Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Blaðsíða 95
UMSAGNIR UM BÆKUR
merkilegt má það kallast, að hún skuli vera
talin írsk. Þegar greint er frá landnáms-
mönnum, sem voru ekki írskir, getur Kjal-
nesinga saga ekkert um þjóðerni þeirra.
Hér kemur því svipað fram og í ýmsum öðr-
um ritum frá þessu tímabili, að mikil á-
herzla er lögð á írskan uppruna Islendinga.
Ari fróði gengur hins vegar svo langt í því
að telja Islendinga komna frá Noregi, að
hann kallar Helga magra norrænan mann,
þótt Helgi væri sænskur í aðra ættina og
írskur í hina og fæddur og alinn upp í Suð-
ureyjum og írlandi. Á dögum Ara stafaði
Islendingum engin hætta af Norðmönnum,
en þegar landið er komið undir Noregs-
konung er farið að rifja betur upp allt það,
sem benti frá Skandinavíu um uppruna ís-
lendinga.
Það má teija mjög vafasamt, að arfsagnir
um írska frumbyggja Kjalarness hafi varð-
veitzt þar unz sagan var rituð. Það er til að
mynda eftirtektarvert, að írski dýrlingurinn
Kolumkilli er ekki kallaður því nafni, sem
írsk og íslenzk alþýða kölluðu hann. I Kjai-
nesinga sögu (eins og í Sturlubók Land-
námu) er hann kallaður hinu lærða nafni
Kolumba, sem er auðsæilega tekið eftir rit-
uðum heimildum. Svipuðu máli gegnir um
nafn hins írska konungs Konofogurs. Það
er ef til vill sótt til Olafs sögu helga. Nafn
Búa og viðurnefni virðast vera sótt til
tveggja manna, sem börðust gegn Noregs-
konungum, þeirra Búa Vésetasonar og Þór-
is hunds. Höfundi Kjalnesinga sögu hafa
verið þeir menn mjög að skapi, sem hlíttu
ekki boðum konunga og börðust gegn
þeim. I sögunni andar köldu í garð höfð-
ingja, og slíkt kemur oft fyrir í fomum ís-
lenzkum sögum.
Hermann Pálsson.
Erlend tímarit
TRÚ OG VÍSINDI
Deilur um trú og vísindi voru um eitt
skeið mjög á dagskrá og málin sótt af
kappi á báða bóga. En nú um nokkurn
tíma hefur minna borið á þessum deilum
og þess gætt allmikið meðal vísindamanna
að þeir hliðri sér hjá að ræða þessi mál og
taka afstöðu til þeirra. Það getur því talizt
til nokkurra tíðinda, að á hinu árlega þingi
hins ameríska félags til eflingar vísindum í
desember síðastliðnum var flutt erindi, þar
sem tekin var mjög skorinorð afstaða í
þessu gamla deilumáli. Erindi þetta flutti
George Gaylord Simpson, prófessor í forn-
dýrarannsóknum við Harvardháskóla og
fjallaði það um þróunina.
I brezka tímaritinu „The New Scientist"
er efni þessa erindis rakið nokkuð, og er
það sem hér fer á eftir tekið þaðan.
„Gildi þróunarinnar,“ sagði prófessorinn,
„er undir því komið hve langt þróunin nær.
Nær hún frá hinum ólífræna heimi til hins
lífræna, og nær hún frá óæðri dýrum til
mannsins?"
Eitt af því sem Charles Darwin gerði til
að þóknast gagnrýnendum sínum var að
setja inn í aðra útgáfu af Uppruna tegund-
237