Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Blaðsíða 98
Til félagsmanna Máls og menningar
T 7ið viljum enn á ný ítreka það sem oft hefur verið sagt áður: að Mál og menning getur
ekki gegnt hlutverki sínu svo vel sé, nema rit félagsins hafi sem víðasta útbreiðslu
með þjóðinni. Félagið var stofnað sem a/Jiýðlegt bókmenntafélag og náði glæsilegum
árangri á þeim grundvelli þegar á fyrstu árum sínum. Þó nú séu aðrir tímar, og óhægra
sé um bókaútgáfu á margan hátt heldur en þegar félagið var stofnað, ætti sá grundvöllur
enn að vera óhaggaður. En Máli og menningu dugir ekki að halda rétt í horfinu, heldur
þarf tala meðlima að aukast jafnt og þétt ef féiagið á að njóta svipaðrar aðstöðu og í upp-
hafi. Það ætti að vera tiltölulega auðvelt verk að fjölga félagsmönnum að miklum mun
ef tekið er til höndunum. Þess vegna heitum við nú enn á hvern félaga Máls og menningar
að útvega að minnsta kosti einn nýjan meðlim. Nöfn og heimilisföng má senda Bókabúð
Máls og menningar, Skólavörðustíg 21, Reykjavík, eða tilkynna í síma 15055.
Félagsmenn eru beðnir að létta undir með afgreiðslu Tímaritsins, setn héðan af verður
sent þeim beint í pósti, með því að tilkynna Bókabúð Máls og menningar um breytingu
á heimilisföngum.
Félagsbœkur á árinu verða: nýtt bindi af Mannkynssögu Máls og menningar. Þetta
bindi fjallar um tímabilið 1789—1850. Ilöfundur er Jón Guðnason cand. mag. Stjórn
Máls og menningar hefur nú gert ráðstafanir til að hægt verði að halda áfram útgáfu
mannkynssögunnar nokkum veginn reglulega. Þá mun Mál og menning hefja í haust
útgáfu myndlistarbóka. Fyrsta bókin verður með myndum franska málarans Pauls
Cézannes. Ekki er enn fullráðið, hvort fleiri bækur koma á þessu ári, en félagsmenn njóta
þeirra hlunninda að fá útgáfubækur Heimskringlu með 25% afslætti.
Nýja bókabúSin. Unnið er nú af kappi við að fullgera hús Máls og menningar, og er
ætlunin að flytja í bókabúðina fyrir næstu jól. Innrétting búðarinnar mun kosta mikið fé
og lántökur eru dýrar nú á tímum. Félagsmenn eru minntir á að allur ágóði af hinni
vönduðu útgáfu Heimskringlu á KvœSum og sögum Jónasar Hallgrímssonar með formála
eftir Halldór Kiljan Laxness rennur til að kosta innréttingu bókabúðarinnar. Með því að
kaupa þessa bók, sem smekkmenn álíta með fallegustu bókum sem út hafa verið gefnar á
Islandi, stuðla félagsmenn að því að Mál og menning fái framtíðarþak yfir höfuðið. Ekki
þarf að útskýra, hve mikið hagræði verður að liúsi Máls og menningar fyrir alla starfsemi
félagsins þegar fram í sækir, þó það kosti mikið átak að korna því upp.
240