. h. stjórnar Utflutningssjóðs
Haraldur Jóhannsson Arni Benediktsson.
Stjórnarskipti urðu nokkrum dögum, eft-
ir að bréf þetta var sent. Við tók minni-
blutastjórn með stjórnarskrárbreytingu á
stefnuskrá sinni. Ríkisstjórn þessi ltafði
naumast undan með afgreiðslu nauðsyn-
legra mála, því að tvennar kosningar fóru
fram um hennar daga. Þessi breyting á til-
högun greiðslu útflutningsuppbóta kom
þess vegna ekki til framkvæmda. Og ekki
var tekið til athugunar að fella niður
vinnslubætur og skipta landinu í nokkur
fiskverðssvæði. Ótvírætt kom í ljós, að
margir þeir, sem hlut áttu að máli, höfðu
ekki ábuga á endurskipulagningu milli-
færslukerfisins. Þeir munu þegar um ára-
mótin 1958—1959 hafa tekið stefnu á geng-
islækkun. Af þeini sökutn hafa þeir viljað
forðast aðgerðir, sem dregið gætu á lang-
inn endurskráningu krónunnar.
Reykjavík, 3. maf, 1960.
201